Lærdómur úr norrænu samstarfi

Fréttir|30. desember 2025
Burðarmynd (1)

Leiðsögn er hornsteinn þess að sporna við kennaraskorti. Nauðsynlegt er að leggja fyrst áherslu á að halda kennurum í starfi, svo er hægt að huga að ráðningum. Jónína Hauksdóttir, varaformaður Kennarasambandsins, rekur lexíur úr norrænu samstarfi.

Tölur um brotthvarf kennara eru áhyggjuefni. Á Íslandi höfðu næstum 40% nýútskrifaðra kennara frá árinu 2009 yfirgefið starfið eftir 10 ár og hlutfall nýliða sem hætta hefur aukist úr 28% árið 2010 í 33% árið 2019. Þróunin er svipuð í öðrum norrænum ríkjum, sem og í Eistlandi, og bendir til þess að vandinn liggi dýpra en svo að bætt launakjör og starfsaðstæður leysi vandann.

Samstarf NTI (Nordic Teacher Induction) hefur leitt í ljós að einn mikilvægasti liðurinn í því að bæta úr skorti á kennurum felst í því að sporna við og draga úr brotthvarfi kennara úr starfi, ekki síst á fyrstu árunum, þeim veigamiklu árum þar sem líkurnar á brottfalli eru mestar.

Ein árangursrík leið til þess er að tryggja nýliðum starfstengda leiðsögn, en rannsóknir sýna að leiðsagnarkennarar eru einkar mikilvægur þáttur í velgengni nýliða í kennslu. Leiðsagnarkennarar auka starfsöryggi nýrra kennara, hjálpa þeim að þróa með sér góðar kennsluaðferðir, hafa jákvæð áhrif á námsárangur nemenda og geta dregið verulega úr brotfalli á fyrstu árum nýliða í starfi.

Margþætt hlutverk leiðsagnarkennarans

Til að leiðsögn skili árangri er þó nauðsynlegt að hún sé hluti af skipulögðu og skýru móttökuferli innan skólans með vel skilgreindum markmiðum og væntingum frá upphafi. Mikilvægi leiðsagnarkennara skýrist einnig að miklu leyti af því hve fjölþætt og víðfeðmt hlutverk þeirra er. 

Leiðsagnarkennarinn veitir faglegan stuðning, eins og ráðgjöf um kennsluaðferðir, námskrárvinnu og bekkjarstjórnun. Hann hjálpar nýliðum að þróa með sér árangursríkar kennsluaðferðir sem byggja á rannsóknum og bestu starfsvenjum.

Leiðsagnarkennarinn veitir tilfinningalegan stuðning. Hann hjálpar nýliðum að takast á við þá streitu og óvissu sem getur fylgt því að stíga fyrstu skrefin í starfi. Vissan um að reynslumikill kennari sé til staðar til að veita hvatningu og stuðning er ómissandi.

Leiðsagnarkennarinn veitir aðstoð við skipulagningu og hagnýta starfsþætti; leiðbeinir um vinnuferla skólans, skýrslugerð, foreldrasamskipti og aðra þætti starfsins sem þarf að skipuleggja - þætti sem ekki endilega eru kenndir í náminu en leika stórt hlutverk í daglegu starfi kennarans.

Leiðsagnarkennarinn aðstoðar við tengslamyndun. Hann kynnir nýliða fyrir samstarfsfólki og auðveldar inngöngu í skólasamfélagið. Að þekkja rétta fólkið og vita hvert á að leita getur sparað marga erfiða stundina.

Leiðsagnarkennarinn miðlar þekkingu, deilir reynslu og „óskrifuðum” reglum sem geta verið afgerandi fyrir velgengni í starfi.

„Þegar skólinn lítur á mistök sem námstækifæri fá nýliðar tækifæri til að prófa sig áfram í öruggum aðstæðum“

Skipulagður og hversdagslegur stuðningur – bæði betra

Árangursríkt leiðsagnarferli inniheldur bæði formlega og óformlega þætti. Formlegir þættir starfstengdrar leiðsagnar fela í sér skipulagðar samtalslotur; reglulegar (t.d. vikulegar eða mánaðarlegar) samræður þar sem leiðsagnarkennari og nýliði ræða framvindu í starfi, áskoranir og mögulegar lausnir. Samræðurnar eru fyrirfram ákveðnar og báðir aðilar hafa því tíma til undirbúnings.

Annar mikilvægur þáttur er vettvangsathuganir og endurgjöf frá leiðsagnarkennara, þ.e. skipulögð tækifæri þar sem leiðsagnarkennari fylgist með kennslu nýliða og veitir uppbyggilega endurgjöf, eða öfugt, að nýliði fylgist með og læri af kennslu reyndra kennara.

Loks er svo samfélag jafningja, þ.e. tækifæri fyrir nýliða til að hitta aðra í sambærilegri stöðu og deila reynslu sinni á hópfundum innan eða utan skóla, mikilvægur hlekkur í keðjunni.

