Leiðtogar menntamála ræddu námsumhverfi framtíðar

Forystufólk KÍ og ráðherra menntamála sóttu Alþjóðlega leiðtogafundinn ISTP sem fór fram í Tallinn í Eistlandi fyrr í vikunni. Rætt var um faglegt sjálfstæði kennara, gervigreind og þróun kennarastarfsins.
Alþjóðlegi leiðtogafundurinn ISTP fór fram í Tallinn í Eistlandi fyrr í þessari viku. ISTP stendur fyrir International Summit on the Teaching Profession og er þetta stærsti fundur leiðtoga menntamála á alþjóðavísu. Ríflega tuttugu þjóðríki sendu fulltrúa til fundarins að þessu sinni.
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, leiddi föruneyti Íslands á fundinum, en frá KÍ á fundinum í Tallin voru Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, Jónína Hauksdóttir, varaformaður KÍ, og Guðjón Hreinn Hauksson, formaður FF.
Yfirskrift ISTP þetta árið var Skipt um gír: kennarar og nemendur í námsumhverfi framtíðar.
Á fundinum fóru fram samræður um þróun kennarastarfsins, faglegt sjálfstæði kennara og skólastjórnenda og gervigreind og menntatækni.
Magnús Þór Jónsson formaður er ekki í vafa um mikilvægi fundarins: „Þessir ISTP-fundir eru stærstu árlegu viðburðir þegar kemur að umræðu um áherslur og framþróun í skólamálum. Þær eru einstakar að því leyti að á fundinum eru ráðherrar og forráðamenn stéttarfélaga kennara að velta upp sýn til þeirra mála sem eru tekin fyrir og skuldbinda sig til að leiða saman krafta sína. Að þessu sinni var einnig góð umræða um PISA-prófið, framkvæmd þess og þróun þegar kemur að niðurstöðum ólíkra þátta. Við Íslendingar getum verið stolt af því að vera meðal þátttökuþjóða ISTP, þar sem okkar rödd er sterk en við fáum líka mikilvægar upplýsingar og aukum þekkingu.”
Markmið Íslands
Þjóðir sem taka þátt í ISTP fundinum þurfa að setja fram markmið í þremur liðum til næsta árs.
Af hálfu Íslands voru þessi markmið kynnt:
- Að tryggja skipulagt samráð milli stjórnvalda og kennarasamtaka við þróun og innleiðingu á yfirgripsmikilli og heildstæðri kennarastefnu. Áhersla stefnunnar verður á velferð nemenda og kennara, kennaraskort, nýliðun, starfsaldur, brottfall úr starfi og launakjör, byggt á greiningu á vinnumarkaði og menntunargögnum. Markmiðið er að tryggja gæðamenntun fyrir alla nemendur, óháð bakgrunni.
- Að styrkja faglegt sjálfræði og sjálfstæði kennara með markvissri og aðgengilegri starfsþróun og tryggja skipulagða handleiðslu fyrir nýja kennara. Efla hæfniramma fyrir kennara og skólastjórnendur og stuðla að skólatengdum lærdómssamfélögum sem styðja við samvinnu í faglegum vexti og gæðakennslu.
- Að tryggja að tækni og gervigreind í menntun sé miðuð að nemendum, undir handleiðslu faglegs mats kennara og þjóni mannkyninu, kennslu og námi. Kennarar verða að hafa faglegt sjálfræði yfir notkun tækni og taka virkan þátt í hönnun, prufukeyrslu og mati á tæknilausnum
Að lokum verður hér vitnað í hugleiðingar Larry Flanagan, frá Kennarasambandi Skotlands, en hann sagði þetta um fundinn: „Larry Flanagan frá Kennarasambandi Skotlands (Educational Institute of Scotland) sagði í hugleiðingum sínum um leiðtogafundinn: „Við erum hvött til að hafa á hreinu hvað við metum í menntun og hvað við viljum vernda. Fyrir mér er það augljóst: Mannúð í kennslustofunni, gleði námsins, bros barnanna. Við ræktum framtíð samfélagsins í skólum okkar – svo við skulum gæta að okkur.“
Fundurinn nú var sá sautjándi frá upphafi en vert er að geta þess að fundurinn fór fram hérlendis á síðasta ári; var haldinn í Hörpu og þótti takast afar vel.
Tilkynnt var í lok fundarins að ISTP-ráðstefnan verður haldin Á Englandi árið 2027.