Leikskólakennarar kjósa um vinnustöðvun

Fréttir|26. maí 2014

Félag leikskólakennara hefur ákveðið að efna til atkvæðagreiðslu um vinnustöðvun félagsmanna 19. júní næstkomandi.

Samband íslenskra sveitarfélaga vísaði á föstudag kjaradeilu sinni við Félag leikskólakennara til ríkissáttasemjara. Á heimasíðu ríkissáttasemjara segir að boðað verði til fyrsta fundar í deilunni innan tíðar.

Samningar Félags leikskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga hafa verið lausir síðan 30. apríl síðastliðinn. Viðræðuáætlun samningsaðila rann út 23. apríl síðastliðinn.

Haraldur Freyr Gíslason, formaður FL, hefur sagt að leikskólakennarar sætti sig ekki við neitt annað en sambærilegar hækkanir og grunnskólakennarar hafa samið um.

Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna verða birtar innan skamms.