Óformlegir þættir felast í hlutum á borð við daglegan almennan stuðning. Þótt formlegar samræður séu mikilvægar er daglegur óformlegur stuðningur ekki síður nauðsynlegur. Að geta spurt fljótt og einfaldlega um hagnýt mál skapar öryggi.

Félagslegt samhengi, að vera hluti af samstarfsfólki umfram formlega fundi, hjálpar nýliðum að skilja betur menningu skólans og byggja upp tengslanet.

Bestu námstækifærin felast svo í sjálfssprottnum lærdómsaugnablikum sem verða í daglegum aðstæðum þar sem leiðsagnarkennari og nýliði vinna saman.

Skólasamfélagið leikur líka hlutverk

Það þarf þó meira til en leiðsagnarkennara til að auka líkurnar á að nýliðar haldist í starfi, þætti sem taka til skólasamfélagsins í heild.

Þátttaka nýliða í faglegu námssamfélagi innan skólans er mikilvæg, svo sem tækifæri til samvinnu með reyndum kennurum, að fá að spreyta sig í teymiskennslu eða vinna undirbúningsvinnu og námsmatsgerð í sameiningu. Regluleg endurgjöf á kennslu og hvatning er stór þáttur og tekur til fleiri en aðeins leiðsagnarkennara.

Faglegur stuðningur, svo sem aðgengi að sérfræðingum í kennslufræðum, faglegum björgum, námsefni og tækifærum til símenntunar, er annar stór þáttur.

Loks er mikilvægt að nýliði upplifi stuðning frá stjórnendum. Uppálagt er að skólastjórnendur setji skýra stefnu um stuðning við nýliða og bjóði upp á regluleg samtöl við stjórnendur um líðan og framvindu í starfi. Þá þarf að gæta að því að vinnuálag sé viðeigandi og tími gefinn til ígrundunar og undirbúnings.

„Bestu námstækifærin felast í sjálfssprottnum lærdóms augnablikum hversdagsins“

Mikilvægi skólamenningar

Annar mikilvægur þáttur í farsælli móttöku nýliða, sem tekur til skólasamfélagsins alls, er góð skólamenning. Raunar komst NTI-samstarfsverkefnið að þeirri niðurstöðu að skólamenning og leiðtogahæfileikar skólastjórnenda skiptu jafnmiklu máli og formlegt leiðsagnarkerfi.

Skólar sem ná að halda í nýliða umfram aðra einkennast af:

Samvinnumenningu. Skólamenningu sem hvetur til samvinnu fremur en einangrunar, þar sem kennarar deila reynslu, vinna saman að lausnum og styðja hver annan.

Faglegum námssamfélögum. Virkum faglegum námssamfélögum innan skóla þar sem kennarar ígrunda saman starfshætti sína og vinna að stöðugum umbótum.

Leiðtogahæfileikum. Leiðtogum sem skilja að þeirra helsta hlutverk felst í að skapa aðstæður þar sem kennarar geta þroskast og dafnað. Þeir leggja áherslu á starfsþróun og veita kennurum rými og stuðning.

Fjárfestingu í starfsfólki. Þar sem litið er á starfsþróun kennara sem fjárfestingu í gæðum kennslu fremur en kostnað. Þar sem leiðsögn er hluti af heildarstarfsþróunarmenningu og ekki einangrað verkefni.

Lærdómshneigð. Þar sem litið er á mistök sem tækifæri til náms innan stofnunarinnar og skólamenningarinnar. Slíkt viðhorf gerir nýliðum kleift að prófa sig áfram í öruggum aðstæðum.

Þá sýnir samantekt á fyrirkomulagi eistneska leiðsagnarkerfisins og skólamenningu fram á mikilvægi þess að skólinn sé jafn opinn fyrir því að læra af nýliðum og nýliðar af skólanum. Samkvæmt samantektinni aðlöguðust nýliðar að skólanum á fyrsta starfsári, en ekki var hægt að sýna fram á að raunverulegur lærdómur yrði innan stofnunarinnar á sama tíma.

Starfsfesta fyrst, ráðningar svo

NTI samstarfið hefur sýnt fram á að starfstengd leiðsögn fyrir nýliða sé nauðsynleg til að tryggja starfsfestu (retention) og þróun kennara. Þrátt fyrir mismunandi nálgun á móttöku nýliða eru samstarfslöndin einhuga um mikilvægi menntaðra leiðsagnarkennara, skipulagðs stuðnings, jafningjahópa og jákvæðrar skólamenningar.

Eins og áherslan „Starfsfesta fyrst, ráðningar svo“ (Retention first, recruitment second) undirstrikar þá felst lausnin á kennaraskorti ekki bara í því að mennta fleiri kennara, heldur í því að skapa aðstæður þar sem kennarar vilja vera og geta þroskast. Með því að læra af reynslu hvers annars geta norræn lönd byggt upp öflugri kerfi til að styðja við nýliða og tryggja þar með gæði kennslu til framtíðar.

Þetta er ekki bara stefnubreyting – þetta er nauðsynleg nálgun til að tryggja að við höfum hæfa og ánægða kennara sem geta veitt nemendum okkar þá menntun sem þeir eiga skilið.

