Langlundargeðið á þrotum
Fréttir|28. ágúst 2014
Næsti samningafundur FSL og samninganefndar sveitarfélaga verður haldinn hjá ríkissáttasemjara klukkan 10 mánudaginn 1. september. Viðræður síðustu vikna hafa gengið hægt en fundurinn verður sá sjöundi í röðinni undir stjórn ríkissáttasemjara.
Ljóst er að félagsmenn FSL hafa áhyggjur af stöðunni og að langlundargeð þeirra er á þrotum. Margir hyggjast nýta kaffihlé sitt á mánudagsmorgun til að sýna samninganefnd félagsins samstöðu með því að mæta fyrir framan húsnæði Ríkissáttasemjara klukkan 9:45.