Kynning FSL aðgengileg á netinu
Fréttir|7. desember 2015
Félag stjórnenda leikskóla hefur sett kynningu á nýgerðum kjarasamningi á netið. Ástæðan fyrir því að kynningarmynd er sett á vefinn er að fyrirhugðum kynningarfundi og fjarfundi sem áttu að fara fram síðdegis var aflýst í ljósi þess að óveður á að ganga yfir landið.
Kynningu á samningnum er að finna á sérstöku svæði á vefnum en félagsmenn mun fá slóðina senda í tölvupósti. Félagsmenn eru hvattir til að horfa á myndbandið og einnig er hægt að lesa um hinn nýgerða kjarasamning á læstu svæði.
Atkvæðagreiðsla um samninginn hófst klukkan níu í morgun og lýkur klukkan þrjú eftir hádegi á miðvikudag. Nánar um atkvæðagreiðsluna.