Kynningarfundir um nýjan kjarasamning tónlistarskólakennara

Skrifað var undir samninginn með fyrirvara um samþykki félagsmanna FT.
Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum (FT) og Samband íslenskra sveitarfélaga skrifuðu undir samkomulag um breytingar og framlengingu á kjarasamningi FT 9. maí síðastliðinn. Skrifað var undir samninginn með fyrirvara um samþykki félagsmanna FT.
Allsherjaratkvæðagreiðsla meðal félagsmanna hefst klukkan 12:00 miðvikudaginn 23. maí og lýkur klukkan 12:00 mánudaginn 28. maí.
Kynningarfundir um nýjan kjarasamning verða sem hér segir:
MIÐVIKUDAGINN 16. MAÍ
- Hömrum í Hofi á Akureyri, kl. 9:00-10:00
FIMMTUDAGINN 17. MAÍ
- Tónlistarskóla Stykkishólms, Skólastíg 11, kl. 9:30-10:30
- Tónlistarskóla Borgarfjarðar, Borgarbraut 23, kl. 12:00-13:00
FÖSTUDAGINN 18. MAÍ
- Tónlistarskóla Árnesinga, Eyrarvegi 9 Selfossi, kl. 9:00-10:00
- Grand Hótel Reykjavík, Setrinu, kl. 12:00-13:00
ÞRIÐJUDAGINN 22. MAÍ
- Tónlistarskólanum á Egilsstöðum, Tjarnarlöndum 11, kl. 15:00-16:00
MIÐVIKUDAGINN 23. MAÍ
- Hljómahöll - Berg, Hjallavegi 2 Reykjanesbæ, kl. 9:30-10:30
- Fjarfundur - Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu, Hornafirði, kl. 13:00-14:00
FIMMTUDAGINN 24. MAÍ
- Fjarfundur – Tónlistarskóli Vestmannaeyja, kl. 10:00-11:00
- Fjarfundur - Tónlistarskóla Ísafjarðar, kl. 12:00-13:00
Kynningarfundirnir standa öllum opnir. Kynningarefni verður sent félagsmönnum síðar í dag. Ef óskað er eftir kynningum á fleiri stöðum þá endilega hafið samband við skrifstofu FT: sigrun@ki.is.