Leiðsagnarkennarinn, faglegur leiðtogi í lærdómsamfélagi

Björg Melsted skrifar um rannsókn sína á hvernig nýlegt starf leiðsagnarkennara getur sem best stutt við starfs- og skólaþróun í grunnskóla. Björg fékk styrk úr Rannsóknasjóði KÍ.
Nýlegar rannsóknir á íslensku skólastarfi sýna að áhersla á starfstengda leiðsögn hefur aukist í takt við nýjar og breyttar áherslur í kennaramenntun, skólastarfi og starfs- og skólaþróun. Þar má nefna lengingu kennaranáms sem fól í sér aukið vægi starfsnáms, flóknara og margbreytilegra starfsumhverfi í grunnskólum sem kallar á aukna símenntun kennara ásamt þátttöku í skólaþróun.
Síðustu ár hefur mátt greina aukinn skilning menntayfirvalda á þörfinni fyrir stuðning við nýliða og starfandi kennara í grunnskólum og vilja til að standa vel að þeirri leiðsögn sem leiðsagnarkennarar veita. Árið 2109 var hrundið af stað átaksverkefni að frumkvæði stjórnvalda í samstarfi ríkis, sveitarfélaga og stéttarfélaga sem fól í sér að fjölga starfandi kennurum með sérhæfingu í starfstengdri leiðsögn. Á sama tíma kom fram ákvæði í kjarasamningi leik- og grunnskólakennara um nýtt starfsheiti, leiðsagnarkennarann.
Starfsheitið leiðsagnarkennari kom fyrst fram í ákvæði kjarasamnings Félags grunnskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga árið 2019 og var síðast framlengt í samningi sem gildir til maí 2024. Þar er kveðið á um að kennari sem tekur að sér leiðsögn við starfsnámsnema, nema/vettvangsnema og nýliða í starfi beri heitið leiðsagnarkennari og starfið skuli aldrei vera minna en 20% starfshlutfall.
Í starfslýsingunni er leiðsagnarkennari skilgreindur sem faglegur leiðtogi í lærdómssamfélagi grunnskóla sem er, eða getur verið, starfandi kennurum til ráðgjafar þegar kemur að starfsþróun og endurmenntun (Samband íslenskra sveitarfélaga, 2019, 2020). Viðfangsefnin eru útfærð að frumkvæði skólastjóra í samráði við leiðsagnarkennarann og taka mið af þörf fyrir leiðsögn og öðrum verkefnum er snúa að hlutverki leiðsagnarkennara sem faglegs leiðtoga í lærdómssamfélagi grunnskóla.
Þessi grein byggir á rannsókn höfundar á því hvernig nýlegt starf leiðsagnarkennara getur sem best stutt við starfs- og skólaþróun í grunnskóla. Í rannsókninni er leitast við að varpa ljósi á hlutverk leiðsagnarkennara og þá þætti sem stuðla að því að hann taki stöðu faglegs leiðtoga í grunnskóla. Rannsóknarspurningarnar sem hafðar voru að leiðarljósi í rannsóknarvinnunni voru:
- Hvaða þættir stuðla að því að leiðsagnarkennarar taki stöðu faglegs leiðtoga í lærdómssamfélagi grunnskóla og hvernig styður það sem best við skólastarfið og þróun þess?
- Hver eru viðhorf og væntingar skólastjóra til hlutverks leiðsagnarkennara?
- Hver er upplifun og sýn leiðsagnarkennara á hlutverk sitt?
Rannsóknin, sem er liður í lokaverkefni höfundar til meistaraprófs á námsleiðinni starfstengd leiðsögn og kennsluráðgjöf á Menntavísindasviði Háskóla Íslands, hlaut styrk úr Rannsóknasjóði KÍ og kann höfundur félaginu miklar þakkir fyrir þann stuðning.
Hér verður greint frá meginniðurstöðum rannsóknarinnar. Byrjað er á fræðilegri umfjöllun um starfstengda leiðsögn, starfs- og skólaþróun sem og þá aðferð sem notuð var við söfnun og úrvinnslu gagna. Þar á eftir er gerð grein fyrir þeim þemum sem greina mátti í niðurstöðum og þær virtar í ljósi fræða. Að lokum eru dregnar ályktanir um þann lærdóm sem hægt er að draga af niðurstöðum rannsóknarinnar.
Starfstengd leiðsögn, starfs- og skólaþróun
Erlendar og íslenskar rannsóknir hafa með óyggjandi hætti sýnt fram á gildi starfstengdrar leiðsagnar fyrir menntun kennara, aðlögun nýliða í starfi og skólastarfið sjálft (Bjerkholt og Olsen, 2020; Frederiksen, 2020; Hargreaves og Fullan, 2000; Warsame og Valles, 2018).
Mikilvægt er að nýir kennarar fái jákvæða upplifun af kennslustarfinu og finni tilgang í því að starfa áfram í grunnskólum en samkvæmt rannsóknum Lilju M. Jónsdóttur (2012) og Maríu Steingrímsdóttur (2007) getur lítill eða enginn stuðningur við kennara sem eru að stíga sín fyrstu skref í flóknu starfi verið ein orsök þess að kennarar hverfa til annarra starfa.
Starf kennara og skólastjórnenda er þess eðlis að það er í sífelldri þróun í takt við áherslur og breytingar samfélagsins og kallar þess vegna á fjölbreytta starfsþróun og lærdóm alla starfsævina (Mennta- og menningarmálaráðuneytið, 2016). Margir fræðimenn telja að til að svo geti orðið þurfi að ríkja traust á milli allra sem koma að skólamálum (Helga Sigríður Þórsdóttir og Anna Kristín Sigurðardóttir, 2020; Hopkins o.fl., 2014).

Þrátt fyrir að stutt sé síðan að starfsheitið leiðsagnarkennari var formlega tekið í notkun í grunnskólum er hefðin fyrir leiðsögn til kennaranema í tengslum við vettvangsnám mun lengri (Ragnhildur Bjarnadóttir, 2015). Í gegnum tíðina hafa kenningar um nám og menntun þróast og haft áhrif á hugmyndir um starfsnám og menntun kennara. Í seinni tíð hefur verið litið svo á að nám fari ekki eingöngu fram í samskiptum nema og leiðsagnarkennara, félagsleg þátttaka í skólasamfélaginu sé ekki síður mikilvæg og horft er á hana sem farveg starfsmenntunarinnar (Ragnhildur Bjarnadóttir, 2015).
Fyrstu starfsárin eru mikilvægur tími í starfsferli kennara en geta einnig reynst mörgum nýjum kennurum erfið. Fjölmargar rannsóknir, jafnt íslenskar sem erlendar, sýna að nýir kennarar þurfa á markvissum stuðningi og leiðsögn að halda fyrstu árin. Kennarastarfið er flókið og margþætt og sá stuðningur sem leiðsagnarkennarar og skólasamfélagið veitir nýjum kennurum getur skipt sköpum hvað varðar starfsánægju og er liður í að sporna gegn brottfalli (Bjerkholt og Olsen, 2020; Lilja M. Jónsdóttir, 2012; María Steingrímsdóttir, 2007; Warsame og Valles, 2018).
Flókin samskipti við nemendur, foreldra og samkennara eru meðal þess sem virðist valda álagi og víða kemur fram að kennarar óska eftir auknum stuðningi til að takast á við álagsþætti (Lilja M. Jónsdóttir, 2012; María Steingrímsdóttir, 2010; Reykjavíkurborg, 2017).
Samkvæmt megindlegri rannsókn Maríu Steingrímsdóttur og Guðmundar Engilbertssonar (2018) þar sem nýliðar leggja mat á gagnsemi leiðsagnar í starfi kennara, kemur meðal annars fram að leiðsögn ber góðan árangur þegar vel er að henni staðið. Gagnsemi leiðsagnarinnar veltur á því hversu vel hún er skipulögð og að leiðsagnarkennari þekki hlutverk sitt vel.
Mikilvægi þess að kennarar sem sinna starfstengdri leiðsögn hafi tækifæri til að sérhæfa sig á því sviði virðist vera óumdeilt. Smith (2015) bendir á að starf leiðsagnarkennarans sé ólíkt kennslu barna og unglinga og því um aðra faglega nálgun að ræða. Leiðsögn nýliða og starfandi kennara sé í raun nýtt hlutverk sem fellur ekki undir hefðbundið hlutverk kennara og þess vegna þarfnist starfið ígrundunar og rannsókna. Þess vegna er ekki eingöngu mikilvægt að leiðsagnarkennarar séu farsælir kennarar í starfi, þeir þurfa einnig að hafa þekkingu á helstu leiðsagnarkenningum og búa yfir góðri samskiptafærni ásamt því að hafa góða yfirsýn yfir skólastarfið (Birna Svanbjörnsdóttir o.fl. 2020; Smith, 2015).
