Leiðsagnarkennarar gegna lykilhlutverki

Gunnar Björn Melsted skrifar um leiðsagnarsamtalið sem faglegt rými: hugmyndafræðilega sýn, spurningatækni og fjarveru verkfæra í leiðsögn kennaranema.
Leiðsögn kennaranema er einn mikilvægasti hlekkurinn á milli fræðilegs náms í kennaramenntun og raunverulegrar kennslureynslu á vettvangi skóla. Í íslensku skólakerfi gegna leiðsagnarkennarar lykilhlutverki í þessari brúargerð með því að veita stuðning, skapa rými fyrir ígrundun og styðja við faglega þróun kennaranema. Rannsóknir hafa sýnt að árangursrík leiðsögn getur haft veruleg áhrif á fagvitund kennara, starfsþróun þeirra og líkur á að þeir haldist í starfi (Ingersoll og Strong, 2011; Izadinia, 2015; Keese o.fl., 2023).
Þrátt fyrir mikilvægi leiðsagnar hafa fáar rannsóknir á Íslandi beint sjónum að sjálfu leiðsagnarsamtalinu. Samtalið er þó kjarninn í leiðsögninni; þar fer fram endurgjöf, þar reynir á traust og þar mótast skilningur kennaranema á faglegum ákvörðunum sínum. Markmið rannsóknarinnar var annars vegar að greina hugmyndafræðilega sýn leiðsagnarkennara og hvernig hún birtist í samskiptum við kennaranema og hins vegar að kanna hvaða aðferðum og verkfærum leiðsagnarkennarar beita í samtölum sínum og hvernig kennaranemar bregðast við þeim.
Þátttakendur voru fjórir leiðsagnarkennarar og fimm kennaranemar í íslenskum grunnskólum. Allir leiðsagnarkennararnir höfðu lokið formlegu námi í starfstengdri leiðsögn og kennsluráðgjöf. Gögn rannsóknarinnar voru annars vegar myndupptökur af fimm leiðsagnarsamtölum sem fóru fram í kjölfar kennslu og hins vegar svör leiðsagnarkennaranna við spurningalista um hugmyndafræði og aðferðir í leiðsögn.
Gagna var aflað með myndbandsupptökum af leiðsagnarsamtölum leiðsagnarkennara og kennaranema annars vegar og rafrænum spurningalista til leiðsagnarkennara hins vegar. Svör við opnum spurningum voru greind með þemagreiningu í anda Braun og Clarke (2013), en myndbandsupptökurnar voru greindar með sérstökum greiningarramma sem þróaður var fyrir rannsóknina á grundvelli fræðilegra undirstaðna hennar. Í greiningunni var einkum horft til spurningatækni, endurgjafar, samskipta, virkrar hlustunar, ígrundunar og notkunar leiðsagnarlíkana og verkfæra. Talning og flokkun einstakra þátta var framkvæmd í anda fyrri rannsókna á myndbandsupptökum í íslensku skólastarfi (Berglind Gísladóttir o.fl., 2023; Jóhann Örn Sigurjónsson og Berglind Gísladóttir, 2020).
Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós þrjú meginþemu: hugmyndafræðilega sýn og traust sem grunn samtalsins, spurningatækni og virkni kennaranema og loks takmarkaða notkun formlegra leiðsagnarverkfæra.

Í öllum samtölunum var áberandi hlýlegt og opið andrúmsloft. Kennaraneminn var yfirleitt beðinn að meta eigin kennslu áður en leiðsagnarkennari bætti við athugasemdum eða spurningum. Samskiptin einkenndust af jafnræði og virkri hlustun og kennaranemar ræddu bæði styrkleika og veikleika kennslunnar án þess að draga sig í hlé. Þessar niðurstöður samræmast fyrri rannsóknum sem leggja áherslu á mikilvægi trausts og samhverfra samskipta í leiðsögn (Ragnhildur Bjarnadóttir, 2015; Thompson og Schademan, 2019).
