Leikskólakennarar skrifa undir kjarasamning

Fréttir|27. apríl 2022

Félag leikskólakennara og Samband íslenskra sveitarfélaga skrifuðu undir kjarasamning síðdegis í dag.

Samninganefndir Félags leikskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga hafa gert samkomulag um nýjan kjarasamning. Undirritun hins nýja samnings fór fram í húsakynnum ríkissáttasemjara í dag.

Gildistími samningsins er 1. janúar 2022 til 31. mars 2023.

Kynningarefni og launareiknivél verður sett á vefinn á næstu dögum og ráðgert er að halda kynningarfundi um samninginn í næstu viku. Þá verður atkvæðagreiðsla um samninginn kynnt síðar.