Samkvæmt rannsókn (Helleve o.fl., 2015) eru vísbendingar um að munur sé á leiðsögn þeirra sem hafa leiðsagnarmenntun og þeirra sem enga slíka menntun hafa. Munurinn liggi aðallega í því að þeir sem eru vel undirbúnir fyrir starfið átti sig á hvernig og hvers vegna þurfi að leggja áherslu á mikilvæga þætti, s.s. leiðsögn sem ýtir undir ígrundun. Þá séu þeir sem hafa leiðsagnarmenntun meðvitaðri um ábyrgð sína á faglegri þróun kennara.
Háskóli Íslands og Háskólinn á Akureyri hafa boðið upp á meistaranám í starfstengdri leiðsögn og kennsluráðgjöf um árabil. Á heimasíðu Háskóla Íslands er talað um að meginmarkmið námsins sé að efla leiðsagnarhæfni þeirra sem annast starfstengda leiðsögn og ráðgjöf við kennara og skóla. Sjónum er m.a. beint að kennurum sem annast leiðsögn í starfi, s.s. til kennaranema í vettvangsnámi, nýrra kennara eða samkennara (Háskóli Íslands, e.d.).
Birna María B. Svanbjörnsdóttir o.fl. (2019) rannsökuðu hverju sérhæfing í leiðsögn skilaði í starfi og starfsháttum þátttakanda á námsleiðinni og niðurstöður bentu til þess að skilningur þátttakenda hafi aukist á mikilvægi leiðsagnar og þess lærdóms sem hún felur í sér fyrir alla sem að henni koma. Í stað þess að sjá leiðsögn sem einstefnu frá leiðsagnaraðila til nýliða líti þeir nú á hana sem samofinn þátt í skólastarfi þar sem ígrundun, gagnrýnin hugsun og lausnaleit er höfð að leiðarljósi.
Sterk tenging er á milli hugmyndafræði lærdómssamfélaga og hugmynda um fagmennsku og starfsþróun. Hugmyndir um lærdómssamfélög eiga rætur sínar að rekja til rannsókna í stjórnunarfræðum sem koma fram um miðja síðustu öld. Shirley Hord (1997) yfirfærir síðan þessar hugmyndir á menntunarfræðin og innleiðir hugtakið um skólann sem faglegt lærdómssamfélag (e. professional learning community).
Samkvæmt því lærir fagfólk í skólasamfélaginu hvert af öðru og hvert með öðru í þeim tilgangi að bæta stöðugt árangur af starfi sínu (Anna Kristín Sigurðardóttir, 2013). Nokkur áherslumunur getur verið á skilgreiningum á hugtakinu faglegt lærdómssamfélag en flestir fræðimenn eru þó sammála um að helstu einkenni þess sé sameiginleg ábyrgð á námi og árangri nemenda sem markmið alls skólastarf, sameiginleg sýn og gildi, starfsþróun sem birtist meðal annars í samvinnu, félagastuðningi, teymiskennslu og launsamiðaðri samræðu, ígrundun og þekkingarsköpun (Anna Kristín Sigurðardóttir, 2013; Hord, 2004; Morgan, 1997).
Leiðsögn sem miðar að því að efla starfsmenntun með hagsmuni nemenda að leiðarljósi og fer fram í lærdómssamfélagi hlýtur að fela í sér samvinnu allra þátttakenda, enda er hún ein aðal skilgreining lærdómssamfélaga (Anna Kristín Sigurðardóttir, 2013). Finnar hafa um árabil lagt áherslu á leiðsögn í anda jafningja- og samvinnuleiðsagnar (e. peer-group mentoring). Samkvæmt Heikkinen o.fl. (2020) þróaðist eðli leiðsagnarinnar í finnska skólakerfinu frá því að vera einstaklingsleiðsögn, þar sem leiðsagnarkennari og nemi eða nýliði eiga í hlut, að því að vera samofin skólasamfélaginu öllu.
Hugmyndir um samvinnu- og jafningjaleiðsögn hafa verið prófaðar á Íslandi. Hildur Hauksdóttir (2018) stofnaði til sjálfbærs lærdómssamfélags á grunni þróunarverkefnis sem hún kallar „Nýliðakaffi“ við Menntaskólann á Akureyri og er byggt á hugmyndafræði Hannu Heikkinen. Markmiðið með verkefninu var að taka betur á móti nýjum kennurum og aðstoða þá við að aðlagast nýjum starfsvettvangi ásamt því að auka merkingarbæra starfsþróun reyndari kennara í ljósi hugmynda um starfsævilanga kennaramenntun (e. lifelong learning).
Sterk tenging er á milli hugmyndafræði lærdómssamfélaga og hugmynda um fagmennsku og starfsþróun
Þrátt fyrir víðtæka þekkingu og viðurkenningu á gagnsemi faglegs lærdómssamfélags fyrir starfs- og skólaþróun sýna rannsóknir að margir skólar á Íslandi standa frammi fyrir ýmsum áskorunum þegar kemur að því að innleiða og viðhalda faglegu lærdómssamfélagi. Samkvæmt Birnu Maríu B. Svanbjörnsdóttur (2019) felast helstu áskoranir í almennri forystu um að innleiða og viðhalda faglegu lærdómssamfélagi og nefnir hún sérstaklega stjórnendur og leiðsagnarkennara í þeim efnum. Leiðsagnarkennari sem hefur sérhæfingu í starfstengdri leiðsögn og tekur forystu um að innleiða og þróa leiðsagnarmenningu í skólanum er að mati Birnu einn sterkasti þátturinn í að innleiða og stuðla að framgangi lærdómssamfélags í grunnskóla.
Fræðimenn telja kennslufræðilega forystu ekki vera eins manns verk heldur margra. Eftir sem áður sé hún á ábyrgð skólastjóra sem sjá um að dreifa forystuhlutverkunum, skilgreina ábyrgðarsvið og fylkja þeim saman sem sýna því áhuga að taka forystu á sviði kennslufræða (Birna Sigurjónsdóttir og Börkur Hansen, 2014; Dóra Margrét Sigurðardóttir og Guðrún Ragnarsdóttir, 2020; Robinson o.fl., 2008).
Skólastjóri sem veitir kennslufræðilega forystu hvetur og virkjar kennara til breyttra kennsluhátta með hagsmuni nemenda að leiðarljósi, skapar aðstæður til sameiginlegrar ígrundunar, fylgir umbótum eftir og veitir endurgjöf (Sigríður Margrét Sigurðardóttir og Guðrún Ragnarsdóttir, 2023).
Rannsóknir sýna að skólastjórar gefa sér ekki alltaf tíma til að sinna kennslufræðilega þættinum í stjórnuninni og fela millistjórnendum og öðrum kennurum það verkefni að leiða umbætur í skólastarfinu (Dóra Margrét Sigurðardóttir og Guðrún Ragnarsdóttir, 2020). Akert og Martin (2012) telja það vera í höndum skólastjóra að skapa skólamenningu þar sem kennarar sækjast eftir og eru hvattir til forystu. Menningin þurfi að gera ráð fyrir hlutdeild kennara í umbótastarfi til að það verði eðlilegur þáttur í skólastarfinu. Samkvæmt þessu er líklegra að leiðsagnarkennari taki stöðu faglegs leiðtoga í lærdómsamfélagi ef skólastjórar leggja áherslu á faglega stjórnun og vinna náið með kennurum og leiðtogum í skólasamfélaginu.
Aðferð
Rannsóknin byggir á viðtölum við fimm leiðsagnarkennara og fjóra skólastjóra í fjórum grunnskólum í Reykjavík. Þeir kennarar sem rætt var við höfðu allir starfað sem leiðsagnarkennarar, samhliða kennslu, frá því ákvæði um starfsheitið tók gildi árið 2019 og höfðu einnig að baki langan starfsferil í grunnskólum ásamt reynslu af því að leiðbeina kennaranemum.
Þegar viðtölin fóru fram, á vormánuðum 2022, höfðu kennararnir umsjón með nemendahópi samhliða leiðsagnarkennarastarfinu sem var áætlað 20–30% hlutfall innan starfsramma þeirra. Tveir kennarar af þeim fimm sem rætt var við höfðu menntun á sviði starfstengdrar leiðsagnar, einn hafði tekið styttra námskeið en hinir tveir bjuggu yfir minni þekkingu á leiðsagnarfræðum. Skólastjórarnir höfðu bæði mislanga reynslu af kennslustarfinu sem og stjórnendastarfinu. Tveir höfðu styttri kennslureynslu og höfðu færst fljótlega yfir í stjórnendateymi eftir nokkur ár í kennslu. Hinir tveir höfðu starfað sem kennarar og aðstoðarskólastjórar í lengri tíma áður en þeir tóku við starfi skólastjóra.
Tilgangur viðtalanna var í fyrsta lagi að fá fram upplýsingar frá kennurum sem sinna starfstengdri leiðsögn í grunnskólum og starfa undir nýja starfsheitinu leiðsagnarkennari. Leitast var við að fá fram hvernig þeir upplifa hlutverk sitt sem leiðsagnarkennari, viðhorf þeirra til starfs- og skólaþróunar ásamt því að kanna hvort og þá hvernig þeir sjá sig sem faglega leiðtoga í lærdómssamfélagi grunnskóla.
