Kynningarmyndband um KÍ
„Kennarasamband Íslands, eða KÍ, er með stærstu stéttarfélögum landsins, landssamband með rúmlega 10.000 félagsmenn, kennara, skólastjórnendur og námsráðgjafa sem starfa í leik-, grunn-, framhalds- og tónlistarskólum um land allt.“ Á þessum orðum mun nýtt kynningarmyndband um Kennarasamband Íslands, sem frumsýnt verður með haustinu, hefjast. Myndbandið er unnið af Dúa J. Landmark kvikmyndagerðarmanni í samstarfi við útgáfusvið KÍ.
Markmiðið er að í myndbandinu verði gerð grein fyrir helstu verkefnum og störfum sem starfsmenn og kjörnir fulltrúar Kennarasambandsins koma að hverju sinni. Meðal þess sem fjallað verður um er þjónusta sjóða KÍ og verkefni sérfræðinga. Í myndbandinu verður lögð áhersla á að hafa kennara og kennarastarfið í forgrunni, en nokkrir skólar hafa verið heimsóttir og myndaðir við vinnslu þess.