Launafólk sýnir samstöðu með Palestínu

Kennarasamband Íslands, ASÍ og BSRB senda frá sér sameiginlega yfirlýsingu og draga fána Palestínu að húni en 100 dagar eru nú liðnir frá upphafi núverandi hernaðaraðgerða Ísraela á hendur Palestínumönnum á Gaza.
Hér er hægt að lesa tilkynningu félaganna í heild:
Launafólk sýnir samstöðu með Palestínu 15. janúar 2024
Mánudaginn 15. janúar verða 100 dagar liðnir frá upphafi núverandi hernaðaraðgerða
Ísraela á hendur Palestínumönnum á Gaza, sem hófust í kjölfar árásar Hamas-samtakanna
7. október. Á þessu tímabili hefur her Ísraels drepið yfir 30.000 íbúa Palestínu, þar á af 12 -
15.000 börn, rústað nauðsynlegum innviðum og hrakið nær alla íbúa Gaza á flótta á mjög
takmörkuðu landsvæði sem hefur verið í herkví sl. 17 ár.
Af því tilefni hafa heildarsamtök og félög launafólks ákveðið sýna samstöðu með því að
flagga palestínska fánanum. Verður fáninn dreginn að húni kl. 12:00 á hádegi.
Verkalýðshreyfingin er hreyfing lýðræðis, mannréttinda og friðar á alþjóðavísu og fjöldi
systursamtaka okkar um gervallan heim beita nú einnig afli sínu til að binda enda á
hörmungarnar.
Ekkert útlit er fyrir hlé á núverandi árásum, auk þess sem spennan eykst á vesturbakkanum
dag frá degi. Með þessari táknrænu aðgerð, þegar 100 dagar eru liðnir frá upphafi átakanna vilja samtökin sýna almenningi í Palestínu stuðning auk þess sem við skorum á íslensk stjórnvöld að beita sér af auknum þunga í þágu lausnar á átökunum, á hvern þann hátt sem mögulegt er.
