Leiðtogafundur um málefni kennara fer fram í Reykjavík

Fréttir|29. apríl 2024

Ísland hefur verið valið sem næsti fundarstaður ISTP-ráðstefnunnar, sem er einn stærsti vettvangur samtals menntamálayfirvalda og stéttarfélaga kennara í löndum OECD. Mikill heiður, segir formaður KÍ en ráðstefnan verður haldin í Hörpu í mars 2025.

Alþjóðlegur leiðtogafundur um menntamál og málefni kennara (ISTP) verður haldinn í Reykjavík í mars 2025. Þetta var tilkynnt við hátíðlega athöfn á nýafstöðnum leiðtogafundi sem fram fór í Singapore í liðinni viku. Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, tók við keflinu úr höndum Chan Chun Sing menntamálaráðherra Singapúr. Formaður Kennarasambandsins, Magnús Þór Jónsson, var ásamt ráðherra fulltrúi á fundinum. 

ISTP stendur fyrir International Summit of the Teaching Profession og til fundarins koma ráðherrar menntamála og leiðtogar kennarasambanda frá ríkjum sem eiga aðild að OECD (Efnhags- og framfarastofnuninni). Leiðtogafundurinn er gott tækifæri fyrir ráðherra og leiðtoga kennara til að deila reynslu og þekkingu á hvernig best megi stuðla að gæðamenntun með öfluga kennara við stjórnvölinn.

Rödd Íslands mikils metin

Magnús Þór segir tilhlökkunarefni að fá þessa mikilvægu ráðstefnu til Íslands. 

„ISTP-ráðstefnan er í raun stærsti árlegi vettvangur samtals menntamálayfirvalda og stéttarfélaga kennara i þátttökulöndunum sem eru sannarlega þau sem við Íslendingar erum í hvað mestum samskiptum við þegar kemur að skólamálum. Það er heilmikill heiður en um leið risaverkefni fyrir KÍ að verða gestgjafi næsta vor en sýnir okkur líka hvað rödd Íslands er mikils metin þegar kemur að skólamálum. Við hlökkum mjög til að taka á móti fulltrúum þeirra landa sem koma til Íslands í mars 2025, bæði til að kynna þeim okkar starf en líka að eiga í innihaldsríkum samtölum til að læra af öðrum,“ segir Magnús Þór. 

ISTP er árlegur viðburður og umræðuefnið helgað kennarastarfinu, áskorunum til framtíðar, starfsumhverfi og starfsþróun kennara og hvernig best megi innleiða menntaumbætur.

Mennta- og barnamálaráðuneytið stendur að fundinum í Reykjavík ásamt Kennarasambandi Íslands í samstarfi við OECD og Education International (Alþjóðasamtök kennara).

Dýrmætur leiðtogafundur

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra kveðst mjög ánægður með að Íslandi hafi orðið fyrir valinu til að halda þennan mikilvæga viðburð um um málefni kennara og gæðamenntun á öllum skólastigum. 

„Leiðtogafundur sem þessi er dýrmætur til að efla samtal þeirra aðildarríkja OECD sem taka þátt í samstarfinu. Það er margt sem við getum lært af hvert öðru en Ísland getur einnig miðlað því sem vel hefur gengið hér á landi sem styður við farsæld og vellíðan barna og ungmenna og þátttöku þeirra í íþrótta- og tómstundastarfi,“ segir  mennta- og barnamálaráðherra.

Nánar verður greint frá inntaki og framkvæmd ISTP-ráðstefnunnar 2025 síðar. 

Menntamálaráðherrar OECD-ríkjanna nítján sem sóttu ISTP í ár ásamt gestgjöfum.

Kennarar þurfa að vera með í för

Framtíð menntunar, áhrif tækni á skólastarf og starfsþróun voru meginþemu nýafstaðinnar ISTP-ráðstefnu sem fram fór í Singapúr í síðustu viku. Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, ávarpaði fundinn og sagði meðal annars að stjórnvöld þyrftu á öllum tímum að hafa kennara með í för þegar unnið er að stefnumótun í menntamálum. 

„Við lítum svo á að kennarar og skólastjórnendur eigi að vera í aðalhlutverki þegar kemur að skólaþróun. Þeir eru lykillinn að árangursríkri menntun og til að svo megi verða þurfum við hafa vel menntaða kennarastétt sem býr við öfluga starfsþróun. Við horfum til allra skólastiga á Ísland og vinnum að því að efla samstarf þeirra á milli, einkum er kemur að því að börn fara á milli skólastiga. Við náum ekki að búa til árangursríka stefnu nema með víðtæku samstarfi við skólafólk á öllum skólastigum. Það samtal verður að vera alvöru samtal og leiða af sér betra starfsumhverfi og aukin gæði í námi," sagði Magnús Þór í ræðu sinni. 

Hann sagði stuðning við skólastarf afar mikilvægan og vitnaði til nýrrar könnunar KÍ, sem gerð var meðal félagsmanna í febrúar, þar sem kemur fram að hópastærðir skipta miklu þegar kemur að gæðum kennslu. 

„Kröfur skólans eru að hverjum og einum nemanda sé sinnt á hans forsendum og kennarar vilja sannarlega hafa þann hátt á. Tilhneigingin hefur verið sú að hópastærðir hafa frekað vaxið en hitt; aðallega af fjárhagsástæðum en líka vegna mikillar fjölgunar nemenda og því fylgir aukið álag,“ sagði Magnús.

Hann sagði brýnt að bregðast við álagi sem stafar af hópastærðum og þá þurfi að halda áfram að efla stoðkerfin og námsumhverfið almennt. 

„Við eigum að auka þátt námsráðgjafar, öflug ráðgjöf verði til staðar í öllum skólum á öllum skólastigum og auk þess fá aðra sérfræðinga, sem sinna stuðningi við nemendur, inn í skólana í meira mæli en nú. Stjórnvöld hafa ýmsar leiðir til að styðja og virkja kennara þannig að þeir geti mætt áskorunum 21. aldar. Samvinna er lykillinn að árangri; við þurfum að efla enn frekar samtal milli kennara, ráðgjafa, skólastjórnenda, nemenda og fulltrúa háskólanna sem mennta kennara,“ sagði Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, á ráðstefnu ISTP 2024.


Mike Thiruman, formaður Kennarasambands Singapúr,
Chan Chun Sing menntamálaráðherra Singapúr,
Ásmundur Einar Daðason ráðherra og Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ.