Læsi og vinnumat á Skólaþingi sveitarfélaga

Fréttir|1. október 2015

Skólaþing sveitarfélaga verður haldið á Hilton Reykjavík Nordica hótelinu í Reykjavík mánudaginn 2. nóvember næstkomandi. Þingið er hugsað sem vettangur um stefnumótun sveitarfélaga í skólamálum, til upplýsingamiðlunar og umræðu um stöðu, áherslur og þróun skólamála. Gert er ráð fyrir virkri þátttöku þinggesta í umræðuhópum. Þingið stendur frá 9.30 til 16. 

Markhópur þingsins samanstendur af sveitarstjórnarfólki og starfsfólki og stjórnendum skólamála í sveitarfélögum, fulltrúum mennta- og menningarmálaráðuneytis, fulltrúum foreldra, háskóla og annarra áhugasamra um menntamál.

Skólaþinginu verður skipt upp í tvo hluta. Fyrri hlutinn nefnist „Læsi – metnaðarmál ríkis og sveitarfélaga“, en þar verður m.a. fjallað um Hvítbók mennta- og menningarmálaráðuneytisins og um byrjendalæsi sem mjög hefur verið í umræðunni undanfarið.

Seinni hlutinn, sem fram fer eftir hádegi, verður helgaður vinnumati grunnskólakennara. Þar munu fulltrúar sveitarstjórnarmanna, kennara og skólastjóra segja frá sinni reynslu af vinnumatinu og í framhaldinu munu umræðuhópar ræða málin sín á milli.

Fundarstjórarar verða Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði, og Ragnar Þorsteinsson, fyrrverandi fræðslustjóri í Reykjavík.

Þátttökugjald á ráðstefnuna er 9.000 krónur en innifalið eru ráðstefnugögn, hádegisverður og kaffi.

Skráning á Skólaþing. 

Dagskrá Skólaþings.