Í öðru lagi var tilgangurinn að fá upplýsingar frá skólastjórnendum um viðhorf þeirra til starfs- og skólaþróunar, ásamt sýn þeirra á hlutverk leiðsagnarkennara sem starfa undir nýja starfsheitinu leiðsagnarkennari. Jafnframt var upplifun skólastjóra af störfum leiðsagnarkennara, samvinnu og þátttöku þeirra í starfs- og skólaþróun könnuð.
Viðtölin voru afrituð og kóðuð með að leiðarljósi að finna nokkur megin þemu sem eru einkennandi fyrir þann skilning og viðhorf sem viðmælendur hafa á starfi leiðsagnarkennara, gagnsemi þess fyrir skólastarfið, ásamt upplifun af og viðhorfi til starfs- og skólaþróunar.
Þemu rannsóknarinnar
Í niðurstöðum mátti greina 4 þemu og nokkur undirþemu:
Tafla 1. Þemu rannsóknarinnar
Það skiptir máli að vinna þetta saman
- ólík sýn á skipulag og útfærslu
- framtíðarsýn á hlutverk leiðsagnarkennara
Hópurinn er fjölbreyttur með misjafnar þarfir
- reynsla og þekking leiðsagnarkennara
- eðli leiðsagnar og stuðnings á vettvangi
Allir þurfa á leiðsögn og stuðningi að halda
- álagsþættir í skólastarfi
- jafningjastuðningur er ómetanlegur
Að skapa réttu stemninguna
- hlutverk skólastjóra
- stuðningur við þróun skólastarfs
- leiðsagnarkennarinn sem faglegur leiðtogi
Það skiptir máli að vinna þetta saman
Þátttakendur, bæði skólastjórar og leiðsagnarkennarar, töldu samvinnu um skipulag starfsins skipta miklu máli en margt hefði verið þess valdandi að sú samvinna væri ekki eins mikil og best væri á kosið. Samskiptatakmarkanir af völdum COVID-19 hafi m.a. sett strik í reikninginn en faraldur sá kom til stuttu eftir að til starfsins hafði verið stofnað og virðist meðal annars hafa haft áhrif á samskipti milli skóla og háskóla sem samkvæmt leiðsagnarkennara 1 var miður:
Fyrst þegar við vorum að byrja í þessu þá hittumst við á fundum í háskólanum og fórum yfir skipulag, hvað gekk vel og hvað ekki. Við hittum aðra leiðsagnarkennara og skiptumst á reynslusögum. Svo kom COVID og þá duttu niður þessir fundir, eða fóru á Teams [fjarfundabúnaður] ... en það var bara ekki það sama. Og ég sakna þessara hittinga og eiga þetta spjall og geta speglað. Maður er eitthvað svo einn í þessu.
Ólík sýn á skipulag og útfærslu
Þegar leiðsagnarkennararnir litu til baka var greinilega margt sem laut að skipulagi og útfærslu óljóst í þeirra huga í upphafi: „Það vissi enginn eiginlega hvað þeir voru að gera, við fórum á Menntavísindasvið á einhvern fund og enginn vissi neitt“ sögðu leiðsagnarkennarar 2 en bættu við að þeir hefðu reynt að móta starfið í samvinnu við sinn skólastjóra.
Annar leiðsagnarkennari sagðist hins vegar hafa treyst á góða samvinnu við Menntavísindasvið í upphafi því þáverandi skólastjóri hafi ekki haft sterkar skoðanir á skipulagi starfsins: „Þetta var svo nýtt af nálinni og margt óljóst, gleymdist að borga mér fyrsta árið og þú veist, það var alls konar.“ Þrátt fyrir ákveðna byrjunarörðugleika í upphafi virtist skipulag starfsins og útfærsla á hlutverkum leiðsagnarkennara vera skýrari á þriðja starfsárinu. „Mér líður samt eins og ég sé fyrst núna að finna taktinn“, sagði leiðsagnarkennari 4 en hann greindi frá skipulagi í samvinnu við sinn skólastjóra á eftirfarandi hátt:
Við settumst niður saman í byrjun skólaárs og fórum yfir hvaða verkefni væru brýnust. Við höfum ekki verið með starfsnámsnema hjá okkur en ég er líka búin að vera að leiðsegja reyndari kennurum, fyrir þá sem þurfa einhverja aðstoð, þeim sem eru í fyrsta skipti í umsjónarkennslu og nýjum kennurum við skólann. Við erum líka búin að vera í leiðsagnarnáminu ... að innleiða það hér og ég sé um að skipuleggja það og námskeið og fyrirlestra fyrir starfsmannahópinn.
Skólastjórinn lýsti einnig góðri samvinnu við leiðsagnarkennarann og nefndi svipuð atriði þegar rætt var um skipulag og útfærslu á hlutverki leiðsagnarkennara: „Mér finnst við hafa náð að móta starfið nokkuð vel saman en við erum samt enn að prófa okkur áfram og sjáum að það er ýmislegt sem við viljum gera betur eða öðruvísi á næsta ári.“ Í samtölum við skólastjórana skein í gegn að þeir treystu mjög vel þeim kennurum sem höfðu valist til að sinna starfi leiðsagnarkennara en þrír af þeim lögðu það að mestu í hendur leiðsagnarkennaranna að útfæra og skipuleggja leiðsögnina.
Framtíðarsýn á hlutverk leiðsagnarkennara
Leiðsagnarkennararnir kalla eftir auknu samstarfi og samtali, bæði innan og utan skólans, um skipulag á leiðsagnarkennarastarfinu til að þeirra starfsframlag gagnist sem best og styðji við skólastarf í grunnskólum. Flestir töldu að þörfin fyrir leiðsögn og stuðning væri meiri í þeirra skóla en þeir kæmust yfir og myndu vilja aukinn tíma og svigrúm til að sinna enn betur leiðsagnarkennarastarfinu. Leiðsagnarkennari 3 hafði rætt við sinn skólastjóra um umfang starfsins en fengið þau svör að ekki væri til nægt fjármagn til að ráða hann í hærra starfshlutfall:
Ég er ráðin í 20% starfshlutfall, já skólastjórinn minn lítur svo á að þetta eigi bara að vera 20% starf, af því að það er talað um það sem lágmark. En ég kenni í frekar stórum skóla og þar sem mikið er af nýliðum og ... og, alls konar fólki. Þannig að ég þarf svolítið að passa mig á að halda mig við þessi tuttugu prósent.
Leiðsagnarkennari 1 taldi að gott væri að skólinn markaði sér einhvern starfsramma um hlutverk leiðsagnarkennara í samvinnu við þá sem hlut eiga að máli: „Ég myndi vilja sjá meiri samvinnu allra þriggja aðilanna [grunnskóli, sveitarfélag og háskóli] ... og stjórnendur kæmu aðeins meira inn í ... að skólinn myndi marka sér einhvern starfsramma.“
Skólastjórarnir taka flestir undir þessar vangaveltur og svipaðar áherslur má greina hjá skólastjórum sem kalla einnig eftir auknu samstarfi við menntayfirvöld. Sumir skólastjóranna viðurkenna þó jafnframt að þeir hafi kannski ekki veitt þessu málefni nægilega athygli en vilji væri til úrbóta að því leyti líkt og orð skólastjóra 3 vitna til um: „Við höfum skipulagt þetta lauslega í samvinnu við aðstoðarskólastjóra og leiðsagnarkennara en ég veit að leiðsagnarkennarinn okkar hefur kallað eftir meira samstarfi og það stendur til bóta.“
Leiðsagnarkennari og skólastjóri í skóla 4 vildu báðir sjá starfið sem hluta af einni stöðu í skólanum. Rök skólastjórans fyrir því að auka vægi leiðsagnar í skólanum fólust í trú hans á því að með auknum stuðningi við kennara í formi öflugs lærdómssamfélags mætti bæta starfsvettvang kennara í grunnskólum „Það er ekki endilega eftirsóknarvert að vera kennari í Reykjavík ... þannig að það þarf að gera kennarastarfið eftirsóknarverðara. Þetta snýst ekki bara um laun heldur hvernig starfsvettvangurinn er.“ og bætti við:
Það er líka það sem kennarar eru að kalla eftir, þeir vilja bara fólk á gólfinu til sín og þú getur ímyndað þér hvað það er mikill styrkur ef það er bara einhver á vinnustaðnum sem hefur það svigrúm í sínum vinnutíma að vera með þér í gegnum erfiða tíma.
