Leiðir til þess að setja skýr og heilbrigð mörk

Valdimar Þór Svavarsson, ráðgjafi og meðferðaraðili hjá Fyrsta skrefinu, talar um mikilvægi þess að setja mörk í einkalífi og starfi í FRÆ-erindi nóvembermánaðar.
FRÆ-erindi nóvembermánaðar
Valdimar Þór Svavarsson er félagsráðgjafi, fyrirlesari og annar eigenda ráðgjafastofunnar Fyrsta skrefið. Hann hefur um árabil sérhæft sig í mannlegum samskiptum, meðvirkni, áföllum og áhrifum uppeldis á líðan fólks og haldið fjölda námskeiða og fyrirlestra um þessi málefni.
Þriðja FRÆ-erindi haustsins var frumsýnt í gær og þar talaði Valdimar Þór um mikilvægi þess að kunna að setja mörk bæði í lífi og starfi. Valdimar Þór segist hafa orðið þess áskynja, eftir að hafa um árabil verið ráðgefandi í bæði fyrirtækjum og stofnunum, að umræðuefnið mörk og markaleysi sé þarft.
„Ég hef meðal annars heimsótt fjölmarga skóla vítt og breitt um landið og hefur skólafólk deilt því með mér að áskoranirnar sem varða það að eiga í samskiptum á vinnustað tengslum, þar á meðal það að setja fólki mörk og vandamál því tengdu, hvort sem það tengist nemendum, foreldrum nemenda eða samstarfsfólki, segir Valdimar og bætir því við að það hafi verið virkilega áhugavert og lærdómsríkt að heyra af þeim áskorunum sem kennarar eru að takast á við í tengslum við þetta.
Í myndbandinu fjallar Valdimar Þór um leiðir til þess að setja skýr og heilbrigð mörk.
Valdimar Þór heldur úti hlaðvarpinu Meðvirkni-podcastið sem fjallar um meðvirkni og allt sem að henni snýr.