Kynskiptur vinnumarkaður meginorsök kynbundins launamunar

Konur búa enn við launamisrétti sextíu árum eftir að launajafnrétti var leitt í lög. Rannsóknir sýna að ein skilvirkasta leiðin til að stuðla að jöfnum launum fyrir jafnverðmæt störf felst í virðismati starfa. BSRB, BHM og Kennarasambandið standa sameiginlega fyrir fundi um endurmat á virði kvennastarfa 5. október.
Íslenskar og erlendar rannsóknir sýna að kynskiptur vinnumarkaður er ein helsta skýringin á launamun kynjanna. Síðustu ár hefur ýmislegt áunnist í vinnu gegn kynbundnum launamun en áherslan hefur almennt verið á að leiðrétta launamun innan vinnustaðarins líkt og með jafnlaunavottun en ekki þvert á vinnustaði sem heyra undir sama atvinnurekanda. Fram til þessa hefur því lítil sem engin áhersla verið lögð á að vinna gegn launamun sem stafar af kynskiptum vinnumarkaði.
Fjölmargar erlendar rannsóknir sýna að ein skilvirkasta aðgerðin til að stuðla að jöfnum launum fyrir jafnverðmæt störf felst í virðismati starfa. Konur og karlar vinna ólík störf á ólíkum vinnustöðum og því er næsta skref að útvíkka samanburðinn til að meta megi heildstætt virði ólíkra starfa sem heyra undir sama atvinnurekanda en unnin eru á mismunandi vinnustöðum.
Starfshópur forsætisráðherra, sem BSRB, BHM og KÍ áttu sæti í, um endurmat á störfum kvenna skilaði tillögum til aðgerða til að útrýma launamun sem stafar af kynskiptum vinnumarkaði fyrir ári síðan. Í kjölfar tillagnanna skipaði forsætisráðherra aðgerðahóp um launajafnrétti, sem samtök launafólks á einnig sæti í, sem hefur það hlutverk að byggja upp þekkingu, prufa sig áfram í nýjum leiðum að virðismati og búa til verkfæri til að leiðrétta skakkt verðmætamat kvennastarfa á grundvelli tillagnanna. Aðgerðarhópurinn hefur hafið störf og vinnur um þessar mundir að þróunarverkefni um endurmat á virði kvennastétta.
BSRB, BHM og KÍ blása til fundar um endurmat á virði kvennastarfa þann 5. október kl. 9-12 á Hilton Reykjavik Nordica. Fundurinn er öllum opinn meðan húsrúm leyfir og honum verður streymt. Markmið fundarins er að miðla áfram þeirri þekkingu sem nú er fyrir hendi og í framhaldinu eftir því sem þekkingin dýpkast.
Sóley Tómasdóttir, kynja- og fjölbreytileikafræðingur hjá Just Consulting fjallar um verðmætamat, viðmið og gildi. Heiður Margrét Björnsdóttir, formaður starfshóps um endurmat störfum kvenna og hagfræðingur BSRB, fer yfir verðmætamat kvennastarfa og kynnir vinnu starfshóps um endurmat á virði kvennastarfa. Að lokum skoðar Helga Björg Ragnarsdóttir, framkvæmdastýra Jafnlaunastofu, hvað felst í virðismati starfa.
Hér er hægt að lesa meira um viðburðinn.