Leikskólakennarar samþykkja nýjan kjarasamning

Fréttir|3. júlí 2014

Félagar í Félagi leikskólakennara hafa samþykkt nýgerðan kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga. Allsherjaratkvæðagreiðsla um kjarasamninginn hófst 27. júní síðastliðinn og lauk klukkan 12 í dag, 3. júlí.

Úrslit atkvæðagreiðslunnar eru svohljóðandi:

  • Á kjörskrá voru 1.926
  • Atkvæði greiddu 1.334 eða 69,3%
  • Já sögðu 1.041 eða 78%
  • Nei sögðu 276 eða 20,7
  • Auðir 17 eða 1,3%

Kjarasamningur Félags leikskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga var undirritaður í húsakynnum Ríkissáttasemjara að kvöldi 16. júní síðastliðinn. Kjarasamningurinn er til eins árs, gildir frá 1. júní 2014 til 31. maí 2015. Hægt er að kynna sér kjarasamninginn hér.