 


Um NTI samstarfið

Í rúmlega tvo áratugi hefur norræn samvinna um stuðning við nýliða í kennslu þróast í gegnum NTI samstarfsverkefnið (Nordic Teacher Induction). Verkefnið tengir saman fulltrúa kennaramenntunarstofnana (kennara og rannsakendur) og kennarasam banda frá Danmörku, Eistlandi, Færeyjum, Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð.

Markmið verkefnisins er að stuðla að fjölgun nýliða í kennslu og finna leiðir til að halda þeim í starfi. Víðtæk samstaða er um að leiðsögn leiki þar stórt hlutverk. Meðal annarra markmiða samráðsvettvangsins er að stuðla að starfsþróun kennara og styrkja fagstétt kennara sem heild. NTI samstarfsverkefnið hefur leitt til aukinnar vitundar um mikilvægi stöðugrar starfsþróunar og samstarfs milli kennaramenntun ar og leiðsagnarkennara á vettvangi.

Næsta verkefni NTI fyrir árin 2025-2027 ber yfirskriftina Að vaxa og dafna (Flourishing and Becoming). Öll fyrri verkefni hafa verið styrkt af Nordplus.

Fánar

Danmörk, Eistland, Finnland, Færeyjar, Ísland, Noregur og Svíðþjóð eru aðilar að NTI-samstarfinu.

 

Nálgun samstarfslanda NTI á stuðning við nýliða:

Mismunandi aðferðir, sameiginlegar áherslur

Eistland
Eistland hefur verið í forystu meðal sam starfsþjóðanna þegar kemur að skipulögðum stuðningi við nýliða. Þar er tvíþætt kerfi sem hefur reynst afar vel. Annars vegar er boðið upp á einstaklingsleiðsögn í skólum þar sem reyndir kennarar starfa sem leiðsagnar kennarar og veita daglegan stuðning á vinnustað. Hins vegar er jafningjastuðningur innan háskólanna, þar sem nýliðar hittast reglulega í hópum til að deila reynslu og ígrunda starfið. Fundirnir gefa nýliðum t.a.m. tækifæri til að ræða áskoranir sem þeir telja erfitt að taka upp við leiðsagnarkennarana sína.

Þessi tvíþætta nálgun Eistanna skapar brú milli kennaramenntunar og starfsþróunar. Háskólarnir fá þá styrk frá menntamálaráðuneytinu svo þeir geti boðið leiðsagnarkennurum menntun en nauðsynlegt er að ljúka leiðsagnarnámi, sem tekur eitt námsár, til að gerast leiðsagnarkennari þar í landi.

Noregur
Norska þingið ákvað að tryggja ætti öllum ný liðum leiðsögn fyrstu tvö árin í starfi árið 2017. Ákvörðun in leiddi til þess að leiðbeiningar um hvernig stuðningi skyldi háttað voru settar fram, ásamt nýrri námskrá fyrir leiðsagnarmenntun á meistarastigi (30 ECTS).

Fjármagn til stuðnings við nýliða er í fjárlögum Noregs og einnig geta háskólar sem mennta kennara sótt um sérstaka ríkisstyrki vegna slíkra verkefna.

Áhersla hefur sérstaklega verið lögð á starfstengda leiðsögn síðustu áratugi í Noregi.

Finnland
Í Finnlandi var leiðsögn við nýliða fyrst formlega skipulögð og innleidd í kjarasamningum sveitar félaga árið 2022. Samkvæmt samningunum geta nýliðar og leiðsagnarkennarar nýtt 76 kennslustundir á ári í leið sögn. Ekki liggur þó fyrir hversu vel úrræðið er nýtt í raun.

Finnskir háskólar sem mennta kennara bjóða upp á leiðsagnarnám (10 ECTS). Þá hefur ríkisstjórnin veitt háskólum styrki til leiðsagnarverkefna og rannsókna undanfarin ár.

Danmörk
Í kjarasamningum kennara í Danmörku segir að nýliðar skuli hafa tækifæri til að ígrunda eigin kennslu og annarra til að þróa starfshætti, þótt orðið „leiðsögn“ sé ekki notað beint. Þar í landi hefur Via University College rannsakað stuðning við nýliða og hlotið styrki frá NTIsamstarfsnetinu til þess.

Svíþjóð
Fyrir tilstuðlan NTI hafa Gautaborgarháskóli og Kennarasamband Svíþjóðar unnið saman að því að þrýsta á stjórnvöld að bregðast við og grípa til aðgerða hvað varðar stuðning við nýliða í Svíþjóð. Tilkoma áætlana fyrir kennara á landsvísu var liður í því.

Ísland
Á Íslandi er starfstengd leiðsögn sérhæfing á meistarastigi sem lýkur með diplómu. Markmið námsins er að auka þekkingu, færni og hæfni kennara í móttöku og leiðsögn nemenda og nýliða í kennslu. Háskóli Íslands og Háskólinn á Akureyri bjóða upp á námið.

Ríkið fjármagnaði leiðsagnarmenntun þrjátíu kennara á árunum 20192024. Fjárveitingin var hluti af aðgerð aráætlun ríkisins í menntamálum á tímabilinu.