Kynning á frambjóðendum til formanns KÍ

Þrjú gefa kost á sér, þau Guðríður Arnardóttir, Ólafur Loftsson og Ragnar Þór Pétursson.
Þrjú gefa kost á sér, þau Guðríður Arnardóttir, Ólafur Loftsson og Ragnar Þór Pétursson.
Félagsmenn í Kennarasambandi Íslands munu kjósa sér nýjan formann í kosningum sem fram fer dagana 1. til 7. nóvember næstkomandi. Nýr formaður tekur við embætti á 7. þingi Kennarasambands Íslands í apríl á næsta ári. Þrír gefa kost á sér í embættið en frambjóðendur eru í stafrófsröð:
Nafn: Guðríður Arnardóttir
Núverandi vinnustaður: Kennarasamband Íslands
Titill: Formaður Félags framhaldsskólakennara
Aldur: 47 ára
Menntun:
Grunnskólakennari og Framhaldsskólakennari
B.S. jarðfræði
Diploma HÍ 60e – Kennslufræði
Diploma 30e HÍ – Opinber stjórnsýsla og samningatækni
Diplomanám 54e HR – Viðskiptafræði og starfsmannastjórnun
Starfsreynsla / starfsferill:
Hólabrekkuskóli 1995 – 2001 kennari náttúrufræði og stærðfræði
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ 2004 – 2014 kennari eðlis- og efnafræði
Önnur starfsreynsla: Thorarensen Lyf - markaðsstjóri Norpharma/Servier
Kögun: Forritun/vinna við kerfiráð Orkuveitu Reykjavíkur
Veðurfréttir Stöð 2 6 ár – blaðamaður og ritstjórnarfulltrúi Eiðfaxa 4 ár
Annað:
Bæjarfulltrúi í Kópavogi frá 2006 til 2014
Stjórnarmaður í stjórn lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar frá 2009 til 2014.
Formaður Félagsmálaráðs Kópavogs og formaður Bæjarráðs 2010 til 2012.
Formaður starfshóps um fyrstu aðgerðaráætlun Íslands gegn mansali.
Fulltrúi Íslands í Evrópuráði sveitarstjórnarmanna (Congress of Europe). Var þátttakandi í verkefninu „One in Five“ átak Evrópuráðsins gegn kynferðisofbeldi gagnvart börnum. Tók jafnframt þátt í vitundarvakningu um alla Evrópu gegn heimilisofbeldi.
Sterkara Kennarasamband – nær félagsmönnum
Verkefni næsta formanns Kennarasambands Íslands verður að þétta raðir kennara innan KÍ. Við þurfum að hætta að hugsa í boxum og hugsa sem heild, þannig heyrist rödd okkar best. Við eigum að vinna meira saman þvert á skólastig, bæði að samningamálum og við réttindagæslu félagsmanna.
Ég vil styrkja innviði og þjónustuhlutverk KÍ gagnvart félagsmönnum. Húsnæðismál félagsins þarf að færa til betri vegar og hafa betri aðstöðu fyrir félagsmenn innan Kennarahússins.
Það þarf að færa KÍ nær félagsmönnum. Innan veggja Kennarahúss er unnið gríðarlega gott starf í þágu félagsmanna og hefur KÍ staðið fyrir námskeiðum og fræðslu af ýmsu tagi. Við eigum að tala meira við félagsmenn og formaður KÍ þarf að vera sýnilegur bæði út á við og inn á við.
Jákvæð nálgun á kjara- og réttindabaráttu kennara mun skila okkur árangri
Ég vil jákvæða og uppbyggilega ásýnd KÍ og leggja mitt að mörkum við að auka virðingu fyrir kennarastarfinu. Þannig skiptir máli hvernig við tölum við hvort annað og hvernig við tölum um hvort annað. Við eigum að tala stéttina upp og auka þannig virðingu fyrir okkur og því mikilvæga starfi sem við vinnum.
Jafnréttis- og mannréttindamál
Formaður KÍ þarf að vera öflugur talsmaður mannréttinda og leggja sérstaka áherslu á jafnréttismál. Rúmlega 80% félagsmanna KÍ eru konur og um leið og við viljum vinna að því að jafna kynjahlutfall kennara á öllum skólastigum þurfum við sérstaklega að styrkja stöðu þeirra kvenna sem starfa innan KÍ.
