Læsi í leikskóla
Það eru fjölmargar leiðir sem hægt er að fara til að efla læsi leikskólabarna og tækifærin eru mýmörg. Í gegnum leik gefast ýmis tækifæri til að hafa jákvæð áhrif á þróun læsis hjá börnum. Lykillinn er að nota þau tækifæri sem gefast í öllu starfi leikskólans til að leggja grunn að læsi og þá sérstaklega hljóðkerfisvitund, lesskilning og orðaforða.
Þórunn Hafsteinsdóttir skrifar
Nám í gegnum samskipti barna, þ.e.a.s. að börn læri hvert af öðru, er mikilvægt og því þarf áhersla að vera lögð á umræður, hópavinnu og samvinnu barna og fullorðinna. Jafnframt þarf að skapa aðstæður þar sem börn nálgast viðfangsefnið, læsi, út frá mismunandi sjónarhornum og vinna með það á fjölbreyttan hátt. Aðferðir eins og samræður, frásagnir, leikir, söngur, skapandi vinna og vettvangsferðir eru tilvaldar til að nýta í þemanám og efla hljóðkerfisvitund, orðaforða og lesskilning barna.
Hér koma nokkrar hugmyndir og verkefni sem hægt er að nýta í leikskólastarfinu og efla grunn að læsi barna. Sveigjanleiki er mikill og því er ekki nauðsynlegt að allir vinni nákvæmlega eins með hugmyndirnar heldur ætti að sníða þær að stefnu og skipulagi hvers leikskóla fyrir sig. Einnig getur hver og einn leikskólakennari nýtt sér markmið hvers verkefnis með eigin útfærslum. Leitast er við að hafa fjölbreytt verkefni sem reyna á hina ýmsu hæfileika.
Til eru leikir sem efla grófhreyfingar, hlustunarskilning og um leið orðaforða tengdan líkamanum, hreyfingum, hugtökum og hlutum. Fyrirmæli eru gefin þar sem börnin eiga að hreyfa líkamann eða ákveðinn líkamshluta. Þau börn sem ekki skilja orðin geta þá hermt eftir hinum og þannig smám saman aukið orðaforða sinn. Markmið leikja getur verið að efla hlustunarskilning og einbeitingu um leið og ný orð og hugtök eru kennd.
Leikir sem taka til þessara þátta og efla orðaforða og skilning eru til dæmis: Hóký póký, flöskustútur, Jósep segir og 1-2-3-4-5 Dimmalimm (úrval af ýmsum leikjum er hægt að finna á leikjavefnum).
Örsögur: Börnunum eru sagðar sögur sem eru jafnvel bara ein setning og eiga síðan að svara spurningum um þær. Dæmi um örsögu: „Jóhann bjó til snjókarl á laugardaginn.” Börnin eru svo spurð út í söguna: Hvað heitir strákurinn, hvað bjó hann til, hvaða dag bjó Jóhann til snjókarl?
Þemakassar fyrir hlutverkaleiki. Kassar eru útbúnir með ákveðnu þema, eins og t.d. skrifstofuleikur þar sem í boði eru t.d. pappír, skriffæri, sími, stílabækur og tölva; veitingastaður þar sem eru ýmis matvæli, matseðill, kokkabúningur, svunta og leikpeningar; pósthús með umslögum, pappír, skriffærum og póstkassa. Með því að nota lestur og skrift í leikjum sínum sjá börnin tilgang þess og uppgötva hvernig ritmálið virkar.
Bókalestur: Bækur eru valdur út frá ákveðnu innihaldi. Ef áhersla á að vera á fjölskyldugerð er t.d. hægt að lesa um Einar Áskel, Línu langsokk og Rauðhettu. Umræður um innihald út frá fjölskyldugerð. Hvar var mamma Einars Áskels? Eða foreldrar Línu? Eða pabbi hennar Rauðhettu?
Teikningar: Börnin teikna eða mála mynd úr sögunni. Þarna kemur oft fram það sem þeim fannst áhugaverðast og einnig skilningur þeirra á sögunni sjálfri.
Ljóðabækur og bækur sem ríma: Þar má nefna kvæði eftir Þórarin Eldjárn, bækur eftir Ragnheiði Gestsdóttur, Vísnabókina, Fröken Kúlu kónguló og fleiri kvæði og bækurnar um Greppikló og Greppibarnið.