Spurningatækni reyndist vera eitt helsta verkfæri leiðsagnarkennaranna. Alls greindust 36 opnar spurningar og 35 lokaðar spurningar í samtölunum. Opnar spurningar leiddu yfirleitt til lengri og ítarlegri svara og sköpuðu rými fyrir ígrundun, en lokaðar spurningar voru frekar notaðar til að skýra staðreyndir. Könnunarspurningar voru færri og komu aðeins níu sinnum fyrir. Þegar hlutverk leiðsagnarkennaranna voru greind kom í ljós að spurningar í anda leynilögreglu og fræðimanns voru algengastar, en spurningar í anda leiðsögumanns voru afar fátíðar.
Kennaranemar voru almennt virkir þátttakendur í samtölunum og komu fram með eigin greiningu á kennslunni. Í sumum tilvikum tóku þeir jafnvel frumkvæði að frekari umræðu. Þrátt fyrir þessa virkni komu þó aðeins í takmörkuðum mæli fram merki um dýpri metahugsun. Þótt kennaranemar ígrunduðu eigin kennslu og ræddu faglegar ákvarðanir sínar var sjaldan farið markvisst inn á dýpri lög ígrundunar sem tengjast sjálfsmynd, gildum og faglegri sýn kennarans, eins og Lauklíkan Korthagen og Vasalos (2005) gerir ráð fyrir.
„Samtalið er þó kjarninn í leiðsögninni; þar fer fram endurgjöf, þar reynir á traust og þar mótast skilningur kennaranema á faglegum ákvörðunum sínum“
Ein athyglisverðasta niðurstaða rannsóknarinnar var fjarvera formlegra leiðsagnarverkfæra. Þrátt fyrir að allir leiðsagnarkennararnir hefðu hlotið formlega þjálfun í leiðsögn mátti ekki greina skýra og kerfisbundna notkun þeirra líkana og verkfæra sem kennd eru í námi leiðsagnarkennara. Samtölin minntu stundum á uppbyggingu þriggja þrepa líkans Egan (1998) eða ALACT-líkans Korthagen og Vasalos (2005), en þessi líkön voru ekki notuð með meðvituðum hætti sem skipulag eða rammi fyrir leiðsagnarsamtölin. Á sama hátt var endurgjöf almennt jákvæð og styðjandi en sjaldan skipulögð samkvæmt formlegum líkönum eins og BOOST-líkaninu, samlokuaðferðinni eða reglum Pendeltons (Pendleton o.fl., 2003; Wheatley, 2023).
Niðurstöðurnar sýna að leiðsagnarsamtölin voru faglegt og styðjandi rými þar sem traust og virk þátttaka voru í forgrunni. Þetta styður fyrri rannsóknir sem leggja áherslu á mikilvægi samskipta og trausts í leiðsögn kennaranema. Á sama tíma benda niðurstöðurnar til þess að fræðileg líkön sem kennd eru í námi leiðsagnarkennara birtist ekki með skýrum hætti í framkvæmd. Jafnframt kom í ljós að þótt ígrundun eigi sér stað í samtölunum sé svigrúm til að efla dýptarígrundun og metahugsun.
Rannsóknin undirstrikar því mikilvægi þess að efla enn frekar tengsl fræða og framkvæmdar í námi leiðsagnarkennara og hvetur til frekari rannsókna á leiðsagnarsamtölum yfir lengri tíma. Jafnframt sýnir hún fram á gildi þess að greina leiðsagnarsamtöl með markvissum hætti.
Í framhaldi af rannsókninni var þróaður hagnýtur gátlisti fyrir leiðsagnarkennara. Hann má nota fyrir leiðsagnarsamtal, meðan á samtalinu stendur eða eftir samtal til að ígrunda eigin leiðsögn. Markmiðið er að styðja leiðsagnarkennara við að skapa faglegt rými í leiðsagnarsamtali þar sem kennaranemi fær tækifæri til að ígrunda eigin kennslu, tengja reynslu við fræði, greina valkosti og ákveða næstu skref. Von höfundar er að gátlistinn geti nýst bæði leiðsagnarkennurum, kennaranemum og rannsakendum sem vilja efla gæði leiðsagnar í kennaramenntun.