Kynning á skólastarfi vegna LSP-ráðstefnu
Fréttir|24. júní 2015
Skólum og félögum sem áhuga hafa á að kynna verkefni sín og skólastarf í opnu rými á LSP ráðstefnunni er boðið að senda inn lýsingu á verkefnunum á ráðstefnuvef LSP.
Lýsingin má vera á íslensku eða ensku.
Lögð er áhersla á verkefni og kynningar sem tengjast áherslum ráðstefnunnar frá skólum á öllum skólastigum, svo og félögum. Kynningarnar verða í Skála og öðrum opnum rýmum og göngum í húsnæði Menntavísindasviðs við Stakkahlíð.
Frestur til að senda inn lýsingar er til 5. ágúst 2015. Niðurstöður verða kynntar 15. ágúst.