Lærdómssamfélag til framtíðar – lifandi braut í mótun

Kennarar Nýsköpunar- og listabrautar Fjölbrautaskólans við Ármúla, Bjarki Þór Jónsson, Gréta Mjöll Bjarnadóttir, Jeannette Castioni, Hallur Örn Árnason og Þór Elís Pálsson unnu á síðasta skólaári verkefni með það að markmiði að þróa NL-braut FÁ úr tveggja ára starfsnámsbraut í listum í þriggja ára list- og starfsnámsbraut til stúdentsprófs.
Kennarar Nýsköpunar- og listabrautar Fjölbrautaskólans við Ármúla, Bjarki Þór Jónsson, Gréta Mjöll Bjarnadóttir, Jeannette Castioni, Hallur Örn Árnason og Þór Elís Pálsson unnu á síðasta skólaári verkefni með það að markmiði að þróa NL-braut FÁ úr tveggja ára starfsnámsbraut í listum í þriggja ára list- og starfsnámsbraut til stúdentsprófs.
Vert er að rekja upphaf NL-brautar fyrir rúmlega áratug en hugmynd og gerð brautarinnar var frumkvöðlastarf. Megintilgangurinn var að auka fjölbreytni í námsframboði fyrir nemendur í framhaldsskólum og minnka brotthvarf. Lengi hafði verið kallað eftir því að NL-brautin byði upp á fullt nám til stúdentsprófs. Viðbótarnám til stúdentsprófs fullnægði ekki þörf nemenda fyrir aukið nám á sviðum lista. Sérstaklega vantaði áfanga á þriðja þrepi á listgreinum. Nokkur hópur nemenda hefur síðustu ár horfið úr námi í aðra framhaldsskóla með þriggja ára listnám til stúdentsprófs til að ljúka þar námi sem leiddu til þróunarvinnu á þessu sviði.
Verkefnið var styrkt af Rannsóknarsjóði KÍ og Sprotasjóði og fléttast inn í doktorsverkefni Grétu Mjallar sem hún vinnur að á Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Um er að ræða sameiginlega verklega, skapandi, rannsókn, sem byggir á samstarfi rannsakenda, listkennara, listamanna og nemenda um skólaþróun. Aukin aðsókn, þróun kvikmyndagerðar í LHÍ, stafrænna miðla í HÍ og HR o.fl. kallar á breytingar.
Það sem kveikti elda í hugsjóna- og hugmyndaflóru hópsins var löngun okkar til aukinna áhrifa nemenda á nám sitt og virðing fyrir sjálfræði þeirra. Rannsóknir á þessu sviði og greinar Önnu Kristínar Sigurðardóttur (2013) og Valgerðar Bjarnadóttur (2019) studdu hugmyndir okkar en ekki síst grein Önnu Magneu Hreinsdóttur (2022) sem fjallar um frumkvæði ungmenna í Víðistaðaskóla að stofnun félagsins Menntakerfið okkar og tillögur þeirra að breytingum á námskrá. Þessi hugmynd um samstarf við nemendur hefur áhrif á marga þætti og má þar nefna kennsluhætti, innihald námsins, sjálfstæði og samvinnu nemenda og kennara. Um er að ræða verklega skapandi rannsókn í samstarfi við listkennara og nemendur í skólaþróun. Aukin aðsókn, þróun kvikmyndagerðar í LHÍ, stafrænna miðla í HÍ og HR o.fl. kallar á breytingar.
Rannsóknaraðferðir lærdómssamfélagsins
Ákveðið var að vinna að breytingu brautarinnar með nemendum sem skráðir voru í námið. Um er að ræða starfendarannsókn og þróunarvinnu (Art based action research) með virkri þátttöku tuttugu nemenda í nýsköpunaráfanga og listkennara í sameiginlegri, iðjutengdri, skapandi rannsókn.
