Leikskólakennarar samþykkja vinnustöðvun

Fréttir|2. júní 2014

Yfirgnæfandi meirihluti leikskólakennara hefur samþykkt að efna til vinnustöðvunar 19. júní næstkomandi hafi ekki náðst að semja um nýjan kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga.
Allsherjaratkvæðagreiðsla fór fram meðal félagsmanna KÍ í Félagi leikskólakennara sem starfa hjá sveitarfélögunum. Atkvæðagreiðslan hófst síðastliðinn miðvikudag, 28. maí, og lauk klukkan 16 í dag, 2. júní.

Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar eru svohljóðandi

Á kjörskrá voru 1.838

Atkvæði greiddu 1.310 eða 71,3%

Já sögðu 1.296 eða 99,0%

Nei sögðu 8 eða 0,6%

Auðir 6 eða 0,4%