Leikskóli Seltjarnarness sóttur heim

Fréttir|7. febrúar 2014

Stjórn Kennarasambandsins heimsótti í morgun Leikskóla Seltjarnarness. Stjórnendur skólans, Soffía Guðmundsdóttir leikskólastjóri, Anna Harðardóttir aðstoðarleikskólastjóri og Sonja Jónasdóttir verkefnastjóri, tóku á móti hópnum.

Á síðasta ári var tekin sú ákvörðun að stjórn Kennarasambandsins myndi heimsækja allar skólagerðir áður en kjörtímabilið rennur út. Grunnskólinn Sjálandsskóli var sóttur heim á haustdögum og í desember var liði fylkt í Fjölbrautaskólann við Ármúla.

Á Seltjarnarnesi voru tveir leikskólar Mánabrekka og Sólbrekka fram til ársins 2010 að þeir voru sameinaðir í Leikskóla Seltjarnarness. Síðan þá hefur bæst ein deild við sem er til húsa í safnaðarheimili Seltjarnarneskirkju og eru yngstu börnin þar. Í skólanum eru 196 börn og um 60 starfsmenn.

Stjórnendur kynntu áherslur í starfi skólans og sýndu húsakynnin. Lögð er áhersla á tónlist, umhverfismennt og SMT og einkunnarorð skólans eru jákvæðni, virðing og fagmennska. Það er áberandi að lýðræði er stundað í leikskólanum og vel er búið að snemmtækri íhlutun með sérkennslu og sérfræðistuðning. Við sameiningu skólanna var strax lögð áhersla að vinna með einingu innan starfsmannahópsins og að horfa á styrkleika og tækifæri sem fólust í þessari ráðstöfun. Stjórnendur láta vel af sér þó að oft hafi gefið á bátinn til dæmis með óvæntri stækkun skólans í þriðju starfsstöðina nú í haust.

Myndir af heimsókninni má sjá á Facebook-síðu KÍ. Stjórn Kennarasambands þakkar fyrir áhugaverða heimsókn og höfðinglegar móttökur.