Leiðsagnarkennarar 2 upplifðu hins vegar frekar mikla óvissu í tengslum við starfið og framtíð þess og sáu því ekki tilgang í því að mennta sig á sviði leiðsagnar: „Ég veit ekki hver nennir að taka þátt í einhverri þróun á einhverju sem er bara svona hipsumhaps. Ég veit ekki hvort ég myndi nenna að skrá mig í eitthvað leiðsagnarnám og svo væri ég ekkert leiðsagnarkennari fyrr en bara einhvern tímann.“ Þrátt fyrir þessa yfirlýsingu voru leiðsagnarkennararnir mjög ánægðir með að starfa sem leiðsagnarkennarar og bæði þeir og skólastjórinn litu á stuðning við nema og nýja kennara sem mjög þarft hlutverk.
Margt bendir til þess að stuðningur og leiðsögn sem leiðsagnarkennararnir veita á vettvangi sé margþættur og byggður á bæði þekkingu og reynslu. Allir fjórir kennararnir eiga það sameiginlegt að búa yfir langri starfsreynslu en muna glöggt eftir því hversu erfitt það reyndist þeim að fóta sig í kennslunni og hversu gott hefði verið að hafa það bakland sem nýir kennarar hafa flestir í dag.
Reynsla og þekking leiðsagnarkennara
Reynsla leiðsagnarkennaranna af fyrstu árum starfsferils þeirra, bæði góð og erfið, virðist hafa mótað afstöðu þeirra til mikilvægi leiðsagnar og þess stuðnings sem nýir kennarar hljóta á sínum fyrstu árum í starfi. Sú afstaða virðist einnig eiga stóran þátt í því að þrír af þeim fimm leiðsagnarkennurum sem rætt var við sáu hag í því að bæta við sig þekkingu á sviði leiðsagnar. Kennararnir nefndu að þeir væru meðvitaðri um ábyrgð sína sem leiðsagnarkennarar, mikilvægi þess að stuðla að jafningjastuðningi og leiða saman nýja kennara og reyndari. Leiðsagnarkennari 3 lýsti skipulagi á jafningjastuðningi á eftirfarandi hátt:
Ég kasta fram spurningu á nýliðafundum og þegar umræðan fer af stað bakka ég og leyfi þeim bara að tala. Oft finna þeir lausnina sjálfir í samtalinu og það er miklu betra en að ég sé að segja þeim hvað eigi að gera og hvernig.
Leiðsagnarkennarinn bætti við að þrátt fyrir að hann leyfði nýliðunum að ráða för að miklu leyti væri hann alltaf meðvitaður um að beina umræðunni aftur inn á rétt spor ef hún leiddist yfir í eitthvað annað en faglega umræðu. Einnig væri mikilvægt að varpa fram spurningum sem hjálpuðu til við faglega ígrundun „og þá segi ég kannski, en hvað með þetta og af hverju finnst þér það og þess háttar“.
Allir leiðsagnarkennararnir töldu mikilvægt að skapa rými fyrir nemana og nýju kennarana til að hittast og ræða saman. Leiðsagnarkennarar 1 og 2 töldu þann vettvang mikilvægan fyrir þá til skiptast á reynslusögum og finna að þeir væru ekki einir í heiminum og flestallir væru að kljást við sömu áskoranirnar. „Ef maður hefði nú bara haft svona sjálfur, þegar maður var að byrja“, sagði leiðsagnarkennari 2a þegar rætt var um gildi þess að skapa vettvang fyrir jafningjastuðning og orð leiðsagnarkennarans vitna um hversu mikið þeir byggja starf sitt á eigin reynslu.
Eðli leiðsagnar og stuðnings á vettvangi
Bæði leiðsagnarkennarar og skólastjórar tala um fjölbreyttan hóp nema og nýliða sem þiggja leiðsögn og reiða sig á stuðning leiðsagnarkennara á vettvangi. Nemar og nýliðar hafi oft langa kennslureynslu að baki sem leiðbeinendur áður en þeir fóru í nám og sumir af nemunum hafi starfað í grunnskólum í ýmsum störfum með námi sínu í mörg ár. Enn aðrir hafi aðra háskólamenntun og séu að bæta við sig kennaramenntun.
Starfsnámsnemar og nýir kennarar sem koma beint úr kennaranámi virðast vera í minnihluta. Leiðsögnin hverfist um hagnýt atriði er lúta að kennsluumhverfinu en birtist einnig í faglegum og persónulegum stuðningi. Stuðningurinn við faglegu víddina, sem miðast að því að efla almenna hæfni og þekkingu, er almennt einstaklingsbundinn og felur í sér samtöl á milli leiðsagnarkennara og nema eða nýliða. Leiðsagnarkennari fer þá í einhverjum tilfellum í áhorf í kennslustund hjá kennaranum eða skipuleggur áhorf í kennslustund hjá öðrum kennurum. Flestir leiðsagnarkennararnir tala um að þessi þáttur verði því miður oft útundan vegna tímaskorts. Leiðsagnarkennari 1: „Ef ég hefði meiri tíma þá gæti ég haft fleiri prívat fundi, svona maður á mann og fylgst betur með kennslu og leyft nýliðunum að fara og fylgjast með kennslu hjá öðrum.“
Leiðsagnarkennararnir lögðu allir áherslu á að efla sjálfstraust, seiglu og samskiptahæfni töldu að þessa þætti væri hvað mikilvægast að efla hjá nýjum kennurum. Leiðsagnarkennari 1 lagði áherslu á að vera til staðar og stappa í þá stálinu og sagði það sérstaklega eiga við um kennaranemana sem eru í fullri kennslu með náminu. Þeir voru að hans mati stundum alveg að guggna:
Þetta er eiginlega ómannlegt að vera í námi og nánast í fullu starfi. Og það þýðir ekkert að segja „ohhh, já þetta er svo erfitt“ alls ekki „þetta er að koma, við sjáum marklínuna og þetta tekst“. Vera hvetjandi, góður hlustandi og einhvern veginn ná að snerta og ýta upp.
Hér mátti greina mikilvægi þess að vera til staðar á þann máta að nemarnir eða nýju kennararnir fyndu að þeir gætu leitað til leiðsagnarkennarans með áhyggjur sínar og áskoranir.
Allir leiðsagnarkennararnir virtust gera sér grein fyrir hversu miklu máli skipti að skapa það traust sem þarf að vera til staðar til að nemarnir og nýliðarnir leiti til þeirra þegar þeir þurfa á stuðningi og leiðsögn að halda. Að sama skapi þótti þeim erfiðast þegar þeir fundu að tengingin var einhverra hluta vegna ekki til staðar og nýju kennararnir eða nemarnir leituðu ekki eftir aðstoð eða töldu sig ekki hafa þörf fyrir leiðsögn af neinu tagi. „Sem betur fer kemur það ekki oft fyrir“, sagði leiðsagnarkennari 3 sem greindi frá einu tilviki þar sem honum reyndist erfitt að fá nýjan kennara til að taka við leiðsögn. Flestir leiðsagnarkennararnir voru sammála um að það kæmi ekki oft fyrir að nemar eða nýir kennarar höfnuðu leiðsögn eða teldu sig ekki hafa þörf fyrir stuðning en þá fyrst reyndi sérstaklega mikið á leiðsagnarhæfnina.
Allir þurfa á leiðsögn og stuðningi að halda
Öllum viðmælendum, bæði leiðsagnarkennurum og stjórnendum, varð tíðrætt um þær miklu breytingar sem orðið hafa á starfsumhverfi í grunnskólum á undanförnum árum. Þar er helst að nefna innleiðingu nýrra kennsluhátta, tæknivæðingu í skólastarfi, aukna áherslu á teymisvinnu og teymiskennslu, fjölbreytileika nemendahópsins og flóknari samskipti við nemendur og foreldra. Það sem virtist valda mestu álagi eru síðustu tveir þættirnir. Bæði skólastjórnendur og leiðsagnarkennarar töldu þessa þætti valda mestu álagi í skólastarfi og allir þyrftu þess vegna á stuðningi og leiðsögn að halda í kennslustarfinu.
Álagsþættir í skólastarfi
Leiðsagnarkennarar höfðu áhyggjur af því að samskipti við foreldra geti oft valdið miklu álagi hjá kennurum og þá sérstaklega nýjum kennurum. Að vera umsjónarkennari væri ótrúlega mikil vinna og kröfur frá foreldrum væru oft óraunhæfar. Þegar nánar var spurt um þessar óraunhæfu kröfur kom í ljós að þær snúast að mestu um félagsleg samskipti og líðan en minna um nám eða námslegar kröfur. Leiðsagnarkennari 3 lýsti miklum létti eftir að hann hætti að vera umsjónarkennari:
... mér finnst ég vera að svíkjast um á hverjum degi. Ég er ekki með milljón tölvupósta um að þessi eða hinn þurfi þetta og þú þarft að tala við þennan sálfræðing og skila þessu og þessum leið svo illa í skólanum eða ... og samskiptin snúast minnst um nám, mest um félagslegar þarfir.