Ferlið dregur fram niðurstöðu. Þannig er lærdómssamfélagið virkt og gagnkvæmt. Aðferðinni má líkja við samfélagslegan listrænan gjörning. Við lögðum áherslu á samræður og að nemendur og kennarar ynnu saman, hugsuðu og væru saman, sköpuðu saman í skólanum. Það töldum við vera hjálplegt leiðarljós til að öðlast heildstæðan skilning á námi, vinnu og framförum. Listrannsókn átti vel við í þessu þróunarverkefni því skilgreiningar á því hvað er í vinnslu og hverju er lokið, hver er nemandinn og hver er kennarinn, hvað er dýrmætt og hvað ekki er þáttur í skapandi ferli og breytilegt í listkennslu. Lykilatriði er samræðan og skráning mikilvægustu augnablikanna, augnablika markverðra breytinga í sköpunarferlinu. Bakgrunnur kennara sem komu að rannsókninni er listnám og listsköpun svo að þessi leið styrkir og dregur fram sérstöðu lista sem rannsóknartækis og rannsóknaferlis og gefur rannsóknarmöguleika tengda bakgrunni, starfsvettvangi í listum og listkennslu og þróunarstarfi í framhaldsskólum.
Aðferðir til að ná markmiðum
- Samráð nemenda, kennara og stjórnenda.
- Greining náms og þarfa nemenda, áfanga, kennsluhátta og nýrra hugmynda nemenda.
- Mat á reynslu og árangri, ígrundun leiði til bóta og breytinga .
- Áhersla á að kennsluhættir örvi samfélagslegt lærdómsrými.
Niðurstaða
Framkvæmdin mótaðist af vinnu nemenda og kennara að verkefnum og rannsóknum tengdum náminu. Markmiðið var draga fram sjónarmið nemenda á námi á brautinni, kosti, galla, þarfir og hugmyndir fyrrverandi og núverandi nemenda, kennara og stjórnenda. Ekki var notast við kennslubók í nýsköpunaráfanganum en námsgögn búin til í samræmi við markmið verkefnis, rannsóknarspurningar og breytta kennsluhætti með að leiðarljósi velsæld og námskraftur nemenda.
Ferlið byggði á rannsókn, greiningu, hugmyndavinnu og framkvæmd og aðferðum listrannsókna þar sem viðfangið var sameiginleg rannsókn á náminu og brautinni. Það má lýsa verkefninu sem skapandi rannsóknarvinnu með útfærslum unnum í hóp- og einstaklingsvinnu. Þetta var mikilvæg þjálfun fyrir nemendur. Gagnasöfnun um skólastarfið og rannsóknarvinnu allra þátttakenda fór fram allan tímann. Gagna var aflað í formi spurningakannana, rafrænna skoðanakannana, ljósmynda, teikninga, hlaðvarpa, heimildamynda, þarfagreininga og viðtala við nemendur ásamt samræðum og skrifum. Jafnframt verkefni vikulega með skriflegum og sjónrænum útfærslum. Sjónum var beint að tilgangi námsins í samhengi við framtíðarsýn og eflingu sjálfræðis og námskrafts. Um er að ræða listræna, iðjutengda nálgun. Greiningar, úrvinnsla og umbreyting gagna í ferlinu byggðust á samræðum, ígrundun og málamiðlun. Ferlið var lærdómsríkt og jók jafnræði og félagsleg tengsl hjá nemendum.
Mat á niðurstöðum er sú að rannsóknarvinnan, aðferðir, kennsluhættir og samvinna hafði mikil áhrif á á þá nemendur og kennara sem tóku þátt í rannsóknarstarfinu í skólanum. Það kemur skýrt fram í viðtölum og lokamati nemenda. Andrúmið í hópnum breyttist. Mátti merkja aukinn þroska og nemendalýðræði. Nemendur sem höfðu haldið sig til hlés fundu sig í hópum, inngilding átti sér stað í þessu ferli. Allir fundu tengingar, jafn ólíkir og þeir voru.
Þessi listrannsókn og vinnuferlið í samstarfi við nemendur var stórfengleg og lærdómsrík reynsla. Niðurstöður styðja framtíðarsýn nemenda, eflingu sjálfræðis og námskraft. Komnar eru áfanga- og brautarlýsingar 3 ára stúdentsbrautar í listum á NL-braut FÁ.
Heimildir
- Anna Kristín Sigurðardóttir, (2021). https://skolathraedir.is/tag/anna-kristin-sigurdardottir/
- Anna Kristín Sigurðardóttir, (2013). Fagmennska í skólastarfi. Reykjavík: Háskólaútgáfan 2013
- Anna Magnea Hreinsdóttir, (2022) https://netla.hi.is/greinar/2022/alm/07.pdf
- Valgerður Bjarnadóttir, (2019). https://skolathraedir.is/tag/valgerdur-s-bjarnadottir/ Tækifæri framhaldsskólanema til aðhafa áhrif á nám sitt: