Kynning á frambjóðendum FF
Fréttir|9. janúar 2014
Kosningar til stjórnar og formanns Félags framhaldsskólakennara hefjast 22. janúar næstkomandi og verða nánari leiðbeiningar um kjörið sendar til félagsmanna og trúnaðarmanna fljótlega.
Uppstillingarnefnd félagsins mun senda út rafrænan kosningabækling á næstu dögum. Þar kynna frambjóðendur helstu stefnumál sín og áherslur í kjara-, skóla- og félagsmálum.
Þá munu innan skamms birtast á heimasíðu KÍ og FF myndbandsviðtöl við frambjóðendur til formanns FF, þau Guðríði Arnardóttur, Gylfa Þorkelsson og Hrafnkel Tuma Kolbeinsson. Viðtölin voru tekin upp í Kennarahúsinu og annaðist Halldór Árni Sveinsson upptökurnar.