Launaþróun skoðuð í nýrri SALEK skýrslu

Fréttir|13. febrúar 2015

Laun kvenna hækkuðu meira en laun karla hjá öllum heildarsamtökum launafólks á tímabilinu nóvember 2006 til september 2014. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslunni „Í aðdraganda kjarasamninga“ sem gerð var opinber í dag en hún var unnin fyrir Samstarfsnefnd um launaupplýsingar og efnahagsforsendur kjarasamninga (SALEK). Fulltrúi Kennarasambandsins í þeirri vinnu er Oddur S. Jakobsson, hagfræðingur KÍ.

Í skýrslunni má finna gríðarlegt magn upplýsinga um launaþróun hér á landi frá árinu 2006 til loka árs 2014 en sérstök áhersla er lögð á að meta launahækkanir í kjarasamningum síðasta ár. Um þær segir m.a. “Allmikill munur er á launahækkunum frá 2013 til 2014. Hreint tímakaup framhaldsskólakennara hækkaði mest (14,6%) en minnst var hækkun á hreinu tímakaupi hjá ríkisstarfsmönnum innan BSRB (4,9%)”.


Þórður Á. Hjaltested, formaður KÍ.

„Þær tölur sem koma fram í skýrslunni staðfesta að við náðum mjög ásættanlegum árangri í kjaraviðræðum við viðsemjendur okkar í fyrra“ segir Þórður Árni Hjaltested, formaður KÍ. „Það verður þó að hafa í huga að þrjú aðildarfélög okkar, þ.e. Félag framhaldsskólekennara, Félag stjórnenda framhaldsskóla og Félag grunnskólakennara, fóru þá leið að gera langtímasamning með ákvæðum um vinnumat. Þeir samningar eru afar ólíkir öðrum samningum sem gerðir voru í fyrra og verða því ekki auðveldlega bornir saman við samninga annarra stéttarfélaga. Það er einnig mikilvægt að hafa í huga að vegna þess hversu seint var samið við tónlistarkennara, þá koma þær hækkanir ekki inn í þá útreikninga sem skýrslan byggir á“.

Í skýrslunni kemur einnig fram að ef launaþróun er skoðuð frá því í nóvember 2006 til loka september 2014 kemur í ljós að laun ríkisstarfsmanna í stéttarfélögum innan ASÍ hafa hækkað mest, en laun starfsmanna í aðildarfélögum BSRB hjá sveitarfélögum hækkuðu minnst. 

„Í skýrslunni er auðvitað að finna mikið magn mikilvægra upplýsinga en hún nær ekki, frekar en nokkur skýrsla, að teikna upp heildarmynd af launaþróun kennara síðustu ár né hvernig kennarar standa þegar kjör þeirra eru borin saman við aðra sérfræðinga sem starfa hjá hinu opinbera. Engu að síður hvet ég alla til að kynna sér niðurstöðuna og fagna því að þessu samstarfi aðila vinnumarkaðarins, sem komið var á fyrir tveimur árum, hafi verið viðhaldið og að nefndin hafi skilað af sér þessari mikilvægu skýrslu“ segir Þórður Árni Hjaltested, formaður KÍ.

Þeir sem vilja kynna sér skýrsluna geta nálgast hana hér. 

Um SALEK

Samstarfsnefnd um launaupplýsingar og efnahagsforsendur kjarasamninga (SALEK) var stofnuð með samkomulagi stærstu aðila á vinnumarkaði 11. júní 2013. Að nefndinni standa fern heildarsamtök launafólks, þ.e. ASÍ, BHM, BSRB og KÍ sem og vinnuveitendamegin SA, Samband íslenskra sveitarfélaga og fjármála- og efnahagsráðuneytið. Markmið samstarfsins er að bæta vinnubrögð við undirbúning kjarasamninga og auka skilvirkni við gerð þeirra.


Oddur S. Jakobsson, hagfræðingur KÍ, á blaðamannafundi í morgun þar sem SALEK skýrslan var kynnt. Til hægri á myndinni er Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.