Leikskólakennarinn sem fagmaður
Í skólastefnu KÍ kemur fram að kennarar eiga að vera faglegir forystumenn í sínu starfi, þeir eru sérfræðingar á sviði menntamála sem kenna, miðla og virkja nemendur í þekkingarleit. Leikskólakennarar leiða faglegt starf í leikskólum. Þeir leggja línurnar, forgangsraða verkefnum og velja leiðir og verkefni sem skipta verulegu máli fyrir börnin og kennara sem fyrir eru í skólunum. Þeir vinna eftir Aðalnámskrá leikskóla, skólastefnu Kennarasambands Íslands, menntastefnum sveitarfélaga, skólanámskrám og deildarnámskrám svo eitthvað sé nefnt.
Heiða Ingólfsdóttir, deildarstjóri og sérkennslustjóri í leikskólanum Holti í Reykjanesbæ skrifar.
Fjölbreytt verkefni
En hvað gerir leikskólakennarann að fagmanni? Það er ótalmargt sem leikskólakennarar þurfa að hafa í huga og sinna á hverjum degi. Þeir þurfa til að mynda að hafa þarfir ólíkra einstaklinga í huga og hvernig hægt er koma til móts við fjölbreyttan hóp barna. Þeir reyna að samþætta námsgreinar eins mikið og hægt er. Leikskólakennarar eru allir stærðfræðikennarar, læsiskennarar, náttúrufræðikennarar og listamenn sem reyna að koma auga á möguleikana á samþættingu námsgreina í leik og starfi. Þeir sjá t.d. möguleika í útinámi þar sem börnin rýna í umhverfi sitt, leita lausna, vinna saman, hreyfa sig óhindrað og hafa til þess nægilegt rými. Þar gefa leikskólakennarar börnunum pláss til að rannsaka umhverfi sitt og leika sér á eigin forsendum en þannig læra ung börn best.
Leiðtogar sem hlúa að leiknum
Leikskólakennarar sjá tækifæri til náms á svo mörgum stöðum og í margvíslegum stundum. Þeir grípa tækifærin þegar þau gefast og tækifærin eru mörg. Leikskólakennarar eru leiðtogar í sínum skólum og leggja línurnar hvað faglegt starf varðar. Þeir sinna foreldrasamstarfi, leiðbeina starfsfólki á deildum, skipuleggja faglegt starf skólans eða deildarinnar, huga að einstaklingsþörfum barnanna, eru gagnrýnir á efnivið og viðfagnsefni og forgangsraða þeim eftir bestu getu því úr nógu er að velja. Mikilvægt er að hafa í huga í öllu starfi leikskólans að námsleiðir ungra barna eru í gegnum leikinn. Það er mikilvægt að hlúa að leiknum eins vel og hægt er og nýta tækifærin til að glæða leikinn með fjölbreyttum og skemmtilegum efnivið þar sem ýtt er undir skapandi og gagnrýna hugsun. Það gerir leikskólakennara að fagmanni að vera meðvitaður um ofangreinda þætti, vega þá og meta með gagnrýnum hug.
Til að standa vörð um einkenni leikskólastigsins þurfum við leikskólakennarar að tala saman og ræða hin margvíslegu hlutverk kennarans. Hvað skiptir höfuðmáli, hvað er tilgangslaust eða tilgangslítið, hvað skiptir máli til lengri tíma litið og hvers vegna, en umfram allt þurfum við að segja frá því faglega starfi sem fram fer í leikskólum á Íslandi í dag. Með umræðunni eflum við fagvitund og styrkjum einkenni leikskólastigsins.