Kynning á FACE-IT segulandlitinu

Fréttir|10. febrúar 2021

Faghópur um skapandi leikskólastarf bauð upp á kynningu á FACE:IT verkfæri til að hjálpa börnum að skilja og tjá tilfinningar miðvikudaginn 10. febrúar 2021.

Þau Birte Harksen og Carsten Møller kynntu fyrir okkur FACE-IT segulandlitið og notkun þess miðvikudaginn 10. febrúar 2021. Carsten er kennari og sérfræðingur í áfallahjálp og þróaði FACE:IT sem einfalda leið til að ná sambandi við börn í erfiðum aðstæðum og fá samtal í gang. Birte er kennari í leikskólanum Urðarhóli í Kópavogi og hefur notað andlitið í leikskólanum. Birte sagði frá reynslu sinni af segulandlitinu í vinnu með leikskólabörnum.

Á kynningunni var vel útskýrt hvernig hægt er að nota segulandlitið FACE:IT m.a. til að - verða meðvituð um og tjá tilfinningar - þroska samkennd - leysa árekstra - styðja við tilfinningaþroska barna - hjálpa börnum að læra betur að lesa í tilfinningar annarra - koma því á framfæri sem erfitt er að segja frá - fá erfið samtöl í gang.

Á kynningunni sagði Birte okkur frá því að hún vill halda námskeið fyrir leik- og grunnskólakennara og þá með þeim möguleika að segulandlitið verði innifalið í skráningargjaldinu. Hún hefur rætt þennan möguleika við Vísindasjóð Fl/FSL og fengið jákvæð viðbrögð. Hægt er að hafa beint samband við Carsten með því að senda honum tölvupóst, en svo er líka hægt að skoða FACE-IT á heimasíðu hans og á Fésbók. 

Við tókum upp kynninguna og er hægt að horfa á hana hér.