Laun leikskólakennara verði samkeppnisfær

Fréttir|22. maí 2018

Sjöundi aðalfundur Félags leikskólakennara, sem fór fram dagana 14. og 15. maí 2018, beinir því til sveitarfélaga og annarra rekstraraðila að nauðsynlegt er að gera laun leikskólakennara samkeppnisfær við laun annarra sérfræðinga á markaði ef takast á að auka nýliðun í stéttinni.

Sjöundi aðalfundur Félags leikskólakennara, sem fór fram dagana 14. og 15. maí 2018, beinir því til sveitarfélaga og annarra rekstraraðila að nauðsynlegt er að gera laun leikskólakennara samkeppnisfær við laun annarra sérfræðinga á markaði ef takast á að auka nýliðun í stéttinni. Þetta kemur fram í ályktun sem var samþykkt á aðalfundinum. 

Í greinargerð með ályktuninni segir að laun leikskólakennara þurfi og eigi að vera hærri svo takast megi að fjölga leikskólakennurum. „Það er því miður svo að menntun á Íslandi er almennt ekki metin nægilega vel til launa. Launagögn Hagstofunnar frá 2016 sýna að ríkið er að greiða sínum sérfræðingum hærri laun en sveitarfélögin og svo er almenni markaðurinn að greiða sínum sérfræðingum hærri laun en ríkið. Eins sýna sömu launagögn að meðal regluleg laun leikskólakennara ná ekki meðallaunum í landinu,“ segir í greinargerðinni. 

Ályktunin í pdf

Fleiri ályktanir og gögn frá aðalfundi 2018