Leggja mat á styrkleika og þekkingu erlendra nemenda

Fréttir|27. janúar 2020

Nemendur af erlendum uppruna búa allir yfir styrkleikum og þekkingu sem mikilvægt er að skólakerfið meti og byggi ofan á. Með nýju stöðumati verður hægt að meta þessa þætti og sníða námið út frá þeim.

„Við vitum að það getur reynst erfitt að flytja í nýtt land, hefja þar nýtt líf, eignast nýja vini og aðlagast nýju samfélagi. Það á sérstaklega við um börn og ungmenni, sem þurfa þá að fóta sig í framandi umhverfi, læra nýtt tungumál og aðlaga sig nýju skólakerfi og nýjum kennsluháttum. Breytingar taka alltaf á og þá skiptir gott tengslanet máli en líka að samfélagið sé tilbúið að taka á móti nýjum íbúum og þeim verkefnum sem þeim fylgja. Til dæmis þurfa skólar að tryggja að nemendum líði vel og að þeir fái kennslu við hæfi, hvort sem þeir eru aldir upp í næsta húsi eða hinum megin á hnettinum. En er það alltaf svo?

Um síðustu aldamót bættust fimm nemendur af erlendum uppruna inn í umsjónarbekk hjá Kristrúnu Sigurjónsdóttur þegar hún starfaði sem umsjónar- og faggreinakennari í íslensku. „Ég uppgötvaði að ég hafði ekki hugmynd um hvernig ég ætti að mæta þeim. Þetta voru flottir krakkar en þeir voru ekki búnir að læra íslensku þannig að ég náði ekki að miðla kennsluefninu til þeirra. Þetta varð mér í raun ofviða,“ segir Kristrún. Hún sérhæfði sig í framhaldi í kennslu nemenda af erlendum uppruna og var til að mynda í fimmtán ár deildarstjóri móttökudeildar við Lækjarskóla í Hafnarfirði. Hún starfar nú sem kennsluráðgjafi fjölmenningar í leik- og grunnskólum Hafnarfjarðar.

Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir hefur starfað innan skólakerfisins frá árinu 2001. Hún starfar í dag sem kennsluráðgjafi í Reykjanesbæ þar sem fjórðungur íbúa er af erlendum uppruna. „Ég hef fundið að í sveitarfélaginu, og raunar víðar, þarf að halda fastar utan um nemendur af erlendum uppruna. Kennarar hafa síðustu ár ítrekað nefnt við mig að erfitt sé að staðsetja þessa nemendur og að mæta þeirra þörfum sem aftur leiddi til þess að ég fór að velta fyrir mér hvað hægt væri að gera til að auðvelda þeim verkefnið”.

Brennandi áhugi

Þar liggur ástæðan fyrir því að fulltrúi Skólavörðunnar er sestur niður með Kristrúnu og Halldóru. Brennandi áhugi og mikil þekking hefur leitt til þess að þær, ásamt hópi kennsluráðgjafa og fræðslustjóra, hafa síðustu ár unnið að verkefni sem í framtíðinni á að auðvelda skólum og einstökum kennurum að taka á móti erlendum nemendum. „Við viljum innleiða stöðumat sem er í mjög einföldu máli verklag eða tæki til að meta nemendur af erlendum uppruna sem hefja nám hér á landi,“ segir Halldóra. „Ef stöðumatinu er fylgt fáum við strax greinargóðar upplýsingar um bakgrunn nemenda, fyrri þekkingu, reynslu, styrkleika og væntingar.“

„Þetta hefur verið áhyggjuefni í langan tíma að þegar börn koma inn í skólakerfið erlendis frá þá vitum við svo lítið,“ bætir Kristrún við. „Hversu mikið kunna þau, hversu vel læs eru þau, hvernig er þeirra saga í stærðfræði o.s.frv? Við höfum ekki haft verkfæri til að meta það þannig að við höfum kannski verið að kynnast nemandanum yfir marga mánuði eða ár og reynt að staðsetja hann með efni sem er jafnvel langt yfir eða undir getu. Okkur fannst vanta verkfæri til að meta hvað þau koma með í bakpokanum ef svo má að orði komast. Hvað kunna þau þegar þau hefja nám í skólunum okkar? Ef við vitum það er framhaldið svo miklu auðveldara.“

