Laus störf hjá Leikskólanum Örk Hvolsvelli
Eftirtaldar stöður eru lausar til umsóknar:
- 100% staða deildarstjóra til 1 árs vegna leyfis frá 1. júní 2014 til 1. júní 2015.
- 100% staða deildarstjóra frá 1. september 2015.
- 100% staða leikskólakennara til starfa sem og sumarafleysingu.
- 100% staða leikskólakennara/þroskaþjálfa/iðjuþjálfa vegna stuðnings við fatlaðan nemanda frá og með 1. júní.
Leikskólinn Örk er 4 deilda leikskóli þar sem starfa 92 börn og 32 kennarar og starfsmenn. Uppeldisstefna Arkarinnar byggir á hugmyndafræði hugsmíðahyggju. Hugmyndafræðin felur í sér að börnin séu leitandi og gagnrýnin og tileinki sér þekkingu og skilning með ígrundun, lausnaleit, rökhugsun og að þau læri að nýta sér það í leik og starfi og taka ígrundaðar ákvarðanir sem byggðar eru á þekkingu þeirra og gildismat.
Verkefni:
Helstu verkefni deildarstjóra og leikskólakennara eru samkvæmt starfslýsingu í kjarasamning FL og í samráði við leikskólastjóra.
Helstu verkefni stuðningsaðila eru að sinna stuðningi við fatlaðan nemanda í samráði við Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins.
Menntun:
Umsækjendur þurfa að hafa lokið leikskólakennaranámi eða tilskilinni menntun.
Reynsla af deildarstjórn er æskileg.
Hæfni:
Kennarar og starfsmenn leikskólans þurfa að búa yfir færni í mannlegum samskipum, hafa mjög góða íslenskukunnáttu, sýna frumkvæði, sjálfstæði og hafa metnað fyrir starfi sínu og vera tilbúnir að vinna að uppeldi og menntun barna á leikskólaaldri í samræmi við námsskrá og í nánu samstarfi við stjórnendur leikskólans.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags leikskólakennara.
Einnig er laus til umsóknar staða aðstoðarmanns í eldhús í 87,5 % starf
Verkefni:
Helstu verkefni aðstoðarmanns í eldhúsi eru almenn eldhússtörf, þvottur, þrif og önnur verkefni er til falla.
Menntun, reynsla og hæfni:
Starfsreynsla í mötuneyti er æskileg.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Foss.
Við hvetjum karla jafnt sem konur til að sækja um hjá okkur. Umsóknafrestur er til 1. maí n.k. Hægt er að sækja um á heimasíðu leikskólans undir flipanum Um leikskólann og svo Starfsumsóknir.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Árný Jóna Sigurðardóttir leikskólastjóri í síma 488 4270 eða með tölvupósti á leikskoli@hvolsvollur.is.
Í Rangárþingi eystra búa um 1735 íbúar í einstaklega fallegu umhverfi. Stjórnsýsla sveitarfélagsins er staðsett á Hvolsvelli. Veitt er góð þjónusta við íbúa sveitafélagsins. Þar er góður leikskóli, framsækinn grunnskóli og íþrótta- og tómstundastarf er öflugt.