Leikskólakennarar samþykkja kjarasamning

Fréttir|8. desember 2015

Leikskólakennarar hafa samþykkt nýgerðan kjarasamning í allsherjaratkvæðagreiðslu. Atkvæðagreiðslan hófst 4. desember og lauk á hádegi í dag. 

Félag leikskólakennara og Samband íslenskra sveitarfélaga skrifuðu undir kjarasamning 26. nóvember síðastliðinn. 

Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar voru sem hér segir: 

  • Á kjörskrá voru 1.924
  • Atkvæði greiddu 994 eða 51.66%
  • Já sögðu 791 eða 79,58%
  • Nei sögðu 174 eða 17,50%
  • Auðir 29 eða 2,92%

Gildistími hins nýja samnings er frá 1. júní 2015 til 31. mars 2019.