Skólastjórarnir sögðust sjálfir finna fyrir auknum kröfum hvað varðar upplýsingagjöf og þjónustu en allir viðmælendurnir lögðu samt sem áður áherslu á mikilvægi góðrar samvinnu við foreldra og alla þá aðila sem koma að skólastarfi og tóku fram að sem betur fer sé það oftast raunin. Þó ættu samskiptin stundum til að vera flókin og erfið og þá væri mikilvægt að kennarar ættu kost á viðeigandi leiðsögn og stuðningi.
Leiðsagnarkennararnir voru allir sammála um að nemar og nýir kennarar þurfi á miklum stuðningi að halda til að fóta sig í flóknu og krefjandi starfsumhverfi en nefndu einnig að reyndir kennarar þurfi ekki síður en þeir nýju á stuðningi að halda.
Jafningjastuðningur er ómetanlegur
Í samtölum við leiðsagnarkennara kom fram að sá stuðningur sem er í boði fyrir kennara almennt nýtist ekki alltaf sem skyldi og vísuðu þar til hinna ýmsu ráðgjafa og sérfræðinga sem veita tímabundinn stuðning eða ráðgjöf inn í grunnskólana. Leiðsagnarkennari 2b var frekar harðorður í garð ráðgjafanna og taldi litla hjálp vera fólgna í að leita til þeirra: „Þeir sem eru að koma eru annað hvort illa undirbúnir eða vita minna en við“.
Þegar kennararnir voru spurðir hvers konar stuðningur þeir teldu að gagnaðist betur nefndu þeir jafningjastuðning. Kennarar í teymum sem væru tilbúnir að deila þekkingu og reynslu og leiðsagnarkennarar 2a og 2b nefndu dæmi um teymi [lausnateymi] sem hefði verið starfandi við skólann um tíma og nýttist vel. „Þar voru reyndir kennarar með ákveðið hlutverk“, sagði leiðsagnarkennari 2a:
Maður gat bara farið til þeirra og „hvað á ég að gera, ég er með svo erfiðan hóp og ég veit ekkert hvað ég á að gera“. Og þá gátu þeir skoðað með manni ... fólk sem þekkti skólann vel og var ekki að dæma fólk.
Leiðsagnarkennari 4 var sá eini sem hafði formlega það hlutverk að veita kennurum leiðsögn sem þurftu á því að halda. Í samvinnu við skólastjóra var ákveðið hvaða kennarar þyrftu mest á því að halda. Í samtali við skólastjóra í skóla 4 kom fram að hann taldi þennan stuðning nýtast kennurum mjög vel og var viss um að fleiri gætu þegið leiðsögnina ef leiðsagnarkennarinn hefði aukið svigrúm til þess.
Leiðsagnarkennari 1 sagði frá því að aðstoðarskólastjóri í skólanum hafi beðið hann um að vera með tiltekna lestrarfræðslu en ekki formlega undir merkjum leiðsagnarkennarastarfsins. Hann bætti við að þetta hafi aðallega verið gert af því að það voru svo margir nýir kennarar að kenna á yngsta stiginu sem hafi ekki allir haft sama grunn í lestrarkennslufræðunum og greindi frá áskoruninni sem fólst í að opnu augu samkennara fyrir því að allir hefðu hag af því að taka þátt í fræðslunni.
Það kom svona þreyta fyrst fram hjá sumum í hópnum, sérstaklega þeim sem fannst þeir ekki þurfa á þessu að halda. Þannig að ég ákvað að hafa þetta svona samtal og heyra fyrst hvað allir voru að gera ... og gefa góð ráð. Og þá komu svo ótrúlega margar spurningar í kjölfarið. Í lokin voru allir rosalega ánægðir og fólk opnaði sig og fann hvað það var gott að skiptast á skoðunum og reynslu.
Fræðslan var að mati leiðsagnarkennarans ekki fólgin í því að hann boðaði ein algild sannindi sem allir ættu að fara eftir, heldur hafi hún miklu frekar falist í samtalinu sem gefur kennurum kost á að deila þekkingu og reynslu.
Flestir stjórnendur nefndu einmitt þessa áskorun sem er fólgin í því að sameina ólíka hópa í umbótastarfi og viðhalda breyttum kennsluháttum. Sumir skólastjóranna sáu fyrir sér að leiðsagnarkennari gæti gegnt mikilvægu hlutverki í að leiða saman nýja kennara og reyndari í umbótastarfi með áherslur skólans að leiðarljósi. Skólastjóri 2 sagði frá vinnu skólans við að innleiða leiðsagnarnám og stefnumörkun í sínum skóla hvað það varðar. Hann lýsti þeirri áskorun sem felst í að fá nýja kennara til starfa sem þekkja minna til stefnunnar og að láta þessa tvo hópa vera samstíga geti verið erfitt:
Við fórum með stóran hóp í gegnum innleiðinguna á sínum tíma og það er hópur sem er alveg „all in“ og vill bara keyra áfram á einhverju nýju og bæta inn verkfærum og svo ertu með hóp sem þú þarft bara að vera útskýra fyrir hvað leiðsagnarnám er.
Aðeins einn skólastjórinn fól sínum leiðsagnarkennara hlutverk í að leiða þessa hópa saman í umbótastarfi skólans og taldi það vera ómetanlegan stuðning við alla, bæði við nýja kennara og hópinn allan. Skólastjórinn taldi þetta fyrirkomulag virka mjög vel og hann fann mikinn styrk í því að hafa leiðsagnarkennara „sem kæmi með í þetta verkefni“, eins og hann orðaði það og átti þá við að verkefnið væri einnig í sínum höndum sem faglegs leiðtoga og annarra í stjórnendateyminu. Því hlutverki, að vera faglegur leiðtogi, sagðist hann því miður ekki ná að sinna eins vel og hann vildi sökum ýmissa annarra verkefna og því væri ómetanlegt að hafa leiðsagnarkennarann með sér í liði.
Að skapa réttu stemninguna
Í samtölum við skólastjóra og leiðsagnarkennara var gildi lærdómsmiðaðrar samvinnu þeim ofarlega í huga og mikilvægi þess að skapa þá stemmningu sem þyrfti að vera til staðar til hún þrífist, og er þá verið að vísa til þeirrar skólamenningar sem er ríkjandi í hverjum skóla fyrir sig.
Hlutverk skólastjóra
Allir skólastjórarnir töluðu um að síðustu ár hafi verið sérstaklega erfið og einkennst af því að halda skólastarfinu saman í stað þess að huga að þróun þess. Þegar þeir voru spurðir um einkenni faglegs leiðtoga endurspegluðu svör þeirra hálfgerða sektarkennd yfir því að vera ekki sá faglegi leiðtogi sem þeir vildu vera og veita faglega forystu um lærdómsmiðað skólastarf. Skólastjóri 3 sagðist sakna þess að vera í eins mikilli tengingu við kennara og skólastarfið og hann sjálfur vildi:
„Ég vil upplifa þetta sem ekki endilega eftirlit heldur að sjá það skemmtilega sem er í gangi í hverri skólastofu og vera meira inni í því sem er að gerast dags daglega í skólastofunum.“
Skólastjóri 1 gerði hrós að umtalsefni og taldi það vera mjög vandmeðfarið og að endurgjöfin verði að vera raunveruleg til að fólk upplifi hana ekki innihaldslausa verði að vera innistæða fyrir henni og tók dæmi:
„Ef ég segi við kennara „flott vinna hjá þér“ en svo hef ég aldrei kíkt á kennsluna hjá kennaranum, þá er hún að ákveðnu leyti innihaldslaus.“ Þess vegna sé mikilvægt að vera sýnilegur og vita hvað fram fer í skólastofum og hvað nemendur eru að læra og hvernig kennarar kenna.
Þrátt fyrir að skólastjórarnir hefðu lítinn tíma til að sinna faglegu starfi af jafn miklum krafti og þeir óskuðu var greinilegt af svörum þeirra að þeir töldu það mikilvægt hlutverk og reyndu eins og þeir gátu að sinna því vel með því að skapa jákvæða og lærdómsmiðaða skólamenningu líkt og skín í gegn í svari skólastjóra 1:
Það er bara svo mikilvægt að það ríki þetta traust í skólasamfélaginu, að kennarar, starfsmenn og stjórnendur, allir í skólanum treysti hver öðrum ... við vinnum eins og við eigum öll þessi börn og vinnum saman að því að skapa þeim gott umhverfi til náms.
Í orðum skólastjórans má greina áherslu á mikilvægi samvinnu og það sé ekki á eins manns hendi að leiða skólasamfélagið og skólastarfið.
Stuðningur við þróun skólastarfs
Þegar talið barst að samvinnu við aðrar stofnanir um þróun skólastarfs mátti greina ákveðinn þreytutón í svörum skólastjórnenda sem gaf til kynna að það gæti verið betra og markvissara.
