Leikskólakennarar í Færeyjum samþykkja nýjan samning

Þar með er verkfalli sem stóð í fjórar vikur lokið og um 1.300 leikskólakennarar hafa snúið aftur til starfa.
Leikskólakennarar í Færeyjum hafa samþykkt nýgerðan kjarasamning. Þar með er verkfalli sem stóð í fjórar vikur lokið og um 1.300 leikskólakennarar hafa snúið aftur til starfa.
Jógvan Philbrow, formaður færeyska Pedagogfélagsins, segir verkfallið hafa verið félagsmönnum erfitt en það hafi verið þess virði. Frá þessu er greint á vef BUPL.
Þar er jafnframt haft eftir Jógvan að leikskólakennarar hafi fundið fyrir miklum stuðningi í samfélaginu. „Laun leikskólakennara koma til með að hækka um 3.600 færeyskar krónur. Þetta þýðir að við erum nánast jöfn í launum og hjúkrunarfræðingar og grunnskólakennarar, en kröfur okkar voru frá upphafi að við ættum að fá sömu laun og stéttir með sambærilega menntun,“ segir hann.
Fyrir verkfall voru byrjunarlaun leikskólakennara 25.500 færeyskar krónur (um 433 þúsund íslenskar krónur) og hæstu laun 29.400 færeyskar krónur (rétt tæpar 500 þúsund íslenskar krónur). Samkvæmt nýja samningnum verða byrjunarlaun leikskólakennara 26.723 færeyskar krónur (um 453 þúsund íslenskar krónur) og hæstu laun munu hækka í 33.063 krónur (rétt rúmar 560 þúsund íslenskar krónur) á samningstímanum, sem stendur til 1. október 2019. Til samanburðar eru byrjunarlaun hjúkrunarfræðinga 26.500 krónur (um 450 þúsund íslenskar krónur) og hæstu laun 34.000 krónur (um 577 þúsund íslenskrar krónur).
Þá verður sú breyting að félagsmenn fá hækkun eftir 14 ár í starfi í stað 16 ára áður og laun stjórnenda leikskóla hækka töluvert.
„Við hefðum viljað hækka launin meira, en við verðum að vinna að því í næstu samningum. Svo ég er ánægður,“ segir Jógvan Philbrow á vef BUPL.
Færeyskir leikskólakennarar nutu stuðnings frændþjóðanna í verkfallinu; þar á meðal Vinnudeilusjóður Kennarasambands Íslands sem sendi færeysku kollegunum tíu milljóna króna styrk.