Spil og leikir: Margvísleg spil og leikir geta hentað til að efla hljóðkerfisvitund, orðaforða og lesskilning barna.
Leir: Búa til leir frá grunni með börnunum og hafa þá uppskriftina hjá sér til að fara eftir. Leyfa börnunum að búa til sögupersónur úr leirnum, hluti eða hvað sem viðkemur því sem unnið er með. Einnig er hægt að leira stafi og orð.
Söngur: Kenna ætti börnunum margs konar söngva því það eykur fjölbreytni og áhuga, og þá gjarnan gamla þjóðsöngva í bland við nýrri lög. Ýmis nafnalög eru til sem efla hljóðkerfisvitund og má þar nefna lög eins og Nú skulum við segja hvað við heitum og ____ datt í kolakassann. Til að efla orðaforða og skilning henta t.d. lögin Eyjafjörður er fagur, eftir Stefán Vilhjálmsson, og Þúsaldarljóð, eftir Sveinbjörn I. Baldvinsson. Dagur íslenskrar tungu er haldinn hátíðlegur á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, 16. nóvember, og hafa margir leikskólar unnið ýmis verkefni tengd þeim degi.
Þulur: Að hlusta á þulur er þáttur í því að kynna fyrir börnunum mismunandi gerðir tónlistar og flutnings. Takturinn eða hrynjandin sem börnin skynja í gegnum þulurnar tengist tónlist á ákveðinn hátt. Börnin geta slegið taktinn með hljóðfærum eða líkama sínum. Einnig eru til þulur með ákveðnu lagi.
Taktur: Klappa atkvæði í orðum og klappa taktinn, t.d. við ýmis lög og þulur. Til að efla hljóðkerfisvitund og takt er hægt að fara í leikinn Hver stal kökunni úr krúsinni í gær, eða kenna þulur til að telja úr eins og Úllen dúllen doff, Ugla sat á kvisti og Eni meni ming mang.
Hljóðkerfisvitund: Hlusta á hljóðin í umhverfinu og náttúrunni og aðgreina þau, s.s. fuglasöngur, fótatak, sjávarniður, vindurinn o.fl. Hægt er að leyfa börnunum að hafa t.d. kínaprjóna til að slá á hina ýmsu hluti sem við rekumst á í vettvangsferðinni, t.a.m. ljósastaura, ruslatunnur, steina og bekki.
Orðaforði og lesskilningur: Velta fyrir sér orðum um veðurfar, fuglategundir, dýrategundir, heiti í umhverfinu, s.s. hóll, hæð, fjall og mói o.s.frv. Enn fremur er kjörið að skoða ýmis konar ritmál sem fyrir augu ber í vettvangsferðum, eins og götuheiti, heiti fyrirtækja og stofnana, húsnúmer og bílnúmer.
Margar af þessum hugmyndum framkvæma leikskólakennarar nú þegar, og eru sumir eflaust meðvitaðir um hvaða þætti hjá barninu þeir eru að efla með þeim meðan aðrir eru ómeðvitaðir um það. Mikilvægt er að leikskólakennarar hafi fagmennsku í fyrirrúmi og séu meðvitaðir um þann fræðilegan grunn sem vinna þeirra byggist á. Með því móti eykst skilningur á mikilvægi þess að efla læsi barna og störf leikskólakennara verða markvissari. Þess má einnig geta að þó að hugmyndirnar séu settar fram í tengslum við það starf sem fram fer í leikskóla má nýta þær á öðrum skólastigum.
Það eru margir þættir sem hafa áhrif á læsi. Telja verður nauðsynlegt að þeir sem sinna börnum og námi þeirra séu meðvitaðir um þessa þætti og hafi jafnframt í huga að börn læra ekki öll á sömu forsendum. Til að koma til móts við þarfir barnanna er nauðsynlegt að þekkja þau vel, getu þeirra og áhugasvið. Þannig geta leikskólakennarar leiðbeint þeim og veitt þann stuðning sem börnin þurfa á að halda.
Fjölbreytt nálgun og margvísleg verkefni sem reyna á mismunandi þætti eru lykilatriði til að mæta þörfum hvers og eins barns. Með góðri þekkingu á fræðunum, fjölbreyttum kennsluháttum og margvíslegum verkefnum ætti leikskólakennari að vera betur í stakk búinn til að mæta ólíkum þörfum nemenda.
Þórunn Hafsteinsdóttir
leikskólakennari í Tröllaborgum, Akureyri.