Leikskólastjórar mótmæla niðurskurði

Fréttir|30. ágúst 2016

Stjórnendur leikskóla í Reykjavík afhentu Degi B. Eggertssyni borgarstjóra harðorða ályktun klukkan ellefu í morgun. Í ályktuninni mótmæla leikskólastjórnendur niðurskurði í leikskólum borgarinnar og kveðast ekki sjá neina leið fyrir leikskólanna til að taka á sig halla frá síðasta ári, eins og ætlast er til.

Leikskólastjórnendur segja jafnframt að þeim „beri að halda uppi þeirri þjónustu sem lög og aðalnámskrá kveða á um“. Til þess þurfi fjármagn sem hingað til hefur vart dugað til. „Fyrst borgaryfirvöld krefjast þess að leikskólar séu reknir fyrir sífellt minna fjármagn þá þurfa þau að stíga fram og segja okkur hvaða þjónustu við þurfum að hætta að veita. Við sjáum ekki að hægt sé að skera niður þannig að leikskólinn standi undir nafni sem fyrsta skólastigið,“ segir í ályktuninni. Leikskólastjórnendur skora á borgaryfirvöld að endurskoða fjárveitingar til leikskólanna með tilliti til betri afkomu borgarinnar á þessu ári. 

Ályktun leikskólastjórnenda í heild.

Reikningsdæmið gengur ekki upp

Leikskólastjórnendur hjá Reykjavíkurborg hittust á fundi í gær til þess að fara yfir stöðu leikskólanna. Fram kom í fréttum RÚV að mikill hiti hafi verið í fundarmönnum sem sögðu rekstur leikskólanna löngu kominn að þolmörkum. „Þetta er bara reikningsdæmi sem getur ekki gengið upp,“ sagði Þórunn Gyða Björnsdóttir, leikskólastjóri á Rofaborg í viðtali við RÚV. 

Frétt RÚV.