Laus störf á leikskólanum Sólvöllum, Seyðisfirði

Fréttir|11. júní 2015

Deildarstjóri og leikskólakennarar óskast í fullt starf á leikskólann Sólvelli, Seyðisfirði. Um framtíðarstörf er að ræða. Leikskólinn er tveggja til þriggja deilda og eru 34 börn í skólanum í dag. Vinnutími er breytilegur á bilinu 7:45-16:30. Markmið leikskólans er að bjóða aðlaðandi, skemmtilegt og örvandi starf sem vekur gleði, forvitni og frumkvæði barnanna og eykur sjálfstæði þeirra og jákvæða sjálfsmynd. Næsta vetur verður sérstaklega unnið með leikskólalæsi og stærðfræði í samstarfi við grunnskólann á Seyðisfirði og fræðsluyfirvöld á Austurlandi. Á Sólvöllum er fjölbreyttur og skemmtilegur starfsmannahópur sem hefur metnað í að gera góðan skóla enn betri.

Hæfniskröfur:
Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi lokið leikskólakennaramenntun. Mikilvægt er að umsækjendur búi yfir færni í samskiptum, frumkvæði í starfi, sjálfstæðum og skipulögðum vinnubrögðum, stundvísi, og góðri íslenskukunnáttu.

Við munum aðstoða við útvegun húsnæðis sé þess óskað.

Seyðisfjörður er kraftmikill menningarbær sem státar af fjölbreyttu og vingjarnlegu mannlífi. Bæði leikskólinn og grunnskólinn eiga gott samtarf við Skaftfell, miðstöð lista á Austurlandi. Mikil veðursæld ríkir á Seyðisfirði. Norræna, ferja Smyril-line, kemur vikulega til Seyðisfjarðar og er bærinn mikill ferðamannabær. Á Seyðisfirði er mjög gott að ala upp börn í hóflega stóru samfélagi sem heldur vel utan um börnin sín.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Félagi leikskólakennara eða viðkomandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar um starfið veita Jóhanna Thorsteinsson leikskólastjóri í síma 863 9111 og Helga Jóhanna Oddsdóttir mannauðsráðgjafi í síma 863-5559. Umsóknir óskast sendar á netfangið helga@carpediem.is. Umsóknarfrestur er til og með 1. júlí nk. Öllum umsóknum verður svarað.