Lært með Google
Í Google Classroom geta kennarar deilt verkefnum með nemendum, fylgst með framvindu þeirra, skrifað athugasemdir við skjölin, hvatt þá áfram og leiðbeint.
Karl Eskil Pálsson skrifar:
„Þetta hófst allt saman með því að við sáum kynningu Hans Rúnars Snorrasonar, kennara í Hrafnagilsskóla, um Google umhverfið í skólastofunni. Í kjölfarið kom hann til okkar og kynnti fyrir okkur Google for Education umhverfið. Skemmst er frá því að segja að kynningin hafði mikil áhrif á kennara skólans sem sáu óendanlega möguleika opnast með því að innleiða umhverfið,“ segir Kristín Jóhannesdóttir skólastjóri Oddeyrarskóla á Akureyri. „Það hefur lengi verið kallað eftir breytingum á kennsluháttum á sviði upplýsingatækni í skólastarfi og sjálf er ég sannfærð um að með notkun á Google séum við skrefi nær því markmiði. Kennarar, nemendur og foreldrar hafa tekið þessari innleiðingu fagnandi, þannig að áhuginn er sannarlega til staðar.“
Þreyttir á USB lyklum
Tveir kennarar við skólann tóku að sér að stýra Google verkefninu, þær Linda Rós Rögnvaldsdóttir og Kristín Bergþóra Jónsdóttir. Þær sóttu ráðstefnu á vegum Google for Education í Stokkhólmi ásamt deildarstjóra og öðrum kennara skólans. Áður voru gögn bundin á hörðum diskum innan veggja skólans og upplýsingatæknikennsla ekki í takt við tímann.
„ Munurinn er mikill, það er bara þannig. Með þessum forritum er hægt að hlaða inn fjölda viðbóta, sem auka notkunarmöguleikana til mikilla muna. Auk þess vistar Google allt sjálfkrafa, sem kemur í veg fyrir að gögn eyðist eða týnist. Með þessari innleiðingu geta allir notendur deilt skjölum á milli sín og unnið saman í einu skjali, þrátt fyrir að vera ekki í sömu tölvunni. Eins er hægt að vinna hvar og hvenær sem er og í hvaða búnaði sem er. Kennararnir geta líka fylgst vel með og veitt endurgjöf og umsagnir á meðan nemendurnir vinna að sínum verkefnum. Auk þess er afar auðvelt að halda utan um námsmat í þessu kerfi, sem er líka mikill munur frá því sem áður var,“ segir Linda Rós.
Kristín segir að tölvunotkun aukist í öðrum námsgreinum og því gefist tækifæri til að samþætta kennslu í flestum greinum.
„Það er endalaust hægt að bæta við í þessum efnum og möguleikarnir eru gríðarlegir. Í upphafi voru það kennararnir sem könnuðu hugsanlegar leiðir, en markmiðið var að bæta upplýsingatækni í skólastarfinu. Við vorum sammála um að nauðsynlegt væri að allir kennarar væru með strax frá upphafi og síðan allir nemendur. Skemmst er frá því að segja að kennararnir tóku þessari leið strax mjög vel, enda voru margir þreyttir á USB lyklum, hörðum diskum og takmörkuðu geymslurými. Sú staðreynd að margir geta unnið í sama skjalinu á sama tíma heillaði líka alla.
Sjálfur undirbúningurinn tók ekki langan tíma og nemendurnir voru virkjaðir tiltölulega fljótlega, enda er umhverfið ekki flókið. Þetta gerðist sem sagt allt saman á leifturhraða hjá flestum.“
Ævintýrið rétt að hefjast
Þær Kristín Bergþóra og Linda Rós segja að nemendurnir hafi strax tileinkað sér Google umhverfið.
