Leikskólakennari af lífi og sál

Fréttir|13. apríl 2021

Birte Harksen, leikskólakennari og fagstjóri í tónlist á Urðarhóli, fékk í vetur Íslensku menntaverðlaunin sem framúrskarandi kennari. Verðlaunin hlaut hún fyrir framúrskarandi kennslu og frumkvæði við að efla skapandi og leikmiðaða starfshætti í leikskólum með vefsvæðunum Börn og tónlist, Leik að bókum og Stafagaldri.

Birte kemur frá Jótlandi í Danmörku en hefur búið á Íslandi frá því árið 2000. „Við ætluðum bara að vera hérna í tvö ár,“ segir hún, „en síðan varð ég svo hrifin af að búa hérna og starfa í leikskóla að við hjónin ákváðum að setjast alveg að í stað þess að flytjast til baka til Danmerkur.“ Eiginmaður Birte heitir Baldur Kristinsson. „Hann er stoð mín og stytta og hefur hjálpað mér í gegnum árin við að koma hugmyndum mínum á framfæri, til dæmis með því að semja og þýða söngtexta á íslensku og forrita vefsvæði.“ Vefsvæðin tengjast leikskólastarfi og verður nánar fjallað um þau hér á eftir.

Hjónin hittust í Rússlandi árið 1989. Bæði voru þau nýútskrifuð sem stúdentar og tóku þátt í friðarhreyfingunni Next Stop Sovjet. Þau voru fimm vikur í Sovétríkjunum sem reyndist meira en nógur tími til að verða ástfangin. Baldur fluttist síðan til Danmerkur og þau bjuggu þar næstu árin. Birte fór í kennaranám og starfaði svo sem grunnskólakennari í Árósum. Þegar Baldri bauðst starf á Íslandi ákváðu þau að grípa tækifærið til að styrkja íslenskukunnáttuna hjá syni þeirra, sem þá var fjögurra ára, auk þess sem Birte sjálf vildi líka læra íslensku betur.

Börnin hafa þörf fyrir að við sýnum þeim raunverulega nærveru og umhyggju og að finna að við njótum þess að vera með þeim.

Upphaflega var hugmyndin að Birte starfaði sem dönskukennari. Hún segist vera hæstánægð með að hafa sótt um vinnu í Heilsuleikskólanum Urðarhóli sem þá var nýstofnaður. Það var einmitt þar sem sonur hennar hafði fengið leikskólapláss. „Mér fannst gaman að kenna í grunnskóla í Danmörku,“ segir Birte, „en þegar ég fór að vinna í leikskóla á Íslandi áttaði ég mig á því að það var mín raunverulega köllun að vinna með börn á leikskólaaldri.“ Birte tók síðar viðbótardiplómunám við HA og fékk þá leyfisbréf sem leikskólakennari.


Tónlistarstarfið á Urðarhóli

Birte er fagstjóri í tónlist og fer á milli deilda Urðarhóls. „Ég fer á hverja deild einu sinni í viku og er með söngstund og ég sé líka um danstíma einu sinni í viku. Mér finnst það vera forréttindi að fá að vera með öllum börnum leikskólans og upplifa hvað þau hlakka til að fá mig til sín.“ Þetta hefur Birte gert í mörg ár og má segja að það sé meginhlutinn af starfi hennar. Tónlistarstarfið er þó ekki hennar eina hlutverk því að hún er líka hluti af starfsmannahópnum á einni deild og var í mörg ár deildarstjóri þar. Birte er ánægð með að vera hætt sem deildarstjóri en finnst nauðsynlegt að halda áfram almennu starfi á deild en hún segir að starfið gæti orðið of einhliða ef það snerist bara um tónlist. „Ég hef líka gaman af sögu­stundum, skapandi starfi, drullumalli og göngu­túrum svo að eitthvað sé nefnt.“

Birte tekur frumkvæðið að því að hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd og hún hefur verið svo heppin að leikskólastjórarnir í Heilsuleikskólanum Urðarhóli hafa gefið henni svigrúm og tækifæri til þess. Þegar hún á sínum tíma fékk hugmyndina að því að þróa tónlistarstarf leikskólans meira og bað um leyfi til að vera með söngstundir á öllum deildum var því vel tekið af Unni Stefánsdóttur heitinni, stofnanda heilsuleikskólahreyfingarinnar og þáverandi leikskólastjóra á Urðarhóli. „Þessi jákvæðu viðbrögð frá Unni voru mér líka hvatning til að sækja um þróunarstyrk til verkefnis sem ég kallaði Breitt og fjölbreytt tónlistarstarf í leikskóla en það varð síðar að vefnum Börn og tónlist.“

