Kynningarfundir um nýjan kjarasamning

Fréttir|4. janúar 2022

Atkvæðagreiðsla hefst föstudaginn 7. janúar.

Félag grunnskólakennara kynnir nýjan kjarasamning fyrir félagsmönnum á opnum kynningarfundum sem hefjast í dag, þriðjudag. Fundirnir verða þrír talsins, núna þrjá daga í röð og á sama tíma dagsins eða kl. 14:00 til 16:00. Hlekki á fundina má finna hér að neðan.

Þá hefst atkvæðagreiðsla um kjarasamninginn föstudaginn 7. janúar næstkomandi og stendur hún yfir til fimmtudagsins 13. janúar 2022.

Hægt er að nálgast samninginn, kynningarefni og uppfærða launareiknivél á vef KÍ.

 

Kynningarfundir verða sem hér segir og fara þeir fram á Teams:

Þriðjudaginn 4. janúar kl. 14:00 - 16:00. Hlekkur á þriðjudagsfundinn.
Miðvikudaginn 5. janúar kl. 14:00 - 16:00. Hlekkur á miðvikudagsfundinn.
Fimmtudaginn 6. janúar kl. 14:00 - 16:00. Hlekkur á fimmtudagsfundinn.