Leikskólar leggja grunn að íslenskunámi barna

Aðalnámskrá leikskóla tekur breytingum í þessa átt.
Breytingar eru fyrirhugaðar á aðalnámskrá leikskóla en þær miða að því að mæta betur þörfum barna með annað móðurmál en íslensku og öðrum fjöltyngdum börnum. Helstu breytingar hafa verið kynntar hagsmunaaðilum en tillaga að breytingum var birt í samráðsgátt stjórnvalda í febrúar síðastliðnum. Uppfærð gerð aðalnámskrár leikskóla verður birt á næstu dögum í Stjórnartíðindum og á vef mennta- og menningarmálaráðuneytisins.
Á vef mennta- og menningarmálaráðuneytis segir: „Um er að ræða breytingar þar sem aukin áhersla er lögð á mikilvægi þess að mæta beri hverju og einu barni út frá menningarbakgrunni þeirra og að námsumhverfi skóla henti öllum börnum sem þar stunda leik og nám. Þá er áréttuð nauðsyn þess að gagnkvæmur skilningur ríki milli foreldra og starfsfólks leikskóla á samspili náms og vellíðunar barna. Þá bætist við vísun til þess að í leikskólum skuli leggja grunn að íslenskunámi barna og veita þeim ríkuleg tækifæri til að efla tungumálafærni sína í daglegu starfi og leik, og að bera skuli virðingu fyrir fjölbreyttum tungumálum og leita leiða til að styðja við móðurmál barna og virkt fjöltyngi í daglegu starfi“.