Maja maríuhæna

Þróunarverkefnið Breitt og fjölbreytt tónlistarstarf bar reyndar líka annan ávöxt, en það var geisladiskurinn Maja maríuhæna og önnur barnalög sem Birte gaf út með hjálp Sigtryggs Baldurssonar árið 2007. Á disknum eru m.a. vinsæl dönsk barnalög sem Birte og Baldur, eiginmaður hennar, þýddu yfir á íslensku. Þekktust þeirra eru eflaust Maja maríuhæna og Ruggutönn. Einnig er frumsamið lag eftir Birte á disknum en það heitir Álfadrottningin. Þar er álfadrottning að reyna að lokka börnin til að dansa við sig, en þau vita að það er hættulegt og segja því ákveðið nei. „Þetta lag er alltaf sungið á þorrablótum á Urðarhóli.“

Birte segir frá því þegar diskurinn varð til: „Sigtryggur var með barn á deildinni hjá mér og tók eftir því að við vorum að syngja öðruvísi lög. Hann bauðst til að hjálpa mér að búa til disk og ég trúði varla eigin eyrum. Fyrst gerðum við bara upptökur af mér og gítarnum og síðan fengum við fjögur börn úr leikskólanum til að koma með í stúdíóið hans og syngja með í sumum lögunum. Sigtryggur bætti síðan inn áslætti og fleiri hljóðfærum og hljóðblandaði þessu.“

Birte tekur fram að þetta sé bara lítill áhugamannadiskur sem aldrei hafi verið seldur í plötubúðum eða eftir öðrum hefðbundnum leiðum. „Hann náði samt furðulega mikilli útbreiðslu í leikskólaheiminum og lög af honum hafa líka verið spiluð í útvarpi við og við. Nú þegar geisladiskar eru að verða úreltir er hægt að sækja lögin af disknum án endurgjalds á vefsvæðinu Börn og tónlist. En ef einhver skyldi ennþá vilja geisladisk er velkomið að hafa samband við mig.“

Börn og tónlist

Það sem Birte er líklega þekktust fyrir meðal leikskólakennara er vefsvæðið hennar, Börn og tónlist eða bornogtonlist.net, sem hún stofnaði fyrir tólf árum. Þar má finna umfangsmikið safn hugmynda að tónlistartengdu starfi í leikskóla og auk þess mörg lög og texta sem Birte hefur búið til eða þýtt. Á hverju ári bætast margar nýjar síður við vefinn enda hætta hugmyndirnar ekki að flæða og hún hefur gaman af því að lýsa þeim og gera aðgengilegar, bæði fyrir sjálfa sig og aðra í leit að innblæstri.

„Ég hélt upphaflega að þetta yrði síða þar sem fleiri myndu setja inn hugmyndir en það varð ekki raunin,“ segir Birte. „Þó hefur fólk frá öðrum leikskólum stundum sent mér hugmyndir og ég gert síðu um þær. Stundum hef ég jafnvel farið í leikskólann þeirra og tekið upp myndskeið þar.“

Þegar Birte stofnaði síðuna var hún ákveðin í því að hún ætti ekki bara að vera textasafn heldur ætti að lýsa því hvernig hægt væri að vinna með lög og texta til að dýpka skilning barnanna og auka þátttöku þeirra. Birte segir að málörvun sé mjög ríkur þáttur í því hvernig hún hagar tónlistarstarfinu, enda er það greinilegt þegar vefurinn er skoðaður. Þar er einnig að finna margs konar hugmyndir um hvernig hægt er að vinna með tónlist á fjölbreyttan hátt, t.d. með hljóðfærum og hreyfingu. Þess vegna eru á vefsvæðinu flokkar á borð við „hljóðfæri og hljóðgjafar“, „hreyfing, dans og leikir“ og „lög í samhengi.“

Birte segir hins vegar að flokkurinn „fjölþjóðlegt“ sé í algeru uppáhaldi því henni finnst svo gaman að læra lög á erlendum tungumálum. „Ég gríp alltaf tækifærið þegar nýtt barn með erlendan bakgrunn kemur í leikskólann og bið þá foreldrana um að kenna mér barnalag eða vögguvísu á þeirra tungumáli. Síðan æfi ég og æfi þangað til ég er búin að leggja það á minnið og oftar en ekki kenni ég öllum börnum á deildinni að syngja lagið líka.“ Birte nefnir sem dæmi að í haust hafi börnin sungið saman barnalag frá Litháen sem heitir Du gaideliai. „Þetta varð rosalega vinsælt á deildinni. Börnin sungu lagið öllum stundum, bæði inni og úti, og ég er viss um að margir foreldrar voru svolítið hissa heima þangað til ég útskýrði hvað var í gangi.“

Minnisstæðasta dæmið um erlent lag er samt þegar leikskólinn var að taka á móti sýrlenskum strák árið 2016 og börnin á deildinni hans æfðu sig í að syngja fallegt friðarlag á arabísku. „Ég hafði lært það nokkrum árum áður af vinkonu minni og þáverandi starfssystur, Hodu Thabet. Við sungum lagið síðan fyrir strákinn og foreldra hans til að bjóða þau velkomin. Þeim þótti mjög vænt um það og við á Urðarhóli erum alltaf jafn hrifin af laginu þótt við syngjum það oftast í íslensku þýðingunni, en þá kallast það Dropalagið.