KÍ á að vera öflugur málsvari kennara í víðu samhengi
Ég vil styrkja málsvarahlutverk KÍ út á við. Formaður KÍ á þannig að tala fyrir hagsmunum heildarinnar og taka sem slíkur virkan þátt í þjóðfélagsumræðunni. Hann á að taka þátt í umræðum um húsnæðismál, efnahagsmál og almennt um hagsmunamál heimilanna. Það eru líka hagsmunir kennara.
Samstarf opinberra stéttarfélaga um launajöfnun og styttingu vinnuvikunnar
Ég vil leggja áherslu á samstarf við forystu annarra stéttarfélaga opinberra starfsmanna og berjast fyrir jöfnun launa milli markaða og styttingu vinnuvikunnar.
Álag á kennara í starfi er of mikið – við því þarf að bregðast
Starfsaðstæður kennara eru mér mjög hugleiknar og brýnasta verkefni okkar er að vinna bug á óhóflegu álagi kennara í starfi. Gögn sýna að kennarar eru í meiri hættu en aðrar háskólamenntaðar stéttir á að upplifa kulnun í starfi og glíma við langtímaveikindi vegna álags. Mest er hættan meðal leikskólakennara þar sem sveigjanleikinn í starfinu er hvað minnstur og sýna gögn að álag í starfi er í réttu hlutfalli við sveigjanleika. Við þurfum að vinna bug á þessu með varanlegum breytingum á vinnutíma kennara.
Varðstaða um menntun kennara
Við þurfum að verja þann árangur sem náðst hefur í menntun og fagmennsku kennara á öllum skólastigum en starfsaðstæður og kjarabætur eru einu raunhæfu leiðirnar sem munu vinna bug á kennaraskorti til lengri tíma.
KÍ leiði stefnumótun og umræðu um skólamál
KÍ á að vera leiðandi í umræðum um skólamál. Innan KÍ er hefð fyrir öflugri umfjöllun um menntamál á öllum skólastigum. Umræðuhefti um skólamál, þétt samstarf við háskólana um menntun kennara, styrkir til fagfélaga, samstarfsvettvangur um símenntun, allt eru þetta verkefni sem KÍ hefur leitt. Rödd okkar verður hins vegar að vera hærri og við þurfum betur að ná eyrum almennings.
Formaður KÍ er oddviti lýðræðis
Samkvæmt lögum KÍ er hlutverk formanns KÍ að hafa yfirumsjón með rekstri félagsins. Hann framfylgir stefnu KÍ eins og hún er mótuð á þingum þess á 4 ára fresti. Formaður getur þannig ekki farið út fyrir það umboð sem félagsmenn fela honum. Í stjórn KÍ sitja formenn 7 aðildarfélaga og stjórnir hvers aðildarfélags bera ábyrgð á kjara og skólastefnu síns félags.
Af hverju verður Guðríður Arnardóttir góður formaður KÍ?
Ég er menntaður grunn- og framhaldsskólakennari og með próf í opinberri stjórnsýslu og rekstri. Ég hef talsverða kennslureynslu af tveimur skólastigum, úr grunnskóla og framhaldsskóla.
Ég legg fram reynslu mína og þekkingu á löngum ferli í forystustörfum. Bæði í sveitarstjórn og í stjórn KÍ.
Stærstur hluti kennara starfar hjá sveitarfélögunum og þá innviði þekki ég mjög vel eftir langa reynslu á þeim vettvangi.
Ég kann til verka þegar kemur að því að leiða mál til lykta og taka tillit til ólíkra sjónarmiða. Reynsla mín og menntun í samningagerð getur gagnast öllum aðildarfélögum KÍ.
Það þarf sterk bein að standa við stýrið og taka ákvarðanir út frá hagsmunum heildarinnar. Ég er góð í brekkum og best í mótvindi, það eru eiginleikar sem gagnast vel í forystu kennara.
