Kynning á kjarasamningi FF og FS

Fréttir|18. apríl 2020

FF stendur fyrir fundaröð á mánudag og þriðjudag í öllum ríkisreknum skólum.

Félag framhaldsskólakennara stendur fyrir fundaröð mánudaginn 20. apríl og þriðjudaginn 21. apríl, til að kynna nýgerðan kjarasamning FF og FS við ríkið.

Fundirnir fara fram með aðstoð Teams-fjarfundaforritsins. Trúnaðarmenn og formenn félagsdeilda félagsins hittast á fundi sunnudaginn 19. apríl, þar sem þeir munu m.a. fá leiðbeiningar um hvernig kennarar tengjast fundunum.

Missi kennarar af fundinum í þeirra skóla fá þeir aðgang að upptöku, sem verður gerð aðgengileg þriðjudaginn næstkomandi.

 

Fundaröðin:

Tímasetning

Skólar

Mán. 20. apríl kl. 09:00

BHS, VMA og VA

Mán. 20. apríl kl. 11:00 

FNV, FVA, FB og MÍ

Mán. 20. apríl kl. 13:00

FSu, FSS og MK

Mán. 20. apríl kl. 15:00

ME, MR, MH og MS

Þri. 21. apríl kl. 09:00 

FG, FÁ, FLB og FMOS

Þri. 21. apríl kl. 11:00

FSN, FSH, FL, FAS, FíV, KVSK, ML, MA, MTR og MMS

 

Kosning um samninginn fer einnig fram í vikunni og verður hún nánar auglýst síðar.