Sænska leiðin

Vinna við stöðumatið hófst hér á landi árið 2016 eftir að Þórdís Helga Ólafsdóttir, sérkennslufulltrúi grunnskóla við Mennta- og lýðheilsusvið Hafnarfjarðar, kynntist matstækinu í Svíþjóð. Þar í landi voru kennarar, skólar og yfirvöld menntamála að glíma við nákvæmlega sama vanda og hér á Íslandi. Hversu vel nemendum vegnaði í námi stýrðist í of miklum mæli af áhuga og þekkingu kennara og skólastjórnenda í skólanum þar sem nemandinn hóf nám. Rannsóknir og mælingar, meðal annars PISA, sýndu að þessi nemendahópur stóð höllum fæti í sænska skólakerfinu, bæði náms- og félagslega. Menntamálastofnun Svíþjóðar, sérfræðingar frá háskólunum í Malmö, Stokkhólmi og Gautaborg auk þriggja sveitarfélaga komu að rannsóknum, útfærslu og innleiðingu stöðumatsins. Í Svíþjóð hefur matið þegar verið fest í lög og talsverð reynsla er komin á það. Hér á landi hefur verið settur saman stýrihópur sem vinnur að því að þýða matstækið, staðfæra það og innleiða.

„Matið byggir í raun á þremur viðtölum sem fara fram á sterkasta tungumáli nemandans og fjölskyldunnar. Í þessum viðtölum er alltaf túlkur á staðnum. Fyrsta viðtalið er við nemendur og foreldra eða forráðamenn þar sem farið er mjög ítarlega yfir fyrri þekkingu og reynslu. Í viðtali tvö er farið yfir lestrarkunnáttu og lesskilning og í því þriðja er talnaskilningur nemandans kortlagður. Í seinni viðtölunum tveim eru foreldrar ekki á staðnum,“ segir Halldóra Fríða. Hún leggur áherslu á að ekki sé um að ræða próf heldur kennslufræðilegt mat. „Þegar við metum leskunnáttu og –skilning könnum við hvort nemandinn geti fundið staðreyndir beint upp úr texta, hvort hann geti lesið á milli lína eða dregið ályktanir um efnið sem hann var að lesa. Við höfum séð dæmi um að nemendur sem kennarar hafa áhyggjur af reynast fluglæsir á eigin móðurmáli. En það var vitneskja sem kennarinn hafði ekki fyrir. Þannig að þetta gefur okkur góðar vísbendingar,“ segir Kristrún.

Fyrst stöðumat, svo kennsluáætlun

Hvert viðtal tekur um eina klukkustund og gert er ráð fyrir að undirbúningur og úrvinnsla taki samtals tvær klukkustundir til viðbótar. Stöðumatinu fylgja verkefni sem lögð eru fyrir nemendur og eru þau nú til á 39 tungumálum. Þó nemandi tali ekki eitt af þeim er engu að síður hægt að nota stöðumatið, en þá hefur túlkurinn heldur stærra hlutverk. Til viðbótar fylgja stöðumatinu eyðublöð þar sem niðurstöður úr viðtölum eru teknar saman. Með þessari samantekt er hægt að búa til grunn að kennsluáætlun fyrir nemandann.

