Leiðréttum skakkt verðmætamat!

Fréttir|24. október 2022

Konur vinna ókeypis eftir klukkan 15:15 á Íslandi.

Samkvæmt nýjustu tölum Hagstofu Íslands um launamun kynjanna eru konur með 21,9% lægri atvinnutekjur en karlar að meðaltali. Samkvæmt því hafa konur unnið fyrir launum sínum eftir 6 klukkustundir og 15 mínútur miðað við fullan vinnudag frá klukkan 9 til 17.

 

Daglegum vinnuskyldum kvenna er því lokið kl. 15:15.

 

Nú er tími til að leiðrétta skakkt verðmætamat.

Hér má lesa meira um Kvennafrí.