Kynningarsíða framboðs Guðríðar á Facebook
Nafn: Ólafur Loftsson
Núverandi vinnustaður: Félag grunnskólakennara / Kennarasamband Íslands
Titill: Formaður Félags grunnskólakennara
Aldur: 51 árs
Menntun:
Stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík
B.ed. frá Kennaraháskóla Íslands
Rekstrar- og viðskiptafræði frá EHÍ
Ýmis námskeið hjá PON (Programe of Negotiation) Harvard, m.a. Labour Agreements, Collectiv Bargains, Dealing with Difficult People and Difficult Situations, og Negotiation Master Class.
Ýmis námskeið á vegum Evrópusambandsins, Sameinuðu þjóðanna og Rauða krossins, m.a. í vettvangsstjórnun, upplýsingastjórnun, samningatækni, framkomu í fjölmiðlum, mati á erfiðum aðstæðum og skipulagningu á viðbrögðum, öryggismálum og ýmsu fleiru.
Starfsreynsla / starfsferill:
Almenn sveitastörf
Afgreiðsla í verslun
Starfsmaður í sumarbúðum á Íslandi og í Sviss
Starfsmaður í félagsmiðstöð
Starfsmaður á Sólheimum í Grímsnesi
Formaður og framkvæmdastjóri Bandalags íslenskra sérskólanema (BÍSN)
Framkvæmdastjóri Bóksölu kennaranema
Starfsmaður, markaðsstjóri og að lokum eigandi Tímaritsins Uppeldi
Forstöðumaður sumarbúða og skólabúða
Grunnskólakennari
Formaður Kennarafélags Reykjavíkur
Formaður Félags grunnskólakennara frá 2005
Að auki má geta þess að ég hef verið starfandi í björgunarsveit frá 18 ára aldri. Því fylgja mörg námskeið og mikil reynsla. Í dag er ég í alþjóðlegu teymi á vegum Sameinuðu þjóðanna sem er sérhæft í að aðstoða yfirvöld þegar náttúruhamfarir verða, varðandi mat á aðstæðum og skipulagningu hjálparstarfs.
Af hverju býður þú þig fram?
Ég hef sinnt trúnaðarstörfum fyrir kennara frá árinu 2003. Fyrst sem trúnaðarmaður kennara í Foldaskóla. Síðan þá hef ég óslitið sinnt trúnaðarstörfum fyrir kennara. Ég held að sú reynsla sem ég hef öðlast á liðnum árum nýtist vel í formannstarfi fyrir Kennarasambandið.
Um árabil hef ég setið í stjórn Kennarasambandsins og þekki vel til starfsemi þess. Þótt margt sé ólíkt með formannsstarfi í aðildarfélagi KÍ og formannsstarfi KÍ eru margir þættir líkir. Þegar ég var kosinn formaður Félags grunnskólakennara var ég svæðaformaður í Reykjavík. Mikilvægt var að fara úr því hlutverki strax og tileinka sér að vera formaður allra félagsmanna, hvar svo sem þeir bjuggu á landinu. Eins er það með Kennarasambandið. Formaður KÍ verður að vera formaður allra félagsmanna og geta sett sig í spor þeirra óháð því úr hvaða aðildarfélagi hann er.
Formaður KÍ ber ábyrgð á öllum daglegum rekstri Kennarasambandsins. Á liðnum árum hef ég borið ábyrgð á daglegum rekstri Félags grunnskólakennara. Allan þann tíma hefur félagið verið rekið með rekstrarafgangi og hefur nám mitt í rekstrar- og viðskiptafræði komið sér vel.
Í störfum mínum fyrir FG hef ég þurft að takast á við mjög erfið og krefjandi mál sem hafa styrkt mig í starfi. Ég tel að sú fjölbreytta reynsla sem ég hef öðlast í gegnum árin sé gott veganesti í formannstarf fyrir Kennarasamband Íslands. Síðast en ekki síst þakka ég öllum þeim félagsmönnum KÍ á öllum skólastigum og skólagerðum sem hafa sent mér áskoranir um að gefa kost á mér til formanns KÍ.
Á hvað munt þú leggja áherslu náir þú kjöri?
Nái ég kjöri vil ég fyrst og fremst tryggja og styrkja stöðu Kennarasambandsins. KÍ þarf að vera sýnilegra í allri umfjöllun um skóla- og menntamál.