Eins og áður sagði hefur verið stofnaður stýrihópur til að innleiða verk­efnið. Í grunninn eru það starfsmenn þriggja sveitarfélaga, Hafnarfjarðar, Reykjanesbæjar og Árborgar auk þess sem Fellaskóli í Reykjavík hefur tekið þátt í verkefninu síðastliðið ár. Menntamálastofnun aflaði nauðsynlegra leyfa og aðilar á borð við Kennarasamband Íslands, Samband íslenskra sveitarfélaga og Menntamálaráðuneytið hafa fengið kynningu. Það hafði líka mikil áhrif á framgöngu þess að verkefnið hlaut ríflega tveggja milljón króna styrk úr Sprotasjóði.

Þurfum að byggja á styrkleikum nemenda

Það er augljóst þegar rætt er við Kristrúnu og Halldóru að þær brenna af áhuga á verkefninu. Halldóra segir að vinir hennar grínist með að hún sé hætt að ganga með myndir af börnunum í veskinu því stöðumatið taki þar upp allt pláss. Kristrún bendir á að það skipti máli að nemendur finni sig sem fyrst eftir að þeir hefji nám hér á landi. „Nemandinn er kominn í nýtt skólakerfi og sjálfsmyndin tengist hans fyrri þekkingu og reynslu. En þó að nemandinn hafi ekki verið í skóla er hann samt með fullt af reynslu og styrkleikum. Ef ekki er byggt ofan á neitt sem nemandinn kann eða ef reynsla hans og þekking nýtist ekki þá hefur það gríðarleg áhrif á til dæmis sjálfsmynd. Eftir að stöðumat fer fram höfum við tækifæri til að byggja á styrkleikum nemenda og draga fram það sem þau geta nýtt sér meðan þau eru að læra íslensku,“ segir Halldóra.

„Við sjáum líka að stöðumatið tengir nemendur og foreldra strax við skólann. Þetta gerir skólann opnari og aðgengilegri fyrir nemendur og foreldrar átta sig strax á hvaða hlutverk þau hafa í skólagöngu barna sinna. Við spyrjum nemendur hvaða kennsluaðferðir kennarar notuðu í skólum sem þeir hafa sótt, hvort þau voru með námsefni, notuðu þau tækninám, kunna þau á síma, geta þau nýtt sér iPad eða aðra tækni? Og hvernig var námsmati háttað, tóku þau próf eða var það byggt á verkefnum? Unnu þau í hópum eða ein? Þetta gefur okkur mjög mikilvægar upplýsingar og við vitum þá frekar hvernig við getum lagt af stað. Þannig fær nemandi nýtt tæki í samskiptum sem getur hjálpað honum í félagslegum aðstæðum og að kynnast öðrum nemendum.“

„Tökum hópavinnu sem dæmi,“ bætir Kristrún við. „Við höfum metið nemendur sem vita ekki hvað það er enda hafa þeir fram að þessu aðeins setið í kennslustundum þar sem er bein innlögn. Við höfum líka kynnst nemendum sem hafa aldrei unnið í snjalltækjum eða skilja ekki að við gerum hér á Íslandi kröfu um að allir nemendur fari út í frímínútur. Við höfum líka dæmi um að foreldrar haldi að barnið þeirra sé ekki að sinna náminu því það komi með svo litla heimavinnu. Í stöðumatinu eru alls konar svona hlutir til umræðu.“

Uppsetningu á stöðumatinu hér á landi er ekki að fullu lokið en hægt er að nýta það engu að síður. Verið er að vinna að uppsetningu á tölvutæku formi og vonir standa til að henni verði lokið á næstu mánuðum. Þá verður efnið aðgengilegt öllum sem áhuga hafa á að nýta það. Enn er eftir að ákveða hvernig það verður gert, en rætt er um heimasíðu og opinn aðgang að PDF skjölum. Fram að því þurfa kennarar sem hafa áhuga á verkefninu að bíða eða einfaldlega setja sig í samband við þær stöllur eða einhvern í stýrihópnum sem kynntur er hér til hliðar.

 

Viðtalið birtist í Skólavörðunni, 2. tbl. 2019. 

Höfundur: Aðalbjörn Sigurðsson.