Skólastjóri 4 sagðist finna styrk í því að vera í góðu samstarfi við utanaðkomandi stofnanir „svo sem háskóla, sveitarfélagið og annað“. Hann sagði frá því að hann hefði óskað eftir samstarfi við Menntavísindasvið og það væri að hans mati æskileg samvinna en hefði ekki haft erindi sem erfiði: „Ég kallaði eftir faglegu samstarfi, en það hefur ekki gengið eftir og mér finnst það synd.“ Skólastjóri 2 lýsti svipaðri upplifun og bætti við að með því að ráða inn kennaranema á lokaári í kennaranámi sínu hefði hann verið að vonast eftir að það myndi styrkja tenginguna við háskólann og það góða starf sem þar fer fram en það hafi ekki alveg gengið eftir „en það var kannski bara einhver draumsýn hjá mér að vera með einhverja svona tengingu inn í Kennó“, segir skólastjóri 2 og bætir við „en hún hefur allavega ekki verið eins og ég var að vonast eftir“.
Hinir skólastjórarnir höfðu svipaða sögu að segja en nefndu í því samhengi dæmi um gott samstarf við háskólann á Akureyri í tengslum við verkefni um Byrjendalæsi. Verkefnið fól í sér góða samvinnu við háskólann á Akureyri að mati skólastjóra 4 „innleiðingin var heilsteypt og eftirfylgnin góð“. Í tengslum við innleiðingu á Byrjendalæsisverkefninu hafi margir kennarar fengið góða fræðslu sem hafi skilað sér inn í skólastarfið.
Sömu sögu var að segja um hlutverk sveitarfélagsins, sem í þessu tilfelli er skóla og frístundasvið Reykjavíkurborgar. „Það er ótrúlega margt í boði“, sagði skólastjóri 2 en bætti við að starfsþróun kennara ætti til að vera ómarkviss þegar verið væri að velja bara „eitthvað og eitthvað“. Leiðsagnarnámið var dæmi um gott verkefni sem flest allir skólastjórarnir tóku þegar spurt var um eitthvað sem hefði gengið vel og gagnast skólastarfinu, „það var af því að það var vel haldið utan um það og því fylgt eftir með skipulögðum hætti“, sagði skólastjóri 4 og bætti við að leiðsagnarkennari í sínum skóla væri einn af þeim sem sinnti því mikilvæga hlutverki að viðhalda því góða starfi.
Leiðsagnarkennarinn sem faglegur leiðtogi
Í fyrstu voru leiðsagnarkennararnir hikandi við að skilgreina sig sem faglega leiðtoga og lögðu mikla áherslu á að þeir væru einn af hópnum, þ.e. kennarahópnum. Leiðsagnarkennari 1 vildi ekki skilgreina sig sem faglegan leiðtoga en hafði samt sem áður sterka skoðun á hvað ætti helst að vera til umræðu meðal skólafólks og var tilbúinn að leiðbeina og ræða við samstarfsfólk sitt um „kennslumál“ eins og hann orðaði það:
Sko ég tel mig bara vera eina af hópnum. Eeeen ég vona að, sko, ég brenn fyrir þessu starfi ... og mér finnst ekkert skemmtilegra en að ræða kennslumál. Ekki bara um erfiðleika í samskiptum, heldur um KENNSLUMÁL ... og ég reyni að vera til staðar og vona að ég sé það.
Afstaða leiðsagnarkennara til starfs- og skólaþróunar er skýr og mikilvægi samvinnu og samstarfs, þar sem allir hafa eitthvað til málanna að leggja, er þeim ofarlega í huga. „Við erum öll svo ólík, með mismunandi styrkleika og þegar við vinnum vel saman græða allir“, sagði leiðsagnarkennari 4 og leiðsagnarkennari 1 nefndi mikilvægi þess að deila hugmyndum og að fá hugmyndir frá öðrum væri helsti kosturinn við gott samstarf ásamt því að eiga þetta faglega samtal sem er svo mikilvægt að hans mati. Leiðsagnarkennarar 2a og 2b greindu einnig frá jákvæðri afstöðu sinni til starfs- og skólaþróunar þegar þeir lýstu því hvernig allir kennarar í þeirra skóla starfa í ólíkum teymum: „Maður er bara settur í eitthvað teymi, alltaf verið að ögra manni og það er bara frábært og það er bara partur af starfsþróun okkar ... eða bara þróun skólans.“
Þrátt fyrir að leiðsagnarkennararnir séu tregir til að skilgreina sig sem faglega leiðtoga ber hugarfar þeirra og afstaða til lærdómssamfélagsins þess merki að þeir taki forystu um að innleiða leiðsagnarmenningu í sínum skóla. Sem dæmi um það er svar leiðsagnarkennara 3 sem hafði orð á því að erfitt væri að fá kennara til að taka á móti kennaranemum, af því að það væri svo illa borgað. Þegar hann var spurður hvernig hann færi þá að því að finna nemunum stað, svaraði hann „Ég skapa bara þá stemmningu að það sé frábært að hafa kennaranema.“
Allir leiðsagnarkennararnir fjórir tóku virkan þátt í starfs- og skólaþróun á einn eða annan máta. Nokkrir lýstu þátttöku sinni í innleiðingarteymum sem sjá um að kynna nýjar kennsluaðferðir, yfirfara skólanámskrá, hæfniviðmið og fleira. Mikilvægi þessara starfa kristallast í svari leiðsagnarkennara 1: „Mér finnst líka skipta mjög miklu máli á svona stórum vinnustað að við séum samstíga og vinnum saman að því að komast þangað sem við viljum komast.“

Það er bara svo mikilvægt að það ríki þetta traust í skólasamfélaginu, að kennarar, starfsmenn og stjórnendur, allir í skólanum treysti hver öðrum
Niðurstöður í ljósi fræða
Niðurstöður þessarar rannsóknar benda til þess að skipulag starfsins sé að mestu á herðum leiðsagnarkennara þrátt fyrir að kveðið sé á um að bæði skipulagning og hlutverk leiðsagnarkennara sé mótað í samráði við skólastjóra (Samband íslenskra sveitarfélaga, 2019; 2020). Margt virðist hafa verið óljóst þegar ákvæðið kom fyrst til framkvæmda og skilningur á því hvað fellur undir verksvið leiðsagnarkennara misjafn að frátöldu skipulagi um leiðsögn starfsnámsnema sem er nokkuð vel rammað inn í starfslýsingu frá viðkomandi háskóla (Háskóli Íslands, 2022). Nýliðar sem leiðsagnarkennararnir veittu stuðning voru misjafnlega margir og með ólíkan bakgrunn. Greinilega kom fram að það reynist skólastjórum erfitt að skilgreina hverjir eiga að fá leiðsögn og áherslan er meiri á hverjir eigi rétt á stuðningi og leiðsögn frekar en hverjir þurfi á því að halda.
Sú leiðsögn sem leiðsagnarkennarar veita kennaranemum á lokaári og nýjum kennurum hverfist um hagnýt atriði er lúta að kennsluumhverfinu en birtist einnig í faglegum og persónulegum stuðningi og mótast af þörfum þeirra sem hana þiggja. Ragnhildur Bjarnadóttir (2015) hefur bent á að leiðsögn sem miðar að því að efla persónulegan styrk hafi helst verið gagnrýnd fyrir að vera of losaraleg og persónuleg vandamál fái meira vægi en starfstengd vandamál. Þar sem markmiðin séu í flestum tilvikum langtímamarkmið sé mikilvægt að leiðsögnin nái yfir lengri tíma og sé vel skipulögð af leiðsagnarkennara sem hafi reynslu og þekkingu til þess.
Fleiri rannsóknir sýna fram á að leiðsagnarkennarar sem búa yfir þekkingu á kenningum um starfstengda leiðsögn séu betur undirbúnir undir starfið og átti sig á hvernig og hvers vegna leggja þurfi áherslu á mikilvæga þætti líkt og faglega ígrundun (María Steingrímsdóttir og Guðmundur Engilbertsson, 2018; Smith, 2015). Þess vegna væri æskilegast að nýir kennarar nytu stuðnings leiðsagnarkennara sem býr yfir þekkingu á leiðsagnarkenningum í lengri tíma en einungis eitt skólaár. Niðurstöður þessarar rannsóknar benda til þess að leiðsagnarkennarar nái ekki að sinna öllum þeim sem þurfa á leiðsögn að halda sem geri meðal annars það að verkum að stuðningurinn einskorðast við fyrsta kennsluár nýrra kennara.
Aðeins einn skólastjóri fól sínum leiðsagnarkennara að styðja við og leiðsegja kennurum út frá þörf fyrir stuðning óháð því hvort kennarinn var nýútskrifaður eða ekki. Leiðsagnarkennarinn hafði skilgreint hlutverk í starfs- og skólaþróun sem faglegur leiðtogi. Þarna fer saman sýn leiðsagnarkennara og skólastjóra á mikilvægi starfstengdrar leiðsagnar og þrátt fyrir að skólastjóri léti í ljós að ekki væri beint fjármagn ætlað í þennan þátt skólastarfsins lét hann það virka á einn eða annan máta í ljósi þess að það væri öllu skólastarfi til framdráttar. Í þessu tilfelli má greina tilraun skólastjóra til að valdefla leiðsagnarkennarann og gefa honum formlegt hlutverk sem faglegur leiðtogi í lædómssamfélagi skólans enda er það talið vera lykilatriði og eitt af einkennum lærdómssamfélaga að skólastjóri dreifi forystu (Birna Sigurjónsdóttir og Börkur Hansen, 2014; Birna María B. Svanbjörnsdóttir, 2019).