Það er ljóst að fram undan verður barátta við að vinna að launajöfnun milli markaða í kjölfar samþykktar Alþingis á lögum um lífeyrissjóði. Þrátt fyrir að hvert aðildarfélag KÍ annist gerð sinna kjarasamninga að öllu leyti þá er Kennarasambandið vettvangur til samræðna og ákvarðanatöku þegar kemur að áherslum í lífeyrissjóðsmálum, veikindarétti og ýmsum öðrum málum sem eru eins á milli aðildarfélaga KÍ. Hagfræðingur Kennarasambandsins hefur unnið samantekt úr nýlegum tölum frá Hagstofu Íslands. Þar kemur fram mikill launamunur sérfræðinga á milli markaða. Þegar tölur eru skoðaðar frá 2014, 2015 og 2016 kemur í ljós að laun sambærilegra sérfræðinga eru langlélegust hjá sveitarfélögunum, þá ríkinu og best eru þau á almennum markaði. Í heildina eru sérfræðingar í fræðslustarfsemi á lægstu laununum. Þetta er algerlega óþolandi og verður að vera eitt af meginverkefnum KÍ að vinna að því að þetta verði leiðrétt.
Viðvarandi kennaraskortur í leikskólum landsins er alvarlegur og eins og fram hefur komið vantar um 1.300 kennara til að uppfylla lög nr. 87/2008 um menntun og ráðningu kennara. Það er því grafalvarlegt ástand á fyrsta skólastiginu en því er ætlað að leggja grunn að framtíðarnámi barnanna okkar. Enn má heyra óm af því að leikskólastigið sé ekki eins merkilegt og önnur skólastig. Sem betur fer fækkar þessum röddum og æ fleiri sjá að skólastigin öll eru jafn mikilvæg. Að því sögðu verður að bregðast við þeim mikla kennaraskorti sem allir vita af og þekkja. Við viljum það besta fyrir börnin okkar, á hvaða skólastigi eða skólagerð sem er. Ríkisendurskoðun og prófessor við félagsvísindadeild Háskóla Íslands hafa bent á að mikill kennaraskortur sé yfirvofandi í grunnskólum landsins innan skamms tíma. Það stafar annars vegar af því að nýliðun er lítil sem engin og hins vegar af því að margir grunnskólakennarar hafa hætt störfum á undanförnum árum og farið í störf þar sem álag er minna og laun eru hærri. Meðalaldur kennara í grunn- og framhaldsskólum hækkar stöðugt og er nú rúm 50 ár á framhaldsskólastiginu. Ekki verður annað séð en sama vandamál muni skapast í framhaldsskólunum verði ekkert að gert. Það duga engar töfralausnir eins og stjórnmálamönnum er tamt að tala um. Fyrst og fremst verður að gera störf í skólum landsins samkeppnishæf við almennan markað. Það verður fyrst og fremst gert með því að hækka laun og bæta starfsaðstæður. Í fyrravetur heimsótti ég fleiri tugi grunnskóla og ræddi við félagsmenn FG. Á mörgum stöðum ræddi ég einnig við stjórnendur og greinilegt er að þörf er á átaki í vinnuumhverfismálum þeirra. Ég heyri ekki annað en líkt sé á komið með stjórnendum í leikskólum. Ekki einungis að þessir hópar séu mun lægra launaðir en sambærilegir stjórnendur hjá ríkinu og á almenna markaðnum, þá hafa sveitarfélögin ekki enn bætt þann niðurskurð sem varð á stjórnendakvóta skólanna eftir hrun. Þessum niðurskurði verður að lágmarki að skila til baka og auðvitað þarf af bæta í. Ef við ætlumst til að skólarnir okkar séu fyrir alla nemendur alls staðar verðum við að tryggja að stjórnendum, kennurum og öðrum félagsmönnum KÍ sé gert kleift að sinna starfi sínu sem þeir fagmenn sem þeir eru.
