Læsisvefur - verkfærakista fyrir kennara

Fréttir|18. febrúar 2020

Töluvert af efninu hefur ekki verið útfært á íslensku áður og standa vonir til að efni vefsins verði mikilvægt innlegg til eflingar lestrarkennslu, lestrarmenningar og læsis.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra opnaði nýjan Læsisvef Menntamálastofnunar með góðri aðstoð nemenda í Krikaskóla. Á vefnum má finna fjölbreytt efni til eflingar lestrarkennslu og læsis. Við gerð fyrsta áfanga vefsins er sjónum einkum beint að lestrarkennslu og lestrarnámi en á honum er að finna fræðilega umfjöllun um grunnþætti læsis, þjálfunarefni, gátlista og íhlutunarefni. Stærstur hluti vefsins inniheldur kennsluaðferðir sem henta vel til að gera lestrarkennslu og nám fjölbreytt og áhugavert.

Í frétt á vef Menntamálastofnunar kemur fram að við val á aðferðum var ekki aðeins horft til byrjenda í lestri heldur má finna á vefnum aðferðir sem gagnast nemendum á öllum skólastigum. Það er mjög mikilvægt að formlegri lestrarkennslu ljúki ekki fyrr en nemendur búa yfir nægilegri lestrarfærni til að komast yfir lesefni í grunnskóla og framhaldsnámi en þeir þurfa jafnframt að kunna leiðir til efla orðaforða sinn og beita fjölbreyttum lesskilningsaðferðum í glímu sinni við allar tegundir texta. Töluvert af efninu hefur ekki verið útfært á íslensku áður og standa vonir til að efni vefsins verði mikilvægt innlegg til eflingar lestrarkennslu, lestrarmenningar og læsis.


Vefinn má finna á slóðinni www.laesisvefurinn.is.