Í þessari rannsókn var ekki markvisst verið að skoða eða greina hversu virkt lærdómssamfélagið var í hverjum skóla fyrir sig en margt í viðtölum við bæði leiðsagnarkennara og skólastjóra gaf til kynna ríkjandi skólamenningu. Hjá báðum hópum mátti greina sterkan vilja fyrir öflugri samvinnu og samtali sem er einkennandi fyrir virkt lærdómssamfélag (Anna Kristín Sigurðardóttir, 2013; Birna María B. Svanbjörnsdóttir, 2019). Í samtölum við bæði leiðsagnarkennara og skólastjóra kom fram sami skilningur á að samvinnan væri grundvallar þáttur í farsælu skólastarfi og ekki síst í innleiðingu nýrra kennsluhátta og annarra nýjunga í skólastarfinu, s.s. tilkoma starfsnámsnema í grunnskólum og breytt hlutverk leiðsagnarkennara. Viðmælendur nefndu dæmi um góða innleiðingu og undantekningarlaust voru það verkefni sem höfðu verið vel skipulögð með aðkomu og stuðningi frá háskóla og sveitarfélagi sem er eins og fram kemur í mörgum rannsóknum til marks um að samvinna allra aðila er farsælasta leiðin (Bjerkholt og Olsen, 2020; Helga Sigríður Þórsdóttir og Anna Kristín Sigurðardóttir, 2020).
Viðhorf skólastjóra til hlutverks leiðsagnarkennaranna er jákvætt en ólíkt. Allir stjórnendurnir bera mikið traust til þeirra kennara sem veljast til að sinna starfi leiðsagnarkennara. Misjafnt er á hvaða forsendum þeir treysta þeim vel til að taka að sér leiðsögn og styðja við aðra kennara. Nokkrir skólastjóranna byggja það á framúrskarandi hæfni viðkomandi sem umsjónar- eða faggreinakennara, annar nefndi samskiptahæfni og eiginleikann að fá fólk með sér í fagleg störf og tveir nefndu einnig mikilvægi þess að kennarinn hefði sérhæfingu á sviði starfstengdrar leiðsagnar. Allt eru þetta eiginleikar sem bent hefur verið á að eru mikilvægir og þurfa að vera til staðar til að áhrifarík leiðsögn á vettvangi geti átt sér stað (Lilja M. Jónsdóttir, 2012; Ragnhildur Bjarnadóttir, 2015). Að mati Maríu Steingrímsdóttur og Guðmundar Engilbertssonar (2018) veltur þó gagnsemi leiðsagnarinnar ekki síst á því hversu vel hún er skipulögð og að leiðsagnarkennarinn þekki vel hlutverk sitt.
Flest bendir til þess að leiðsagnarkennararnir séu að sinna starfi sínu eftir bestu getu og af heilum hug. Þó mátti greina áherslumun í viðhorfi til skipulagningar og gagnsemi leiðsagnarinnar fyrir skólasamfélagið allt eftir því hversu mikillar þekkingar þeir höfðu aflað sér á sviði leiðsagnar. Þeir kennarar sem höfðu meiri þekkingu höfðu ákveðnari skoðanir á uppbyggingu starfsins og þeim möguleikum sem það getur falið í sér fyrir alla kennara á meðan þeir sem minni þekkingu höfðu á fræðunum sáu ekki tilgang í því að afla sér þekkingar á leiðsagnarfræðum sökum þess að mikil óvissa væri um hversu mikil þörf væri á framlagi þeirra. Það samræmist niðurstöðum Helleve o.fl. (2015) um að þeir leiðsagnarkennarar sem hafa leiðsagnarmenntun séu meðvitaðri um ábyrgð sína á faglegri þróun kennara en ekki er krafist leiðsagnarmenntunar við ráðningu leiðsagnarkennarara í grunnskólum (Samband íslenskra sveitarfélaga, 2019, 2020). Þessar niðurstöður vekja upp hugleiðingar um mikilvægi þess að kennarar sem sinna starfstengdri leiðsögn séu meðvitaðir um gildi námsins, séu hvattir til og hafi tækifæri á að afla sér þekkingar á leiðsagnarkenningum.
Skólastjórarnir nefna þá áskorun sem fólgin er í að sameina ólíka hópa í umbótastarfi og viðhalda breyttum kennsluháttum eftir að formlegri innleiðingu er lokið. Áskoranir sem þessar eru þekktar og er raunin sú að oft fylgir það viðvarandi nýliðun í kennarahópnum að nýir kennara þekkja ekki til þeirra fræða sem liggja til grundvallar breyttum kennsluháttum eða vinnulagi (Birna María B. Svanbjörndsóttir, 2019). Niðurstöður annarra rannsókna benda til þess að leiðsagnarkennarar geti haft mikilvægu hlutverki að gegna í að leiða saman þessa tvo hópa, reynda kennara og nýja, þegar kemur að því að viðhalda breyttum kennsluháttum. Þá sé mikilvægt að leiðsagnarkennari hafi sérhæfingu í starfstengdri leiðsögn og taki forystu um að innleiða og þróa leiðsagnarmenningu í skólanum (Birna María B. Svanbjörnsdóttir, 2019; Heikkinen o.fl., 2020; Hildur Hauksdóttir, 2018). Niðurstöður þessarar rannsóknar bentu til þess að mikil þörf væri á því að styrkja þess þætti í skólastarfinu. Reyndur leiðsagnarkennari með góða þekkingu á kenningum leiðsagnar gæti haft mikilvægu hlutverki að gegna í að leiða saman nýja og reyndari kennara í þróunarstarfi grunnskóla.
Leiðsagnarkennararnir fóru varlega í að skilgreina sig sem faglega leiðtoga en greining gagna benti til þess að þeir búi yfir mikilvægum þáttum sem einkenna kennara sem taka forystu um að innleiða leiðsagnarmenningu og hvetja til faglegs samstarfs. Þeir kennarar sem veljast í starf leiðsagnarkennara virðast almennt vera afburðakennarar að mati skólastjóra sem þeir bera mikið traust til og rímar það við lýsingu Ash og Persall (2000) á forystukennurum. Leiðsagnarkennararnir hafa allir sterkar skoðanir á kennslu og skólastarfi og vilja helst af öllu verja meiri tíma í faglega umræðu sem er önnur birtingarmynd kennaraforystu, en líkt og Birna Sigurjónsdóttir og Börkur Hansen (2014) benda á er mikilvægt að skólastjórnendur leiði þá umræðu með stefnu skólans að leiðarljósi. Niðurstöður þessarar rannsóknar benda einnig til þess að til að leiðsagnarkennari taki faglega forystu sem leiðtogi í lærdómssamfélaginu þurfi það að vera gert í samvinnu við skólastjórnendur.
Að lokum
Að þróa skólastarf er samvinnuverkefni margra aðila og í þessu verkefni leitaðist höfundur við að varpa ljósi á þátt starfandi leiðsagnarkennara í grunnskólum í skólaþróun með því að skoða með hvaða hætti leiðsagnarkennarar geta verið faglegir leiðtogar í lærdómssamfélagi grunnskóla. Niðurstöður benda til þess að þeir leiðsagnarkennarar sem hafa aflað sér þekkingar á sviði leiðsagnar og ráðgjafar hafi sterkari sýn á hlutverk sitt sem faglegir leiðtogar heldur en þeir sem minni þekkingu hafa á kenningum leiðsagnar og ráðgjafar. Þar sem skólastjóri deilir þessari sýn á hlutverk leiðsagnarkennarans hefur hann sterkasta stöðu sem faglegur leiðtogi í lærdómssamfélaginu og tekur þátt í að innleiða leiðsagnarmenningu í sínum skóla.
Ljóst er að starf leiðsagnarkennara er enn í mótun og til að það þróist á þann hátt að leiðsagnarkennari taki stöðu faglegs leiðtoga í lærdómssamfélagi grunnskóla og forystu um að innleiða leiðsagnarmenningu í grunnskólum bendir margt til þess að eftirfarandi þættir þurfi að fara saman:
- Virkt samtal milli hagsmunaaðila grunnskólans um sameiginlegan skilning og útfærslu á starfi leiðsagnarkennara.
- Aukið svigrúm leiðsagnarkennara til að sinna starfinu.
- Þekking leiðsagnarkennara á sviði leiðsagnar.
- Stefna skólans um virkt lærdómssamfélag og sýn skólastjóra á leiðtogahlutverkið.

