Kynleg kennsla
- samnorrænt málþing um kynjafræði í framhaldsskólum
Kvenréttindafélag Íslands og Jafnréttisnefnd Kennarasambands Íslands efna til samnorræns málþings um kynjafræðikennslu í framhaldsskólum, á Hallveigarstöðum, miðvikudaginn 21. október kl. 15-17. Rætt verður um kynjafræðikennslu á framhaldsskólastigi, áskoranir og tækifæri, kennsluefni, kennsluaðferðir og framtíðarsýn.
DAGSKRÁ
15:00
Opnunarorð
15:10
Þórður Kristinsson, Kvennaskólinn í Reykjavík: Deconstructing your reality, one school assignment at a time
15:30
Lise Bæk, Roskilde Gymnasium: Integrating the Gender Perspective into Danish Secondary Schools: Challenges and Opportunities
15:50
Stephanie Thögersen, Sveriges Kvinnolobby: Introducing an Online Study Course Outlining CEDAW and the Beijing Platform for Action
16:00
Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, Borgarholtsskóli: The Sustainability of Gender Studies in Secondary Schools
16:20
Umræður
Kaffi og kökur í boði. Aðgangur ókeypis.
Athugið, málþingið og umræður fara fram á ensku.