Launajafnrétti

Fréttir|24. október 2016

Launamun kynjanna í dag má fyrst og fremst skýra með kynskiptum vinnumarkaði.

Störf sem hingað til hafa verið flokkuð sem hefðbundin kvennastörf hafa verið og eru lægra launuð en önnur.

Tvær lausnir eru á þessum vanda.

  1. Fjölga karlmönnum í störfum sem hingað til hafa verið flokkuð sem hefðbundin kvennastörf. Það er tímafrekt og svo virðist sem samfélagið sofi bara ágætlega þrátt fyrir að karlar sinni síður þeim störfum sem flokkuð eru sem hefðbundin kvennastörf.
  2. Hækka laun þeirra stétta sem sinna þeim störfum sem flokkuð hafa verið sem hefðbundin kvennastörf. Það væri fræðilega hægt að gera á eftir.

Til hamingju með daginn.