Launamiðar ekki sendir heim

Fréttir|13. mars 2014

Eins og síðustu ár verða launamiðar vegna styrkja ekki sendir heim til félagsmanna heldur sendir rafrænt til skattstjóra og allar upphæðir forskráðar á framtöl þeirra sem fengið hafa greiðslur úr sjóðum KÍ.

Launamiðar eru þó sendir í tölvupósti til þeirra félagsmanna sem eru með skráð netfang í félagakerfi KÍ. Nánari upplýsingar vegna styrkja er að finna hér og eins má lesa sig til á vef Ríkisskattstjóra.