Á síðasta ári gaf Félag grunnskólakennara út bókina Finnska leiðin. Markmiðið var að auka umfjöllun um kennarastarfið út frá sjónarhóli kennara. Ég tel að Kennarasambandið eigi að beita sér fyrir því að gefa út og/eða dreifa efni fyrir öll skólastig þar sem fjallað er um fagleg málefni kennara og styrkja þannig faglega stöðu þeirra. Kennarar og stjórnendur eru sérfræðingar á sínu sviði og nauðsynlegt er að efla þá ímynd þeirra í samfélaginu. Félag grunnskólakennara (FG) stóð nýlega fyrir ráðstefnu kennara, stjórnenda, nemenda og fræðimanna frá Kanada, Noregi, Finnlandi og Íslandi. FG hefur ákveðið að taka þátt í samstarfi þessara aðila þar sem lögð er áhersla á nemenda-, stjórnenda- og kennaraskipti milli landa. Að auki hittust fræðimenn frá þessum löndum og deildu sín á milli hugmyndum og rannsóknum á sviði menntamála. Ég sé fyrir mér að í náinni framtíð væri hægt að auka þetta samstarf til annarra aðildarfélaga innan KÍ og þannig gefa fleirum tækifæri til þátttöku. Ég vil beita mér fyrir því að þing Kennarasambandsins vorið 2018 skoði uppbyggingu og starfsemi sambandsins með tilliti til þess hvort hægt sé að auka hagkvæmni í rekstri. Ég tel mikilvægt að Kennarasambandið hafi á sínum snærum starfandi sérfræðing í kennslu- og uppeldisfræðum sem getur verið aðildarfélögum KÍ til halds og trausts þegar kemur að umfjöllun um menntamál. Þetta má þó ekki leiða til aukins kostnaðar.
Til að tryggja hagsmuni félagsmanna til lengri tíma tel ég áríðandi að styrkja miðlæga starfsemi Kennarasambandsins. Mikilvægt er að þekking á kjara- og réttindamálum sé alltaf í hæsta gæðaflokki. Þrátt fyrir að kjörnir fulltrúar á hverjum tíma fari með stefnumótun einstakra félaga og KÍ, þá er mikilvægt að tryggja að ítarleg þekking á málefnum félagsmanna sé ætíð til staðar hjá sambandinu óháð þeim einstaklingum sem kjörnir eru til starfa á hverjum tíma.
Af öðrum málum sem ég vil beita mér fyrir má nefna að þóknun til trúnaðarmanna vegna starfa þeirra verði samræmd. Það dylst engum að starf trúnaðarmanna er sambandinu og aðildarfélögum gríðarlega mikilvægt. Misjafnt er milli félaga hvort og hvernig reynt er að umbuna þeim. Best væri ef þetta væri á hendi KÍ.
Ég vil vinna að því að fá stjórnvöld til að hætta skattheimtu á greiðslum úr sjúkrasjóði KÍ. Það er nógu slæmt að lenda í erfiðum veikindum og ófyrirséðum útgjöldum vegna þeirra. Félagsmenn ættu ekki að þurfa að greiða skatta af þessum styrkjum sem ætlað er að mæta kostnaði vegna veikinda.
Sterkar vísbendingar eru um að vinnuaðstæður kennara og stjórnenda séu ekki nógu góðar. Sífellt fleiri leita til VIRK starfsendurhæfingar og fleiri og fleiri þurfa að nýta sér dagpeninga hjá sjúkrasjóði KÍ vegna veikinda. Það er áríðandi að gera rannsókn á því hvað veldur svo hægt sé með markvissum hætti að bæta starfsaðstæður og vinna gegn því að kennarar brenni upp í starfi. FG hefur nú þegar hafið samtal við stofnun í Svíþjóð sem sérhæfir sig í forvörnum gegn kulnun í starfi. Í þessu sambandi er líka áríðandi að ná fram styttri vinnuviku. Það eru fáar stéttir sem vinna í grunninn jafnlanga vinnuviku og félagsmenn KÍ. Styttri vinnuvika er áríðandi lýðheilsumál sem ætti að geta orðið einn hlekkur í því að vinna gegn kulnun í starfi.
Í nýlegri könnun á einelti, áreitni og ofbeldi á vinnustað meðal félagsmanna KÍ sem Hjördís Sigursteinsdóttir, aðjúnkt við Háskólann á Akureyri, vann kom m.a. fram að æ oftar koma fram kvartanir frá félagsmönnum um að þeir hafi lent í andlegu og/eða líkamlegu ofbeldi eða hafi verið hljóðritaðir eða myndaðir við kennslu án þeirrar vitundar. Skýra þarf vinnu- og verklagsreglur þegar slík mál koma upp svo þau fari í eðlilegan farveg. Vernda verður starfsumhverfi félagsmanna okkar.
