Leikskólastjórar í Reykjavík hvetja til samninga
Fréttir|18. febrúar 2020

Leikskólastjórar í Reykjavík skora á samningsaðila að komast að samkomulagi strax þannig að leikskólar borgarinnar geti farið að starfa með eðlilegum hætti.
Leikskólastjórar í Reykjavík styðja kjarabaráttu og launakröfur starfsmanna í stéttarfélagi Eflingar í leikskólum. Starfsmannavelta í leikskólum í Reykjavík er yfir 30% og má að miklu leyti rekja til láglaunastefnu Reykjavíkurborgar og þess starfsumhverfis, sem börnum og starfsmönnum er boðið upp á.
Staðan í leikskólamálum hefur skaðað starfsumhverfi leikskólanna og hefur áhrif á gæði þeirra og stöðugleika. Leikskólastjórar í Reykjavík skora á samningsaðila að komast að samkomulagi strax, svo leikskólar borgarinnar geti farið að starfa með eðlilegum hætti.