Leikskólakennarar skrifa undir kjarasamning til eins árs
Fréttir|16. júní 2014
Skrifað var undir nýjan kjarasamning Félags leikskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga um kl. átta í kvöld, eftir stíf fundarhöld síðustu daga. Boðuðu verkfalli fimmtudaginn 19. júní hefur því verið aflýst.
Kjarasamningurinn er til eins árs, gildir nánar tiltekið frá 1. júní 2014 til 31. maí 2015. Hann verður kynntur félagsmönnum FL á næstu dögum en sú kynning verður auglýst nánar á heimasíðu Kennarasambandsins fljótlega. Rafrænni atkvæðagreiðslu um samninginn á að vera lokið á hádegi fimmtudaginn 3. júlí næstkomandi.