Hér að framan hef ég nefnt nokkur ný atriði sem ég tel mikilvægt að vinna að. Mörg verkefni eru nú þegar í gangi á vegum KÍ og þau þurfa að halda áfram. Má þar nefna endurskoðun á „Mínum síðum“, miðlægri fræðslu fyrir trúnaðarmenn, aðkomu kennaranema að KÍ, samstarfi við háskólana, styrkja starfsþróun kennara og stjórnenda, opna fundi með félagsmönnum um hin ýmsu mál, o.fl., o.fl. Mig langar að nefna eitt atriði sem ég tel að gæti verið ávinningur í fyrir félagsmenn KÍ, en það er að gefa út veglegt afsláttarkort. Það munar um hverja krónu í budduna og þar gæti afsláttarkort KÍ hjá verslunum og þjónustufyrirtækjum um land allt hjálpað til.
Ég tel mikilvægt að formaður KÍ verði sýnlegri í almennri umræðu, en ekki síður meðal kennara. Formaður KÍ þarf að gera sér far um að heimsækja kennara og stjórnendur á vettvangi og eiga þannig milliliðalaust samtal við félagsmenn. Ég vona að þið gefið mér tækifæri til þess í komandi formannskosningum og að ég sjái ykkur sem flest, á ykkar heimavelli.
Nafn: Ragnar Þór Pétursson, grunnskólakennari við Norðlingaskóla í Reykjavík. 41 árs.
Menntun: B.A. próf í heimspeki frá HÍ. Kennsluréttindi við grunn- og framhaldsskóla frá HA. Stundaði framhaldsnám í stjórnun menntastofnana og er enn að viða að mér efni í meistararannsókn.
Starfsferill: Hóf kennslu haustið 1996 sem leiðbeinandi. Þurfti tvo vetur til að ákveða að gera hana að ævistarfi. Tók ákvörðun eftir kennsluréttindanámið um að kenna a.m.k. einn vetur í skóla í hverjum landsfjórðungi. Á Austfirðina enn eftir. Kenni nú í aldursblandaðri teymiskennslu í unglingadeild í Norðlingaskóla þar sem ég byrjaði haustið 2008. Var skólastjóri einn vetur á Kirkjubæjarklaustri. Hef kennt við eftirfarandi skóla: Borgarhólsskóla á Húsavík, Brekkuskóla á Akureyri, Dalvíkurskóla, Klébergsskóla á Kjalarnesi, Norðlingaskóla, Réttarholtsskóla í Reykjavík og Grunnskólann á Tálknafirði. Starfaði þrjú misseri sem sérfræðingur í skólaþróun fyrir Skema í verkefnum um allt land og erlendis. Kenndi þá jafnframt forritun. Vann meðfram námi á sambýli fyrir fatlaða og sem leiðsögumaður í vélsleðaferðum.
Annað: Hef setið í fjöldamörgum nefndum og starfshópum. Var sendifulltrúi Scientix á Íslandi og skólanefndarmaður í Borgarholtsskóla í Reykjavík. Sat í stýrihópum m.a. um eflingu náms í upplýsingatækni og raunvísindum.
Ég skrifa mikið um skólamál og þjóðfélagsmál (hef m.a. haldið úti bloggsíðum á Blogger, Eyjunni og Stundinni (þar sem ég skrifa nú)). Hélt úti hlaðvarpi um skólamál með Ingva Hrannari og hef haldið marga tugi fyrirlestra um skólamál.
Almenn kynning og áhersluatriði
Ég er maðurinn hennar Gyðu og pabbi Anítu, Birgittu og Antons. Ég er afi Eyju og Þóru (og Tísta).
Ég býð mig fram til embættis formanns KÍ vegna þess að ég tel að sambandið hafi hvorki beitt sér nægilega vel né með réttum hætti á mjög mikilvægum tímum og að grundvallarbreyting þurfi að verða á því með hvaða hætti formaður sambandsins beitir sér.