Nemendurnir hafa tekið Google verkefninu fagnandi
„Nemendurnir tala um að þægilegt sé að geta unnið saman á mörgum tölvum í sama skjalinu og þeim finnst líka gott að vita að kennararnir fylgjast með framvindu mála með rafrænum hætti. Nemendurnir geta með öðrum orðum náð sambandi við kennarana hvenær sem er og það er auðvitað mikill og stór kostur. Í Google Classroom geta kennarar deilt verkefnum með nemendum, fylgst með framvindu þeirra, skrifað athugasemdir við skjölin, hvatt þá áfram og leiðbeint. Að vinnu lokinni geta kennarar metið verkefni með matskvörðum sem hlaðið hefur verið inn í umhverfið. Nemendur fá því að lokum mat verkefnisins sjálfkrafa inn á skjalið sjálft og um leið fær kennarinn sérstakt skjal með mati allra nemendanna. Þannig er auðvelt að halda utan um námsmatið inni í kerfinu.“
Kristín og Linda Rós segja að ævintýrið sé rétt að hefjast og margir möguleikar séu fyrir hendi sem enn hafa ekki verið virkjaðir.
„Já, sannarlega. Til dæmis að vinna með heimasíður í gegnum Google Sites. Það kerfi er einfalt í notkun og býður upp á mikla möguleika. Þar er til dæmis hægt að þjálfa nemendur í uppbyggingu vefsíða og einnig er hægt að búa til rafrænar námsmöppur eða ferlimöppur þar sem haldið er utan um námsferil hvers nemanda með sýnishornum af verkefnum og ýmsum viðfangsefnum sem hann hefur tekið sér fyrir hendur á námstímanum. Það er auðvelt að setja inn kennslumyndbönd og stærðfræðikennsla er klárlega skemmtileg í þessu umhverfi. Við erum líklega ekki á byrjunarreit, en það er ábyggilegt að gatan í þessu kerfi er löng. Við höfum tileinkað okkur vinnubrögðin og það er mikils virði.“
Minni pappír
Google umhverfið er gagnlegt í starfsmannahópnum, þar sem vinnu og hugmyndum er deilt með þeim sem hentar hverju sinni. Tíminn nýtist mun betur en áður.
„Það er afskaplega auðvelt að senda út kannanir til markhópa og umhverfið safnar og heldur utan um þátttöku og niðurstöður. Þetta kerfi getur líka verið hentugt þegar nemendur velja til dæmis viðfangsefni á útivistardegi, þá er hægt að láta kerfið safna saman niðurstöðum nemenda og hægt er að raða í hópa á augabragði,“ segja Kristín Bergþóra og Linda Rós.
Þær eru sannfærðar um að fleiri skólar gangi til liðs við Google í framtíðinni.
„Já, það er alveg öruggt, Google býður upp á frítt ótakmarkað gagnamagn fyrir notendur, þannig að þetta er ódýr leið, svo ekki sé minnst á allan pappírssparnaðinn.
Aðrir skólar áhugasamir
Kristín Jóhannesdóttir skólastjóri Oddeyrarskóla.
Kristín skólastjóri segir að foreldrar hafi yfirleitt tekið Google vel.
„Já, ég heyri ekkert annað en jákvæðar raddir og skólaráðið styður okkur heilshugar. Auðvitað þykir sumum foreldrum þetta svolítið ógnvænlegt í byrjun og líklega þarf að efna til fræðslufunda fyrir þá í framtíðinni. Eftir því sem tíminn líður er ég samt sem áður ekki frá því að foreldrar séu smátt og smátt að læra á þetta umhverfi. Ég er sannfærð um að þeir verða vel með á nótunum í framtíðinni. Skólastjórar eru áhugasamir og við höfum verið fengnar til að kynna þetta rafræna nám í öðrum skólum hérna fyrir norðan. Miðað við áhuga og undirtektir hef ég trú á að notkun á Google for Education breiðist hratt út. Það verða því örugglega margir sem læra með Google á næstu árum.“
Kristín segir að á döfinni sé að heimsækja breska skóla sem hafa náð langt í innleiðingu á upplýsingatækni í skólastarfi. Þannig fáist vonandi innsýn í fleiri notkunarmöguleika í þessum efnum og tengsl verði mynduð við skóla sem hafa náð langt í þessari innleiðingu.
Greinin birtist í Skólavörðunni, tímariti Kennarasambands Íslands. Lestu tímaritið hér: