Laus störf við leikskólann Sólvelli í Grundarfirði
Langar þig að upplifa eitthvað öðruvísi? Viltu breyta til? Hvernig væri að ögra sjálfum sér og upplifa lífið í yndislegum bæ á landsbyggðinni!
Þrjá kennara vantar á leikskólann Sólvelli í Grundarfirði. Um er ræða tvær stöður deildarstjóra og eina stöðu sérkennara. Staða sérkennara er afleysingastaða í eitt ár og hefur sérkennari umsjón með allri sérkennslu í leikskólanum. Öll störfin eru 100% stöður. Leikskólinn Sólvellir er fjögurra deilda leikskóli með um 60 nemendur frá eins til sex ára. Skólinn starfar eftir viðurkenndum hugmyndum og kenningum í uppeldisfræðum.
Menntun og hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun.
- Hæfni í mannlegum samskiptum og frumkvæði í starfi.
- Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands. Störfin eru laus frá 1. ágúst 2015 eða eftir samkomulagi og er umsóknarfrestur til 20. júní n.k.
Á Sólvöllum starfa u.þ.b. 20 manns. Þar er líf og fjör og allir leggja sitt af mörkum til að gera starfið spennandi og skemmtilegt. Við vonum að þú viljir koma og taka þátt í því uppbyggingarstarfi sem hér fer fram og skorum á þig að hafa samband og jafnvel koma í heimsókn og skoða staðinn. Þú ert velkomin.
Nánari upplýsingar veitir Björg Karlsdóttir leikskólastjóri eða Ingibjörg Þórarinsdóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma 438 6645. Einnig má senda fyrirspurnir á bjorg@gfb.is.
Umsóknareyðublað er að finna á vefsíðu Grundarfjarðarbæjar.