Forsendu- og trúnaðarbrestur í menntamálum
Á Íslandi hefur orðið forsendu- og trúnaðarbrestur í menntamálum. Í landinu er byggt á metnaðarfullri menntahugsjón sem fest er í sessi með námskrá og menntunarkröfum til kennara. Eftir þessari hugsjón hafa skólastigin starfað. Hið opinbera hefur hins vegar ítrekað brugðist skyldum sínum. Nú er svo komið að fagmennska á leikskólastigi berst fyrir lífi sínu og í sama far stefnir að meira eða minna leyti með hin skólastigin. Við höfum einnig horft upp á verulega alvarleg dæmi um svikin loforð og jafnvel hrein lögbrot.
Eitt fyrsta verk nýs formanns á að vera að setjast niður með nýjum stjórnvöldum í landinu og fá það staðfest að þau standi við hina metnaðarfullu menntastefnu sem lögbundin er. Loforðareikningi stjórnvalda á að loka vegna vanefnda – en þeim mun meira afl á að setja í að sækja fram þar sem stuðningur er við slíkt og vilji. Horfa á til þeirra landa sem náð hafa árangri í að fylkja liði bak við metnaðarfulla menntastefnu.
Í fararbroddi skólaþróunar og ábyrg varðstaða
Kennarasamband Íslands á að koma sér fyrir í fararbroddi skólaþróunar og nýr formaður á að gera það að sérstöku áhersluatriði að hjálpa til við að laða ungt fólk í kennaranám. Um leið á að vinna markvisst að því að varðveita reynslu og þekkingu þess skólafólks sem hætt er störfum eða á stutt eftir í starfslok. Þá á að sýna fólkinu sem ruddi brautina mun meiri sóma en gert er og læra af reynslunni.
Það er mikilvægt að formaður KÍ endurspegli þann þrótt og þá elju sem íslenskt skólafólk sýnir á hverjum degi. Hann á að vera í nánum tengslum við grasrótina og halda sér upplýstum um strauma og stefnur. Menntakerfi dagsins í dag er enda allt annað kerfi en hér var fyrir áratug. Menntakerfi morgundagsins verður enn breytt. KÍ má aldrei lenda í varðstöðu fyrir eitthvað sem var – og hindra þar með það sem er í að blómstra.
Styrkjum Kennarasambandið
Kennarasamband Íslands stendur sumpart veikum fótum. Það eru ekki öll fagfélög innan þess sannfærð um mikilvægi þess og einhver af félögunum eru klofin innbyrðis. Það er gríðarlega mikilvægt að vinna í innri þáttum starfsins. Það kemur öllum kennurum við þegar grafið er undan menntun. Þá skiptir engu hvort um er að ræða svik við framhaldsskólana eða vanrækslu gagnvart leikskólum. Menntahugsjónin er samfelld og snýst um farsæld frá vöggu til grafar. Menntahugsjónin er grunnhljómur fagmennskunnar.
Formaður KÍ þarf að bera virðingu fyrir þeirri staðreynd að hann er sá lýðræðislega kjörni fulltrúi kennara með breiðasta baklandið. Hann þarf að verðskulda þetta bakland. Honum ber að sýna fámennasta hópnum innan sambandsins sömu tryggð og þeim fjölmennasta, hann þarf að sjá til þess að starfsemi sambandsins sé opin og gegnsæ. Upp á það finnst mér hafa skort og ég mun útskýra sérstaklega hvað ég á við með því á opnum fundi frambjóðenda undir lok mánaðar. Þá þarf að auka félagslegt uppeldi innan sambandsins og auðvelda þeim sem vilja leggja sitt af mörkum að finna sér farveg.
Viltu vita meira? Sendu mér spurningar. Netfang mitt er ragnarkennari@gmail.com
Kynningarsíða framboðsins á Facebook
Nýjar greinar eftir mig á stundin.is
{/sliders}
Félagsmenn eru hvattir til að kynna sér upplýsingar um frambjóðendur sem finna má með því að smella á nöfn þeirra hér fyrir ofan.
Vakin er athygli á að mánudaginn 30. október kl. 20:00 verður haldinn opinn fundur með öllum frambjóðendum.
Fundarstaður: Gerðuberg
Fundarstjóri: Þórhallur Gunnarsson, fjölmiðlamaður
Fundinum verður streymt á vefnum netsamfelag.is