Leiðrétting á stöðu kennara í samfélaginu...
...áfangi hefur náðst, en gera má betur!
Ágætu félagsmenn!
Þórður Á. Hjaltested, formaður KÍ skrifar
Enn erum við landsmenn að karpa um launakjör og réttláta skiptingu þjóðartekna. Endurreisn samfélagsins eftir bankahrunið er ekki lokið. Skólastarf í landinu er enn í fjársvelti. Kennarar, eins og margir Íslendingar, hafa þessi ár frá hruni axlað ábyrgð, tekið á sig kjaraskerðingar og lagt sitt af mörkum í endurreisn landsins. Ríkisstjórnin hefur stjórnað landinu í tvö ár og boðar nú loks afnám hafta.
Við Íslendingar erum rík þjóð. Ég er þeirrar skoðunar að endurskoða þurfi skiptingu þjóðartekna milli landsmanna. Kennarar hafa lengi borið skarðan hlut frá borði. Segja má að kjarasamningar sem gerðir voru á liðnu ári sé fyrsta skrefið í átt til leiðréttingar. En það er aðeins fyrsta skrefið, því kjör kennara og stjórnenda menntastofnana þarf að bæta enn frekar. Sambærileg menntunarkrafa um meistaranám er gerð til allra þeirra sem útskrifast úr kennaranámi í dag og á það að endurspeglast í launum kennara á öllum skólastigum.
Það er grátlegt að heyra forystumenn annarra stéttarfélaga gagnrýna réttlátar hækkanir til kennara. Ég hefði haldið að þeir myndu fagna árangri kennara og taka undir réttlætið sem í því felst. Kennarar eru ekki á ofurlaunum og ná ekki enn heildarmeðaltalslaunum í landinu, þrátt fyrir hækkanir síðastliðins árs. Kennarar eru í þeirri stöðu að njóta ekki launaskriðs umfram gerða kjarasamninga eins og virðist vera með flestar stéttir, samanber niðurstöður rannsókna á launaþróun sem gerðar hefur verið síðustu tvö ár undir hatti Samstarfsnefndar um launaupplýsingar og efnahagsforsendur kjarasamninga (SALEK).
Krafan er einföld. Kennarar vilja sambærileg laun og viðmiðunarstéttir. KÍ hefur síðastliðin ár talað fyrir þjóðarsátt eða samstöðu samfélagsins um menntun og stöðu kennarans í samfélaginu. Á þessu veltur framtíð skólastarfs og menntunar í landinu og þar með framtíð þjóðarinnar.
Stjórnvöld þurfa og eiga að leggja áherslu á menntun og bera fyrir henni virðingu. Markmiðið á að vera að hækka menntunarstig þjóðarinnar, efla hugvit og verkvit og þar með mannauðinn. Þannig aukum við hagvöxt og þjóðartekjur.
Til þess að svo megi verða þarf skólakerfið stöðugt að vera í endurskoðun. Um skólakerfið þarf að vera uppbyggileg umræða með það að markmiði að gera góðan skóla enn betri. Í þeirri umræðu eigum við kennarar að taka þátt sem sérfræðingar í menntun. Við eigum að læra hvert af öðru og vera fagleg. Þannig byggjum við upp virðingu fyrir starfi okkar og skólastarfi í landinu.
Að lokum vil ég hvetja félagsmenn KÍ til að taka þátt í kröfugöngum og hátíðarhöldum á baráttudegi verkafólks 1. maí.
Með félagskveðju,
Þórður Á. Hjaltested, formaður Kennarasambands Íslands