Það er dásamleg leið til að brjóta ísinn þegar maður hittir fólk af erlendum uppruna, hvort sem það er gegnum leikskólann eða annars staðar, að spyrja um móðurmál þeirra og síðan segja að maður þekki lag á því tungumáli – og allt í einu er fólk svo að syngja saman þótt það þekkist ekki neitt. Það að syngja saman skapar gleði, traust og tengsl.“

Vináttuverkefnið hjá Barnaheill

Þar sem Birte starfar aðeins fjóra daga vikunnar á Urðarhóli hefur hún tíma aflögu fyrir önnur verkefni, eins og t.d. að halda námskeið. Eitt námskeið sem hún hefur haldið reglulega undanfarin ár tengist Vináttuverkefni Barnaheilla en það er forvarnaverkefni gegn einelti og ætlað leikskólum, fyrstu bekkjum grunnskóla, frístundaheimilum og dagforeldrum.

„Verkefnið er upphaflega danskt og heitir þar Fri for mobberi. Ég sá auglýst námskeið í Danmörku sem fjallaði um tónlistina í verkefninu og fór út til að taka þátt í því. Ég var svo hrifin og fannst tónlistarefnið svo frábært“. Í framhaldi ræddi Birte við Barnaheill og mælti með að þau héldu sams konar námskeið hérna á Íslandi. Þeim fannst það góð hugmynd og niðurstaðan varð sú að þau báðu Birte um að halda eitt til prufu. „Það gekk mjög vel svo að þessu var haldið áfram.“ Síðar fóru leikskólar að biðja um að fá hana til sín á skipulagsdögum svo að allt starfsfólkið gæti tekið þátt og Birte segir að það finnist henni sérstaklega gaman, ekki síst af því að það er svo mikið hópefli.
Stafagaldur

Eins og áður kom fram er tónlistarstarfið ekki það eina sem Birte hefur unnið að og þróað í gegnum árin. Nú í vor opnaði hún vefsvæðið Stafagaldur en það er ævintýralegur læsisvefur fyrir leikskóla þar sem lögð er áhersla á leikmiðaða nálgun og hljóðkerfisstyrkjandi sögur, leiki og ýmiss konar skapandi starf í galdraramma. Vinnan að vefsvæðinu hlaut styrk frá Vísindasjóði FL og FSL og Þróunarsjóði leikskóla Kópavogs.

Vefurinn spratt af þróunarverkefni sem Birte vann fyrir allmörgum árum, en þar skrifaði hún stafaævintýri um vondan galdrakarl sem alltaf stelur einhverju mikilvægu (eins og t.d. öllu grænmeti í G-sögunni og hljóðfærum í H-sögunni). Aðalpersónan í sögunni er leikskólabarn með sama upphafsstaf sem er skrifað inn í ævintýrið og leggur af stað til kastala galdrakarlsins til að fá hann til að skila því aftur sem hann stal. Á leiðinni hjálpar barnið einhverjum sem er í vandræðum og fær töfrapoka að launum. Með hjálp töfrapokans getur barnið leyst þraut sem galdrakarlinn leggur fyrir, en oftast vill hann fá tíu hluti sem byrja á upphafsbókstaf barnsins.

Fyrir utan þessar sögustundir er Birte líka tvisvar í viku með Stafagaldurs-vinnustundir handa elstu árgöngum leikskólans. Þær eru skipulagðar í lotum. „Það hentar mér mjög vel að fá að vera með þetta starf í lotuvinnu þar sem það gefur mér færi á að vinna samfellt með ákveðinn hóp barna í fjórar vikur. Með hverjum hópi get ég þá þróað nýjar hugmyndir og kynnt þær jafnóðum á vefnum. Þannig að alveg eins og á Börn og tónlist bætast stöðugt nýjar síður og hugmyndir inn á Stafagaldur. Ég vona að þetta vefsvæði hljóti góðan hljómgrunn meðal leikskólafólks og að sem flestir geti fundið þar innblástur.“

Birte segir að þetta skólaár hafi verið sérlega spennandi vegna þróunarinnar í sambandi við Stafagaldur. Hún kveðst vera þakklát fyrir að leikskólastjórinn á Urðarhóli, Sigrún Hulda Jónsdóttir, gefi henni svo frjálsar hendur og treysti faglegum metnaði hennar og kunnáttu. „Fyrir eldhuga eins og mig er það nauðsynlegt til að halda neistanum og starfsgleðinni að finna að maður hafi svigrúm og sveigjanleika til að móta eigið starf.“