Að þróa skólastarf er samvinnuverkefni margra aðila
Heimildir
- Anna Kristín Sigurðardóttir. (2013). Skóli sem lærdómssamfélag. Rúnar Sigþórsson, Rósa Eggertsdóttir og Guðmundur Heiðar Frímannsson (ritstjórar). Fagmennska í skólastarfi. Skrifað til heiðurs Trausta Þorsteinssyni (bls. 35–53). Háskólinn á Akureyri og Háskólaútgáfan.
- Akert, N. og Martin, N. (2012). The Role of teacher leaders in school improvement through the perceptions of principals and teachers. International Journal of Education, 4(4), 284–299. https://doi.org/10.5296/ije.v4i4.2290
- Ash, R. C. og Persall, J. M. (2000). The principal as chief learning officer: Developing teacher leaders. NASSP Bulletin, 84(616), 15–22.
- Birna Sigurjónsdóttir og Börkur Hansen. (2014). Gildi og áherslur skólastjóra í grunnskólum í Reykjavík. Netla – Veftímarit um uppeldi og menntun. https://ojs.hi.is/netla/article/view/1954
- Birna María B. Svanbjörnsdóttir. (2019). Teymisvinna og forysta: Birtingarmynd fimm árum eftir að innleiðingarferli faglegs lærdómssamfélags lauk. Netla- Veftímarit um uppeldi og menntun. https://doi.org/10.24270/netla.2019.3 j
- Birna María B. Svanbjörnsdóttir, Hildur Hauksdóttir, og María Steingrímsdóttir. (2019). „Það er eins og það hafi verið skipt um rafgeymi í manni.“ Gildi starfstengdrar leiðsagnar fyrir starfsþróun kennara. Skólaþræðir. Tímarit áhugafólks um skólþróun. https://skolathraedir.is/2019/08/18/thad-er-eins-og-thad-hafi-verid-skipt-um-rafgeymi-i-manni/?print=pdf
- Birna Svanbjörnsdóttir, Hildur Hauksdóttir, og María Steingrímsdóttir. (2020). Mentoring in Iceland: An integral part of professional development? New teachers in Nordic countries – ecologies of mentoring and induction, 6, 129–149. Cappelen Damm Akademisk. https://doi.org/10.23865/noasp.105.ch6
- Bjerkholt, E. M. og Olsen, K. R. (2020). Induction and mentoring of newly qualified teachers in kindergartens and schools in Norway. New teachers in Nordic countries – ecologies of mentoring and induction, 7, 151–176. Cappelen Damm Akademisk. https://doi.org/10.23865/noasp.105.ch7
- Dóra Margrét Sigurðardóttir og Guðrún Ragnarsdóttir. (2020). Fagleg forysta eða stjórnun í erli dagsins: Hlutverk og staða aðstoðarskólastjóra í grunnskólum í Reykjavík. Tímarit um uppeldi og menntun. 29(2), 2020, 91–112. https://doi.org/10.24270/tuuom.2020.29.5
- Frederiksen, L. L. (2020). Support for newly qualified teachers through teacher induction programs – a review of reviews. New teachers in Nordic countries – ecologies of mentoring and induction, 2, 49–70. Cappelen Damm Akademisk. https://doi.org/10.23865/noasp.105.ch2
- Helga Sigríður Þórsdóttir og Anna Kristín Sigurðardóttir. (2020). Samvirkni og samvinna í þróunar- og umbótastarfi. Netla – Veftímarit um uppeldi og menntun. DOI: https://doi.org/10.24270/netla.2020.2
- Hafdís Ingvarsdóttir. (2002). Lifandi tré fjölgar lengi greinum. Netla – Veftímarit um uppeldi og menntun. https://netla.hi.is/greinar/2002/005/02/index.htm
- Hargreaves, A. og Fullan, M. (2000). Mentoring in the new millennium. Theory into Practice, 39(1), 50–56. https://doi.org/10.1207/s15430421tip3901_8
- Háskóli Íslands. (e.d.). Menntavísindasvið. Starfstengd leiðsögn og kennsluráðgjöf. https://www.hi.is/sites/default/files/ingunney/hi_menntavis_starfstengdleidsogn_feb20_vefur.
- Háskóli Íslands. Menntavísindasvið. (2022). Handók kennaranema um vettvangsnám í grunnskóla. Grunn- og framhaldsnám. https://www.hi.is/sites/default/files/krigudm/handbok_um_vettvangsnam_i_grunnskola.pdf
- Helleve, I., Danielsen, A.G. og Smith, K. (2015). Does mentoring in education make a difference? Í H. Tillema, G. J. van der Westhizen og K. Smith (ritstjórar), Mentoring for learning: „Climbing the mountain“ (bls. 313–332). Sense Publisher.
- Hildur Hauksdóttir. (2018). Leiðsögn og starfsþróun – Nýliðakaffi. Menntaskólinn á Akureyri, Lokaskýrsla til Sprotasjóðs 2016-2018. https://www.rannis.is/media/2017-2018/menntaskolinn-akureyri_lokaskyrsla_7.pdf
- Hopkins, D., Harris, A., Mackay, T., Stringfield, S. og Stoll, L. (2014). School and system improvement: a narrative state-of-the-art review. School Effectiveness and School Improvement, 25(2), 257-281, https://doi.org/10.1080/09243453.2014.885452
- Hord, S. M. (1997). Professional learning communities: Communities of continuous inquiry and improvement. Southwest Educational Development Laboratory
- Hord, S. M. (ritstjóri) (2004). Learning together - leading together: Changing schools through learning communities. Teachers College Press
- Lave, J. og Wenger, E. (1991). Situated learning: Legitimate peripheral participation. Cambridge University Press.
- Lilja M. Jónsdóttir. (2012). Hitching one’s wagon to a star. Narrative inquiry into the first five years of teaching in Iceland (doktorsritgerð). http://hdl.handle.net/1946/13947
- María Steingrímsdóttir. (2007). Ofsalega erfitt og rosalega gaman. Reynsla nýbrautskráðra kennara af fyrsta starfsári. Uppeldi og menntun, 16(2), 9–27. https://timarit.is/page/5209137#page/n8/mode/2up
- María Steingrímsdóttir. (2010). Nú veit maður ef til vill út á hvað starfið gengur. Hvað segja kennarar eftir fimm ár í starfi? Uppeldi og menntun, 19(1-2), 71–90.
- María Steingrímsdóttir og Guðmundur Engilbertsson. (2018). Mat nýliða á gagnsemi leiðsagnar í starfi kennara. Netla – Veftímarit um uppeldi og menntun. https://doi.org/10.24270/netla.2018.3
- Morgan, G. (1997). Images of Organization. Thousand Oaks, CA: Sage
- Ragnhildur Bjarnadóttir. (2015). Leiðsögn: Lykill að starfsmenntun og skólaþróun. Háskólaútgáfan.
- Reykjavíkurborg. (2017). Nýliðun og bætt starfsumhverfi grunnskólakennara. https://reykjavik.is/sites/default/files/sfs_starfsumhverfi_grunnskolakennara-skyrsla_starfshops_um_nylidun_og_baett_starfsumhverfi_grunnskolakennara_i_reykjavik_2017-lok121217.pdf
- Robinson, V., Lloyd, C. A., Rowe, K. J. (2008). The Impact of Leadership on Student Outcomes. An Analysis of the Differential Effects of Leadership Types. Educational Administration Quarterly, 44(5), 635-674.
- Samband íslenskra sveitarfélaga. (2019). Fundargerð samstarfsnefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara. https://www.samband.is/media/fundagerdir-ln-og-felagsgrunnskolakennara/89_fundur_samstarfsnefndar_FG_og-SNS_21.-mai-2019_LOK.pdf
- Samband íslenskra sveitarfélaga. (2020). Fundargerð samstarfsnefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara. https://www.samband.is/wp-content/uploads/2020/07/92_fundur_samstarfsnefndar_fg_og-sns_10-07-2020_lok-1.pdf
- Sigríður Margrét Sigurðardóttir og Guðrún Ragnarsdóttir. (2023). School Leaders Within the Icelandic Education System: Complex Roles, Multilevel Relation, and Fragmented Support. Í: Gunnulfsen, A.E., Ärlestig, H., Storgaard, M. (ritstj.) Education and Democracy in the Nordic Countries. Educational Governance Research (bls. 45–59). Bindi 21. Springer, Cham. https://doi.org/10.1007/978-3-031-33195-4_4
- Smith, K. (2015). Mentoring: A profession within a profession. Í H. Tillema, G. J. Van der Westhuizen og K. Smith (ritstj.), Mentoring for learning: Climbing the mountain (bls. 283-298). Sense Publishers.
- Warsame, K. og Valles, J. (2018). An analysis of effective support structures for novice teachers. Journal of Teacher Education and Educators, 7(1), 17–42. https://files.eric.ed.gov/fulltext/EJ1207274.pdf