Laust starf á upplýsinga- og kynningarsviði KÍ
Fréttir|5. maí 2022

Kennarasamband Íslands auglýsir starf fulltrúa á upplýsinga- og kynningarsviði KÍ laust til umsóknar.
Kennarasamband Íslands (KÍ) óskar eftir að ráða fulltrúa á upplýsinga- og kynningarsvið. Starfið er tímabundið til eins árs með möguleika á fastráðningu að þeim tíma loknum.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Starfssvið
- Greinaskrif, framsetning og uppfærsla efnis í ritum og á miðlum KÍ og aðildarfélaga
- Umsjón með útgáfu efnis
- Skipulagning á viðburðum og fundum KÍ
- Þátttaka í ímyndar- og stefnumótunarvinnu
- Önnur verkefni í samráði við yfirmann
Hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af blaða- eða fréttamennsku er æskileg
- Áhugi og þekking á skólamálum er kostur
- Afburða íslenskukunnátta í ræðu og riti
- Reynsla af textaskrifum
- Þekking og reynsla af birtingu upplýsinga á samfélagsmiðlum
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Reynsla af ljósmyndun og myndvinnslu er kostur
Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningar-bréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna. Umsóknarfrestur er til og með 19. maí nk.
Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is