Leikur að bókum og Birte- og Immustundir

Annað sem hefur viðhaldið starfsgleðinni hjá Birte er samstarfið við starfssysturina Ingibjörgu Ásdísi Sveinsdóttur, eða Immu eins og allir kalla hana á Urðarhóli. „Þegar við Imma byrjuðum að vinna á deild saman kom strax í ljós að við hugsuðum á mjög svipaðan hátt og það varð okkur mikil hvatning.“ Þær fóru að vinna saman verkefni sem heitir Leikur að bókum með styrk frá Kópavogsbæ. Það gat af sér samnefnt vefsvæði (leikuradbokum.net) sem nú er nýorðið 10 ára.

Leikur að bókum er einföld leið til að vinna með barnabækur svo að sagan nái djúpum tökum á börnunum því að þau leika hana aftur og aftur. Fyrst er bókin sögð eða lesin en síðan fer leikurinn af stað. Börnin velja sér hlutverk sögupersónanna og leika söguna á sinn hátt. Í hvert sinn sem sagan er leikin skipta börnin um hlutverk. „Það er alltaf gaman að sjá hvernig hver hópur þróar söguna áfram í sína eigin átt,“ segir Birte. „Leikur að bókum er eitt það skemmtilegasta sem ég geri því að hér fæ ég að leika með börnunum og tengslin sem myndast við þau eru svo dýrmæt.“

Annað samstarfsverkefni þeirra Immu varð til í upphafi Covid-tímabilsins þegar samkomubannið var sett á. Það eru sögu- og tónlistarstundir fyrir börn sem þær kalla Birte- og Immustundir. Hingað til hafa þær gert 15 slíka þætti, og er hver með sitt þema, en þá má finna á YouTube.

„Okkur Immu fannst svo skrýtið að geta ekki verið í samskiptum við Urðarhólsbörnin svona lengi, nema þau fáu sem voru í sóttvarnahólfi okkar. Til að halda tengslum við hin börnin, og líka við foreldrana, fengum við þá hugmynd að nýta dagana þegar við þurftum ekki að mæta í vinnu til að taka upp og klippa þessar Birte- og Immustundir. Það tók auðvitað mjög langan tíma en við skemmtum okkur svo konunglega við að gera þessa þætti að það var alveg þess virði. Það skemmtilegasta var líklega þegar við gerðum nornaþáttinn þar sem við brugguðum galdraseið og þegar við drukkum hann var ég allt í einu komin með langt nef og Imma með stór eyru og síðan breyttumst við í asna og frosk.“

Áhuginn

Birte er spurð hvað henni finnist mikilvægast í kennslu leikskólabarna. „Leikurinn er aðalmálið. Börnin læra best í gegnum leik, þegar þau hafa gaman og gleyma sér, eru virk og fá að læra á sínum eigin forsendum. Nálgun okkar leikskólakennara verður að mínu mati að vera miðuð við leik. Síðan verður hver kennari að finna leið sem passar við persónuleika hans því að það sem er auðveld og frábær leið fyrir mig er ekki endilega eitthvað sem hentar öllum. Hins vegar ættu allir kennarar með tímanum helst að verða æ meira meðvitaðir um styrkleika sína og nota þá til fulls.“

Þau brosa og ég brosi og ég hlæ og þau hlæja

Birte nefnir líka tengslin sem mikilvægan þátt í kennslu leikskólabarna. „Börnin hafa þörf fyrir að við sýnum þeim raunverulega nærveru og umhyggju og að finna að við njótum þess að vera með þeim. Börnin sýna mér á hverjum degi að þeim þykir vænt um mig og ég er viss um að þau finna að mér finnst líka vænt um þau.“

Birte er áhugasöm um starfið og það er auðheyrt þegar hún talar um það. „Ég er alltaf á fullu. Ég er með létt geð; ég fæ stundum tilfinningasveiflur og kemst í uppnám en yfirleitt get ég vaknað fersk næsta dag. Sumir dagar eru auðvitað erfiðir í leikskólanum og stundum er maður búinn að nota alla orkuna en ég er sem betur fer fljót að hlaða aftur batteríin. Ég upplifi gleði í samveru með börnunum og frá þeim tengslum sem skapast. Ég er með þeim í leik. Við speglum hvert annað. Þau brosa og ég brosi og ég hlæ og þau hlæja.

Ég er heppin að vinna við það sem gleður mig. Ég hugsaði með mér í byrjun að ég myndi snúa aftur í grunnskólakennsluna þegar við flyttum aftur til Danmerkur, en nú er ég leikskólakennari af lífi og sál og elska þar fyrir utan að búa á Íslandi.“

 

Viðtalið við Birte tók Svava Jónsdóttir fyrir Skólavörðuna, 1. tbl. 2021.