Lærdómssamfélagið og tónlistarskólinn

Fjarnámskeið fyrir kennara og stjórnendur í tónlistarskólum verður haldið í Listaháskólanum á vorönn 2022. Fræðslusjóður FT greiðir námskeiðsgjöld fyrir sína félagsmenn.
Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum vill vekja athygli á fjarnámskeiði, sem ber yfirskriftina Lærdómsamfélagið og tónlistarskólinn, og fer fram á vorönn 2022.
Kennarar á námskeiðinu verða Elín Anna Ísaksdóttir, fagstjóri hljóðfærakennslu tónlistardeildar LHÍ, og Kristín Valsdóttir, deildarforseti listkennsludeildar LHÍ.
Á námskeiðinu verður fjallað um hugmyndafræði faglegs lærdómssamfélags og hvernig megi tengja það starfsemi tónlistarskólanna. Fjallað verður meðal annars um fagmennskuhugtakið, starfskenningu, leiðtogahlutverkið, dreifða og styðjandi forystu og mikilvægi starfsþróunar.
Nemendur munu vinna verkefni í anda faglegs lærdómssamfélags þar sem umfjöllunarefni eru ígrunduð í smærri hópum og drög eru lögð að verkefnum sem tengjast skólaþróun á vettvangi tónlistarskólans.
Námskeiðið verður alfarið í fjarnámsformi; þar á meðal með fyrirlestrum kennara, hópvinnu og umræðutímum með kennurum.
FT telur hér um mjög mikilvægt starfsþróunarmálefni að ræða sem snertir fagmennsku stéttarinnar, starfshætti og skólaþróun í tónlistarskólum og því mun fræðslusjóður FT greiða kostnað þeirra félagsmanna sem skrá sig á námskeiðið.
Mikilvægt
- Umsóknarfrestur er 10. janúar 2022
- Námskeiðið stendur frá 17. janúar til 30. apríl.
- Nánar um námskeiðið, námsmat og umsóknarferlið.
- Hlekkur á upplýsingar á vef LHÍ.