Kynnið ykkur áherslur frambjóðenda

Það styttist í formannskjör hjá KÍ. Fjögur bjóða sig fram í embættið.
Kosningar til formanns Kennarasambands Íslands fara fram dagana 2. til 8. nóvember næstkomandi.
Fjögur bjóða sig fram í embættið; þau Anna María Gunnarsdóttir, varaformaður KÍ, Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, kennari í Borgarholtsskóla, Heimir Eyvindsson, dönskukennari og deildarstjóri í Grunnskólanum í Hveragerði, og Magnús Þór Jónsson skólastjóri Seljaskóla.
Frambjóðendurnir fjórir kynna sig, ástæður fyrir framboðinu og helstu áherslur sem þeir vilja leggja nái þeir kjöri.
Formannsskiptin
Atkvæðagreiðslan fer sem fyrr segir fram í byrjun næsta mánaðar en nýr formaður tekur ekki við fyrr en í apríl á næsta ári. Hefðbundið er að formanns- og varaformannsskipti fari fram á þingum KÍ – sem haldin eru á fjögurra ára fresti.
Frambjóðendurnir; Anna María Gunnarsdóttir, Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, Heimir Eyvindsson og Magnús Þór Jónsson.